Kópavogsblaðið - 20.05.2016, Side 12
Kópavogsblaðið12 Föstudagur 20. maí 2016
Mæðrastyrksnefnd Kópa-vogs langar að lýsa örlítið því starfi sem hún sinnir
fyrir bæjarfélagið og hefur sinnt
frá stofnun hennar eða 1968. Við
höfum ekki mikið auglýst starf-
semina, enda um líknastarfsemi
að ræða. Í fjölmörg ár var helsta
fjáröflun sala merkja á mæðradag-
inn og svo basar og blómasala. Hin
síðari ár, á hverju hausti, höfum við
sent bréf til allra skráðra fyrirtækja
í bænum, en það eru milli 800 og
900 fyrirtæki. Hefur þetta skilað
okkur talsverðum upphæðum sem
staðið hafa undir styrkveitingum.
Einnig höfum við notið velvilja
einstaklinga og félagasamtaka í
Kópavogi. Kópavogsbær lætur
okkur í té endurgjaldslaust hús-
næði og ber að þakka allan þann
stuðning. Þá hafa bakarí bæjarins
og Sölufélag garðyrkjumanna stutt
okkur dyggilega með brauðmeti
og grænmeti, sem einnig er mjög
þakkarvert. Jólaaðstoðin er alltaf
auglýst í bæjarblöðunum og á fjöl-
förnum stöðum í bænum. Um-
sóknum verður að fylgja búsetu-
vottorð og staðgreiðsluyfirlit.
Ekki verðum við varar við að fólk
sæki um að óþörfu. Einnig úthlut-
um við fermingarstyrkjum og aug-
lýsum það á heimasíðu og face-
book sem og í bæjarblöðunum.
Þá er nokkuð um að Velferðarsvið
bæjarins bendi á okkur fyrir sína
skjólstæðinga og reynum við að
aðstoða eftir megni.
Margir eiga mjög erfitt og það
er sorglegt að hitta yngra, sem og
Mæðrarstyrksnefnd
Kópavogs aðstoðar yfir
þúsund manns á ári
Samfélagsbanki, örugg-
ari og ódýrari banki
Ynja, 19 ára myndlistar-
maður úr Kópavogi, opnar
sína aðra einkasýningu
aðSEnt
aðSEnt
mynDliSt
eldra fólk sem getur ekki fótað
sig í hinu daglega lífi. Einnig eru
fjárhagsáhyggjur afar þungbærar
svo sem há leiga, lyfjaverð og fleira.
Á árinu 2015 aðstoðaði mæðra-
styrksnefnd Kópavogs yfir 1000
einstaklinga, sem samanstóð af
einstæðum foreldrum, fjölskyldu-
fólki og einstaklingum, sem búa
við þröngan kost. Er þetta svipaður
fjöldi og undanfarin ár. Miðað
er við þrjár úthlutanir á ári utan
jólaaðstoðar.
Styrkjum sem koma inn er al-
farið ráðstafað til styrkþega. Inn-
koma fyrir fatnað og fleira er hald-
ið sér og rennur sú upphæð til rek-
strarins. Bókhald nefndarinnar er
fært af bókhaldsstofu úti í bæ og er
það opið þeim sem þess óska. Við
teljum okkur því halda vel utanum
fjármálin og starfið í heild sinni
enda eru þarna dugmiklar konur
sem hafa verið afskráðar af vinnu-
markað sökum aldurs, en láta það
ekki á sig fá og reyna að hlúa að
öðrum án greiðslu. Þess má geta að
í desember síðastliðin var nefnd-
ini ásamt Rauðakrossdeild Kópa-
vogs veitt jafnréttis- og mannrétt-
indaverðlaun frá Kópavosbæ sem
viðurkenning á starfi þessara hópa.
Og þykir okkur afar vænt um þá
viðurkenningu.
Mæðrastyrksnefndin fer í sumarfrí
frá 1. Júni til 22 ágúst 2016.
Styrktarreikningur: 536 05 403774
Kt. 5001972349
Fyrir hönd Mæðrastyrksnefndar:
Anna Kristinsdóttir.
Ynja Mist er afkastamikill lista-maður úr Kópavogi, en þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára held-
ur hún sína aðra einkasýningu á næst-
unni. Sýningin ber heitið KAF og
opnar á morgun, laugardaginn 21.
maí klukkan 16:00 í Gallerí Tukt,
Pósthússtræti í Reykjavík. Sýningin
mun standa yfir í tvær vikur. KAF
verður önnur einkasýning Ynju á
þessu ári en sú fyrri - Heimshaf, fór
fram í gallerí Grósku síðastliðinn
febrúar. Undanfarið hefur myndlist
Ynju einkennst af því að vera inn-
blásin af hafinu. Sá áhugi á uppruna
sinn í lokaverkefni hennar í mynd-
listarnámi í FG. Hún hefur verið að
rannsaka liti, form, tilfinningar og
fleira sem finnst í sjónum: „Verkin
mín eru mjög expressjónísk, og oft
út í abstrakt, en mér finnst sjórinn
vera abstrakt expressjónískur í eðli
sínu. Veður og jörð móta hann í
sameiningu,” segir Ynja.
