Kópavogsblaðið - 20.05.2016, Blaðsíða 11

Kópavogsblaðið - 20.05.2016, Blaðsíða 11
Kópavogsblaðið 11Föstudagur 20. maí 2016 aðSEnt aðSEnt á Döfinni Versnandi afkoma Kópavogsbæjar Nærumhverfið. Okkar Kópavogur Óperudagar Theodóra S. Þorsteinsdóttir, formaður bæjarráðs. Óperudagar í Kópavogi verða settir laugardaginn 28. maí  með Fjölskyldustund Menn- ingarhúsa í Salnum Kópavogi. Þar verður frumflutt ný íslensk fótbolta- ópera og börnum boðið upp á leyni- ferð baka til í Salnum til að kynnast undirbúningi óperuflutnings. Fót- boltamörk verða á grasflötinni og ýmsar skemmtilegar uppákomur í tengslum við fótboltaíþróttina verða í boði. Aðgangur er öllum opinn meðan húsrúm leyfir. Óperudagar í Kópavogi er ný óperu- hátíð en dagskráin fer að mestu fram dagana 1.- 5. júní 2016. Gestum og gangandi verður boðið upp á fjöl- breytta dagskrá þar sem flytjendur og áhorfendur munu eiga í fjörugu samtali við óperuformið. Staðsetning viðburða verður á ýmsum stöðum, í Salnum, Gerðarsafni, Leikfélagi Kópavogs, Smáralind og víðsvegar um bæinn. Ókeypis er á alla viðburði nema hádegistónleikana og verður Það eru 25 ár síðan Waldorf-skólinn í Lækjarbotnum varstofnaður í fallegum dal ofan við Lögbergsbrekkuna sem er í austurátt ef keyrt er þjóðveg eitt frá Rauðavatni. Skólinn hefur vaxið jafnt og þétt og eru nú nemendur hans hátt í hundrað talsins. Í Waldorf- skólanum hefur áherslan á handverk og listir í takt við árstíðarbundna hrynjandi náttúrunnar tengst órofa böndum við allt starfið í skólanum. Það þótti því við hæfi að halda upp á afmælið með því að setja á svið leik- sýningu þar sem þetta allt kæmi saman. Í daglega lífinu skiptir margt miklu máli. Má þar nefna húsnæði, sam-göngur, göngustíga, hjólastíga, öryggismál, hreyfingu, næringu, líðan, skóla- og leikskóla umhverfi og þjónustu. Mig langar í stuttu máli til þess að fara yfir áherslur sem unnið er að í Kópavogi. Fyrst að húsnæðismálum. Það þarf ekki að fjölyrða um verulegan skort á litlum, ódýrum íbúðum. Stefna bæjarstjórnar Kópavogs felst m.a. í því að stuðla að byggingu minni og ódýrari íbúða og að ýta undir virk- an leigumarkað. Með réttu skipu- lagi getum við haft áhrif á íbúasam- setningu, tegundir og stærð íbúða. Samgöngustefna verður einnig mótuð til að styðja við húsnæðis- stefnuna. Markmiðið er að Kópa- vogsbær verði fyrirmynd hvað varðar vistvæna valkosti í ferðavenjum íbúa með áherslu á bættar aðstæður og öryggi fyrir gangandi og hjólandi. Sá hópur sem vill búa við bíllausan lífsstíl fer stækkandi og svara þarf kröfum bæjarbúa varðandi almenn- ingssamgöngur og öruggar hjól- reiðar. Þann 31. maí n.k. verður haldið málþing um hjólreiðar og öryggismál í Salnum í Kópavogi. Þar munum við m.a. ræða reglur um Á síðasta bæjarstjórnarfundivoru ársreikningar bæjar-ins fyrir árið 2015 samþykkt- ir. Kópavogur er eitt skuldugasta sveitarfélag landsins og því ætti forgangsverkefni okkar að vera að lækka skuldirnar. Því miður hefur núverandi meirihluta Sjálfstæðis- flokks og Bjartrar framtíðar ekki gengið sem skyldi í því verkefni. Við samþykkt ársreikninganna lagði ég fram eftirfarandi bókun: „Rekstrarniðurstaða Kópavogs- bæjar árið 2015 er verri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þannig var rekstrar- niðurstaða A hluta neikvæð um 222 m.kr. en gert var ráð fyrir 147 m.kr. afgangi. Þegar B hluti sam- að skrá þátttöku á operudagar@ operudagar.is. Á meðal viðburða má nefna Óperugöngu og Krakkagöngu þar sem gestir verða leiddir um hjarta Kópavogs og munu ýmsar óvæntar óperulegar uppákomur bíða þeirra. Göngurnar hefjast við Garðskálann, kaffihúsið í Gerðar- safni sem er í menningarkjarna Kópavogsbæjar. Hádegistónleikar Óperudaga í Kópavogi verða sex talsins. Þar koma ungir söngvarar fram sem starfa er- lendis og því er um einstakt tæki- færi að ræða til að hlýða á þá hér á landi. Með þeim spila píanistar hátíðarinnar.  