Kópavogsblaðið - 20.05.2016, Blaðsíða 14
Kópavogsblaðið14 Föstudagur 20. maí 2016
Margt í boði
í Menningar-
húsum
námSkEið
TENNISSKÓLINN Í SUMAR
fyrir börn 5-13 ára
TENNIS- OG LEIKJASKÓLINN FYRIR BÖRN 5-8 ÁRA
Markmið námskeiðanna er að kenna undirstöðuatriði
tennisíþróttarinnar í bland við skemmtilega bolta-
hlaupa- og tennisleiki.
TENNISSKÓLINN 9-13 ÁRA
Í Tennisskólanum fyrir börn 9-13 ára eru markmiðin
þau sömu en lögð er meiri áhersla á tennisæfingar
og tennisspil.
Á báðum námskeiðum er lögð áhersla á að auka
hreyfiþroska barnanna og fá allir nemendur bol og
viðurkenningarskjal í lok námskeiðs. Í lok hvers
námskeiðs er haldin pizzu- eða grillveisla.
NÁMSKEIÐ
Hægt er lika að taka stakar vikur.
Byrjendanámskeið
í tennis í sumar
fyrir fullorðna
Þú getur byrjað í tennis.
Sumarskráning er hafin.
Sumarkort í tennis
Með sumarkorti í tennis getur
þú spilað eins oft og þú vilt í
sumar bæði á inni- og
útivöllum TFK og Tennishallar-
innar. Hægt er að fá einstak-
lingskort og fjölskyldukort.
Skráning og
upplýsingagjöf er hafin!
www.tennishollin.is
tennis@tennishollin.is
S: 564 4030
1. námskeið: 13. júní –24. júní
2. námskeið: 27. júní – 08. júlí
3. námskeið: 11. júlí –22. júlí
4. námskeið: 25. júlí –05. ágúst
5. námskeið: 08. ágúst –19. ágúst
Tennisskólinn fyrir börn 5-13 ára
Dalsmári 13 | sími 564 4030 | tennis@tennishollin.is | www.tfk.is
Tennisfélag Garðabæjar Tennisfélag Kópavogs
TÍMI OG GÆSLA
Hægt er að taka námskeið sem stendur frá kl.
9.00 - 12.00 eða frá kl. 13.00 - 16.00 eða allan
daginn. Börnin geta þó komið í gæslu kl. 7.45 og
verið í gæslu í hádeginu og til kl. 17.15. Gæslan
er án endurgjalds.
VERÐ
Tveggja vikna námskeið hálfan daginn er 21.800
kr. en heilan dag 31.800 kr. Ef tekin er stök vika,
þá er greitt fyrir hverja viku 10.900 kr. hálfan
daginn en 15.900 kr. allan daginn. Systkina-
afsláttur er 10% fyrir hvert barn.
Menningarhúsin í Kópavogiláta ekki sitt eftir liggjaog bjóða upp á sumarnám-
skeið fyrir börn enda sannarlega
áhugi meðal barna og foreldra á
námskeiðum sem víkka sjóndeildar-
hringinn. Það er mörgum kærkomin
tilbreyting að fá að grúska á bóka-
safni, skoða vatna- og fjörulífríki og
skapa list undir handleiðslu mynd-
listarmanna. Tilbreytingin í formi
annarskonar námskeiða og við-
fangsefna en krakkarnir hafa fyrir
stafni allan veturinn getur haft þau
áhrif að börn uppgötva áhugasvið
eða hæfileika sem þau höfðu ekki
hugmynd um áður.
Náttúrufræðistofa Kópavogs býður
námskeið strax í júní þar sem farið
verður í vettvangsferðir og vatna-
og fjörulífríki í Kópavogi rann-
sakað. Sýni verða mæld og skoðuð
í smásjá og haldnar vinnubækur
en námskeiðið hefst þann 13. júní
og er ætlað börnum á aldrinum 10
til 12 ára. Starfsmenn Náttúru-
fræðistofu eru leiðbeinendur
námskeiðsins en þetta er í 19. sinn
sem slíkt námskeið er haldið af Nátt-
úrufræðistofu Kópavogs.
Heilsdagsnámskeið fyrir börn á
yngsta stigi grunnskóla verður haldið
eftir verslunarmannahelgi, 8.-12.
ágúst. Að námskeiðinu koma Bóka-
safn Kópavogs, Náttúrufræðistofa
Kópavogs og Gerðarsafn í samstarfi
við Menntasvið Kópavogs.
Rétt áður en skólahald hefst munu
svo Bókasafn Kópavogs og Gerðar-
safn bjóða 10-12 ára krökkum nám-
skeið. Í Bókasafninu verður rýnt í
hvernig bækur verða til en yfirskrift
námskeiðsins er „Stefnumót við rit-
höfunda.“ Eins og nafnið bendir til
munu rithöfundar heimsækja
hópinn á hverjum degi og í lok
námskeiðs ættu krakkarnir því að
hafa innsýn í störf rithöfunda og
hafa spreytt sig á söguskrifum. Í
Gerðarsafni verður hinsvegar unnið
með náttúruna á myndlistarnám-
skeiði og meðal annars búnir til
saltkristallar og gerðar tilraunir
með geómetrísk form úr sápukúlum.
Markmið námskeiðsins verður
að sameina náttúrufyrirbrigði og
listsköpun. Námskeiðin í Bókasafn-
inu og Gerðarsafni verða frá klukkan
13-16 dagana 15.-19. ágúst.
Sumarnámskeið Breiðabliks 2016
námSkEið
Verðskrá:
Sama verð er á öll námskeiðin og
hægt er að velja um hálfan dag
eða heilan dag. Í Smáranum er hægt
að kaupa heitan mat í hádeginu og
gæslu frá 8.00-9.00 og 16.00-17.00.
Ekki verður unnt að bjóða upp á
hádegismat í Fagralundi en hægt
verður að kaupa gæslu frá 8:00 til 9:00,
frá 12:00 til 13:00 og 16:00 til 17:00.
Í sumar verður boðið upp á íþróttanámskeið fyrir börn á aldrinum 6 til 12 ára í Smáranum í Kópavogsdal og í Fagralundi í Fossvogsdal. Skipulögð dagskrá er
frá 8.00-17.00 alla virka daga. Námskeiðin eru fyrir öll börn fædd 2004 til 2009.
* Vika 23 er 4 dagar og lækkar verð þá
viku um 20%
Staðsetning og tímatafla fyrir námskeiðin:
Hægt verður að skrá börn á námskeið
og í gæslu frá og með 2. maí en allar
upplýsingar um skráningarferlið er
að finna á heimasíðu Breiðabliks
– breidablik.is. einnig er hægt að fá
upplýsingar í síma 510-6400. Einn-
ig er fyrirhugað að halda námskeið í
ágústmánuði, frá 8. til 19. ágúst. Nán-
ari tilhögun verður kynnt síðar.
Sumarnámskeið í Kópavogi Sumarnámskeið í Kópavogi
Sundnámskeið:
Námskeiðin eru fyrir öll börn fædd
2004 til 2011. Sunddeild Breiðabliks
býður í sumar upp á sundnámskeið
í Sundskóla Breiðabliks í júní og júlí.
Fyrsta námskeiðið hefst 13. júní og
því síðasta lýkur 15. júlí. Sjá nánar
á breidablik.is/sund/sundnamskeid_
breidabliks.