Verkin sem Ynja mun sýna í Gall-
erí Tukt sýna hinar ýmsu hliðar haf-
sins. „Ég hef mikinn áhuga á hafinu,
og bara vatni yfir höfuð sem við-
fangsefni. Vatn er svo óútreiknanlegt.
Það eru svo mög form sem þetta
eina efni getur mótað. Margir hafa
spurt mig hvert þemað verður fyrir
næstu sýningu og finnst oft skrýtið
og jafnvel ómerkilegt að ég ætli að
halda mig við það sama. En ég sé
Það er ekkert lögmál að bank-inn þinn hafi það markmið að græða eins mikið á þér eða
fyrirtækinu þínu og hægt er með
öllum tiltækum ráðum. Okurvexti
ofan á verðtryggingu, endalaust ný,
meiri og hærri þjónustugjöld, og
sáralitla vexti á innistæðum. Það er
ekki heldur neitt lögmál að sveitar-
félög, fyrirtæki eða aðrir aðilar séu
sligaðir af rándýrum vöxtum og
afborgunum af lánum. Þetta gæti allt
verið miklu ódýrara, þægilegra og
betra.
Engir bónusar, ofurlaun eða auka-
greiðslur til stjórnenda. Þegar sam-
félagsbankanum þínum gengur vel
þá fer hagnaðurinn í að lækka vexti á
lánum og hækka vexti á innistæðum.
Samfélagsbanki veitir lán til fyrir-
tækja og einstaklinga eins og
bankar gera. Hann tekur hins vegar
aldrei þátt í áhættusömum fjár-
endalausa möguleika. Ég stefni á að
halda áfram að rannsaka vatn í mynd-
list minni, vegna þess að það er
ótæmandi,” segir Ynja.
Ynja útskrifaðist sem stúdent af
myndlistabraut FG í desember í fyrra,
hálfu ári fyrr þrátt fyrir að hafa
farið sem skiptinemi til Banda-
ríkjanna í hálft ár. Eftir útskrift opn-
aði hún sína fyrstu einkasýningu
sem var lokaverkefni hennar á
myndlistabraut. Hún útskrifaðist
með verðlaun fyrir metnaðarfullt
og hugmyndaríkt lokaverkefni á
myndlistabraut. „Ég stefni á að fara
í nám í Kaupmannahöfn á næsta
ári en þangað til mun ég nýta öll
tækifæri til þess að koma verkum
mínum á framfæri og vinna í ferli
mínum sem listamaður,” segir þessi
kraftmikli listamaður úr Kópavogi.
Ynja Mist, listamaður.
Baldvin Björgvinsson, stjórnarmaður
í Dögun, stjórnmálasamtökum um
réttlæti, sanngirni og lýðræði.
festingum eða fjármálabraski. Aðal-
atriðið er að samfélagsbankinn er
öruggur staður til að geyma peninga.
Rúmlega helmingur Þjóðverja, meira
en fimmtíu milljónir manna, nota
samfélagsbanka til bankaviðskipta.
Þeir eru líka þekktir í flestum löndum
sem við viljum bera okkur saman
við og er að finna í ýmsu formi um
mest alla Evrópu. Meira að segja í
Bandaríkjunum, í N-Dakótafylki er
meðal annars samfélagsbanki, hann
var einmitt stofnaður til að verja
fjármuni einstaklingsframtaksins.
Í stjórnmálasamtökunum Dögun
hefur verið unnið ötullega að undr-
ibúningi að stofnun samfélagsbanka
árum saman. Dögun fékk meðal ann-
ars einn æðsta yfirmann frá Spark-
assen í Þýskalandi, Wolfram Morales,
og hina bandarísku Ellen Brown,
rithöfund og ráðgjafa, hingað til
lands og héldu kynningarfund þann
13. febrúar síðastliðinn. Upptöku
af fundinum er auðvelt að finna á
netinu.
Kópavogsbær með veltu upp á tugi
milljarða á ári færi létt með að stofna
sinn eigin samfélagsbanka. Íbúar
Kópavogs gætu auðveldlega verið
með sína launareikninga þar líka.
Samfélagsbanki Kópavogs myndi
spara bæði sveitarfélaginu og íbúum
þess mikla fjármuni.
HK og N1 í samstarf
SamStarf
HK og N1 undirrituðu í vikunni tveggja ára samstarfssamning. N1 verður einn af
aðalstyrktaraðilum félagsins en fyrirtækið er með höfuðstöðvar sínar á Dalvegi.
Félagsmönnum HK býðst mjög góður afsláttur hjá N1 þegar sótt er um N1-HK
bensínkort. Frekari upplýsingar um það mun birtast á www.hk.is.
Myndin er tekin í Kórnum fyrir fyrsta leik knattspyrnudeildar HK í Innkasso deild-
inni. Á myndinni eru þeir Sigurjón Sigurðsson, formaður HK, og Eggert Þór
Kristófersson, forstjóri N1, ásamt öflugum leikmönnum HK.
Eitt kort
35 vötn
6.900 kr
Frelsi til að veiða!
00000
www.veidikortid.is