Allar nánari upplýsing- ar má finna á www.operudagar.is og www.karolinafund.com undir heitinu Óperudagar í Kópavogi. Listrænn stjórnandi Óperudaga er Guja Sandholt og verkefna- stjóri er Jóhanna Kristín Jónsdóttir. Styrktaraðilar eru Lista- og menning- arsjóður Kópavogs, þýska sendi- ráðið, Herramenn, Svansprent, GA smíðajárn, Pera Óperukollektíf, Byko auk framlaga á Karolina Fund. stæðunnar er tekinn inn þá er 161 m.kr. afgangur af rekstri bæjarfélag- sins. Til samanburðar þá var rekstrar- afgangur bæjarfélagsins árið 2014 660 m.kr. og hefur því lækkað um 500 m.kr. á milli ára. Þá er ljóst að lífeyris- skuldbindingar eiga eftir að hækka um hundruðir milljóna ef sömu forsendur verða notaðar og hjá Reykjavíkurborg. Skuldir og skuld- bindingar bæjarins hækka í krónum talið á milli áranna 2014 og 2015 en lækka örlítið að raungildi þegar tillit er tekið til verðlagsbreytinga. Skuldahlutfallið lækkar úr 175,2% í 161,8% á milli ára og skýrist sú lækkun fyrst og fremst að fleiri íbúar eru á bak við skuldir og skuldbindingar bæjarins en íbúum Kópavogs fjölgaði um 1010 á ár- inu 2015. Það er hins vegar ljóst að rekstur bæjarins verður mjög þungur ef verðbólgan fer á skrið – en síðustu 2 ár hafa verið mjög hagfelld í þeim efnum. 5% hækk- un á verðlagi myndi leiða til allt að 1500 milljóna króna verri rekstrar- niðurstöðu. Það er því mikilvægt að bæjaryfirvöld gæti aðhalds í rekstri og raun dapurlegt að ekki hafi náðst betri árangur til lækkunar skulda en raun ber vitni.“ Birkir Jón Jónsson, bæjarfulltrúi Framsóknar í Kópavogi. hámarkshraða hjólreiða á göngu- stígum, flokkun hjólastíga og öryggis- mál almennt í samvinnu við Sam- göngustofu, Skipulagsstofnun, Vega- gerðina og fleiri hagsmunaðila. Þá hefur verið unnið að nýrri lýðheilsu- stefnu með Kópavogsbúum með áherslu á hreyfingu, næringu og líðan. Ánægjulegt er að segja frá því að þá er einnig búið að gera þarfa- greiningu á öllum skólalóðum í Kópavogi í samráði við skólana og foreldrasamfélagið. Ítarleg skýrsla var unnin um ástand lóða með það að markmiði að sinna viðhaldi, endurgerð lóða og búnaði á þeim. Skýrslan nær m.a. til leiktækja, búnaðar, íþróttavalla, breytinga á yfirborði, lýsingar, körfuboltavalla, hreystivalla og hjólabrettasvæða svo eitthvað sé nefnt. Út frá þess- ari skýrslu verður forgagsraðað eftir þörf og lagt hefur verið til að ráðast í endurbætur á skólalóðum Kópavogsskóla, Kársnesskóla og Salaskóla. Samskonar skýrsla er í vinnslu í samráði við skólastjórnen- dur og foreldrafélög leikskólanna. Að lokum vil ég nefna nýtt verkefni hjá Kópavogsbæ sem við köllum „Okkar Kópavogur“ og snýst um sam- ráð íbúa og bæjaryfirvalda. Verkefnið er hluti af aukinni lýðræðisvæðingu hjá Kópavogsbæ þar sem kallað er eftir þátttöku íbúa við forgangs- röðun verkefna í hverfum bæjarins. Með skýrri stefnumörkun mun minni íbúðum í Kópavogi fjölga og að- stæður skapast til fleiri valmöguleika á sviði samgangna í heilsueflandi samfélagi. Saman höfum við síðan áhrif á það nærumhverfi sem við viljum búa við. Að lokum vil ég hvetja Kópavogsbúa til þess að taka þátt í verkefninu „Okkar Kópavogur,“ mæta á íbúafundina, leggja fram hugmyndir og gera Kópavoginn okkar enn betri. Skólaleiksýning Waldorfskólans í Lækjarbotnum SólkaStalinn Leiksýningin Sólkastalinn var haldin þann 27.apríl í Gamla bíói og stigu allir nemendur og kennarar á stokk. Ásamt því að túlka hin ýmsu hlut- verk, léku nemendur á hljóðfæri, sungu,dönsuðu hrynlist, og tóku þátt í að búa til búningana með kennurum og foreldrum. Í sýningunni ferðast aðalpersónan Viktor um ævintýraheima náttúru- nnar, jörð, loft og vatn, og þarf að sigrast á margvíslegumþrautum í leit sinni að prinsessunni í Sól- kastalanum.

x

Kópavogsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.