Kópavogsblaðið - 20.05.2016, Síða 15
Kópavogsblaðið 15Föstudagur 20. maí 2016
Ferðamálaskólinn í Kópavogi er kvöldskóli fyrir fullorðna og fer kennslan fram frá
klukkan hálf fimm til tæplega tíu,
fjögur kvöld vikunnar. Ásdís Ó.
Vatnsdal er fagstjóri Ferðamála-
skólans og ferðagreina í Mennta-
skólanum í Kópavogi. Hún segir
hér frá skipulagi náms í Ferðamála-
skólanum og þeim möguleikum
sem standa nemendum til boða.
Ferðamálaskólinn býður upp á
starfstengt ferðamálanám fyrir
fullorðna einstaklinga sem lokið hafa
stúdentsprófi, sveinsprófi eða öðru
sambærilegu námi. Námið skiptist
í tvær bóklegar annir í skólanum og
svo tólf vikna starfsnám hjá ferða-
þjónustufyrirtæki. Hægt er að taka
námið á lengri tíma og hentar það
ágætlega fyrir þá sem vilja stunda
námið jafnhliða vinnu.
Hagnýtt og fjölbreytilegt nám
Námið er hagnýtt, sem þýðir að við
erum alltaf að undirbúa nemendur
beint undir atvinnulífið. Verkefnin
eru raunhæf og það er mikið lagt
upp úr samvinnu og hópverkefnum,
því það er það sem tekur við þegar
fólk er komið til starfa í greininni.
Í náminu læra nemendur allt um
Ísland sem ferðamannaland, svo
sem um náttúru landsins, menn-
ingu, afþreyingu og gistingu. Að auki
er kennd ferðaenska, þjónustusam-
skipti, markaðsfræði, viðburða-
stjórnun, ferðafræði, upplýsinga-
tækni, ferðalandafærði útlanda,
umhverfisfræði og stjórnun. Þá er
einnig boðið upp á valgreinar sem
snúast um farbókanir og farseðlaút-
gáfu annars vegar og matreiðslu,
framreiðslu og gestamóttöku hins
vegar. Gestafyrirlesarar sækja skól-
ann heim og farið er með nemend-
ur í fyritækjaheimsóknir og vett-
vangsferðir. Einnig er nemendum
oft boðið að sækja ráðstefnur og
ferðakynningar. Á undanförnum
árum hefur skapast hefð fyrir því
að sækja hina víðfrægu ferðakaup-
stefnu ITB sem fram fer á hverju ári
í Berlín og svo er tveggja daga náms-
ferð til Vestmannaeyja orðin ómiss-
andi þáttur í skólastarfinu.
Góð tengsl við atvinnulífið
Með náminu í Ferðamálaskólanum
erum við að undirbúa nemendur
undir störf hjá ferðaskrifstofum,
upplýsingamiðstöðvum, flug-
félögum, hótelum, afþreyingarfyrir-
tækjum og ráðstefnuskrifstofum, svo
eitthvað sé nefnt. Við erum í nánum
tengslum við atvinnulífið og hags-
munaaðila ferðaþjónustunnar og
fylgjumst vel með því sem er að ger-
ast í greininni. Við erum sífellt að
endurskoða námið í takt við þarfir
þessarar ört vaxandi atvinnugreinar.
En þrátt fyrir mikla þenslu í ferða-
þjónustu á Íslandi hefur nem-
endafjöldi við skólann staðið í stað.
Við bindum þó vonir við að aðsóknin
muni glæðast á næstunni því okkur
veitir svo sannarlega ekki af vel
menntuðu fólki í þessari mikilvægu
atvinnugrein. Að meðaltali stunda
um 35-40 manns nám við skólann
en það er pláss fyrir fleiri.
Bóklega námið er alls 36 einingar
og starfsnámið er 15 einingar, þannig
að námið í heild gefur 51 einingu. Í
starfsnáminu sækja nemendur ýmist
sjálfir um störf í ferðaþjónustu eða
skólinn gerir sérstakan námssamn-
ing við ferðaþjónustufyrirtæki. Skól-
inn hefur átt í góðu samstarfi við
fyriræki í ferðaþjónustu og reglulega
leita fjölmargir aðilar til skólans
þegar þá vantar góða starfskrafta.
Starfsnámið getur farið fram sam-
hliða námi eða að bóklega náminu
loknu. Við höfum einnig metið
starfsreynslu hjá ferðaþjónustu-
fyrirtækjum til eininga en þá þurfa
nemendur að skila inn skýrslu ásamt
staðfestingu á að þeir hafi starfað hjá
viðkomandi fyrirtæki.
Aðalmarkmið starfsnámsins er að
útskrifa nemendur sem eru hæfir til
starfa í ferðaþjónustu strax að námi
loknu. Það er því mikilvægt að þeir
öðlist innsýn í helstu vinnuferla
hjá fyrirtækinu, deildaskiptingu og
samskipti milli deilda. Einnig er lögð
áhersla á að nemandi fái reynslu og
þjálfun í samskiptum við afgreiðslu
og upplýsingagjöf, taki þátt í skipu-
lagningu og undirbúningi ferða og
umsjón með bókunum og kynnist
reikningagerð, uppgjöri, markaðs-
setningu og öðru þeim þáttum sem
áhersla er lögð á innan fyrirtækisins.
Starfsnám erlendis
Ferðamálaskólinn hefur á undan-
förnum árum tekið þátt í viðamiklum
erlendum samstarfsverkefnum
styrktum af menntaáætlun Evrópu-
sambandsins og Nordplus. Þessi
verkefni miða öll að því að efla
gagnkvæmt traust í menntamálum
og auka möguleika fólks á að stunda
hluta starfsnám í öðru landi og fá
námið síðan metið í heimalandinu.
Skólinn hefur nokkrum sinnum
staðið að slíkum nemendaskiptum
og um páskaleytið í vor fóru fjórir
nemendur í þriggja vikna starfsnám
í bænum Rovaniemi í Lapplandi.
Námsferðin var styrkt af Ersamus+
áætluninni og var markmið hen-
nar að gefa nemendum tækifæri
á að kynnast menningu og ferða-
þjónustu í tiltölulega litlu samfélagi
á norðurslóðum. Svæðið er vinsæll
ferðamannastaður sem hefur á
undanförnum árum verið markaðs-
sett sem heimkynni jólasveinsins
og Alpar norðursins, en þarna er
eitt stærsta skíðasvæði Norður-
landa og svo hafa norðurljósin ekki
spillt fyrir vinsældum staðarins.
Þarna gefst nemendum kostur á
að kynnast vetrarferðamennsku
við aðstæður sem eru alls ekki svo
ólíkar aðstæðum heima fyrir og
fá ef til vill nýjar hugmyndir sem
gætu nýst þeim í starfi innan ferða-
þjónustunnar í framtíðinni. Stefnt
er að því að gera námsferðir til Lapp-
lands að föstum lið í skólastarfinu
og á næsta skólaári mun þremur
nemendum gefast kostur á því að
dveljast um þriggja vikna skeið í
Lapplandi.
Netfang: Ferdamalaskolinn@mk.is
Sími: 594 4020
Upplýsingar hjá fagstjóra, Ásdísi Ó.
Vatnsdal, og á heimasíðu mk.is
NÝBÝLAVEGI 20 SÍMI 554-5022
kinahofid.is
8 rétta
hlaðborð
í hádeginu
TILBOÐ
KR. 1.790.-
OPIÐ KL. 11:00-14:00
Hlaðborðið er alla virka daga,
ekki um helgar
NÝBÝLAVEGI 20 SÍMI 554-5022
kinahofid.is
8 rétta
hlaðborð
í hádeginu
TILBOÐ
KR. 1.790.-
OPIÐ KL. 11:00-14:00
Hlaðborðið er alla virka daga,
ekki um helgarNÝBÝLAVEGI 20 SÍMI 554-5022
kinahofid.is
8 rétta
hlaðborð
í hádeginu
TILBOÐ
KR. 1.790.-
OPIÐ KL. 11:00-14:00
Hlaðborðið er alla virka daga,
ekki um helgar
Höfum opið þrátt
fyrir byggingar-
framkvæmdir
Ferðamálaskólinn
í Kópavogi
kynning
Nemendur Ferðamálaskólans í heimsókn hjá jólasveininum í Rovaniemi