Bæjarins besta


Bæjarins besta - 28.07.1993, Qupperneq 6

Bæjarins besta - 28.07.1993, Qupperneq 6
6 RÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 28. júlí 1993 Bandarískur skiptinemi kemur Jieim” eftir tíu ár: Það varfrábœrt að koma heim aftur - segir Chris Finch sem stundaði nám í Menntaskólanum á ísafirði fyrirtíu árum og er ná í heimsókn hjá íslenskum foreldrum sínum UNGUR banda- ríkjamaður Chris Finch sem stundaði nám sem skiptinemi í Menntaskólanum / á Isafirði fyrir tíu árum kom aftur til bœjarins um þarsíðustu helgi til að heimsœkja íslensku „mömmu og pabba” þau Hafstein Vilhjálmsson og Höllu Sigurðar- dóttur og í tilefni heimkomunnar héldu þau vinum / hans á Isafirði veglega grillveislu þar sem ekkert var til sparað og muna menn vart aðra eins grill- veislu að sögn viðstaddra. Auk matar og drykkjar sem stóð á borðum frá kl. 16 til kl. 01 lék hjóm- sveitin Snigla- bandið fyrir við- stadda og var góður rómur gerður að leik þeirra enda ein vinsœlasta hljóm- sveit landsins þar á ferð. Chris leit við á ritstjórn blaðsins á mánudag og sagði okkur aðeinsfrá heimkomunni og hvað hefði drifið á daga hans síðustu tíu ár. „Það er frábært að koma aftur heim til Isafjarðar og sjá fjölskylduna og vini. Ég eign- aðist marga vini á meðan ég var í Menntaskólanum, bæði skólafélaga og vini sem ég eignaðist þegar ég var að spila körfubolta með Körfuknatt- leiksfélagi Isafjarðar. Þeim vinum mínum sem eru á Isa- firði í dag buðu Hafsteinn og Halla til grillveislu á laugar- daginn var og bar veislan einmitt uppá 29 ára afmæli mitt. Ég hef aldrei haft svona skemmtilega afmælisveislu áður og toppurinn var að fá Sniglabandið til að spila. Þá var maturinn einn sá besti sem ég hef borðað og það er ljóst að svona gott lambakjöt er ekki hægt að fá í Bandaríkjunum. Við drukkum mikinn bjór, en hann gat ég ekki fengið þegar ég var hér í skóla, fórum í leiki og dönsuðum eins og lífið lá. Síðan var farið á dansleik með Sniglabandinu áFlateyri og þar með endaði skemmtilegasti afmælisdagur minn til þ?ssa.” -Hvernig kom það til að ein vinsælasta hljómsveit landsins mætti á svæðið? „Þaó var vegna þess að frændi Hafsteins er í hljóm- sveitinni og hún var stödd hér og bauðst til að spila. Þetta var gaman og ég held að hljóm- sveitarmeðlimir hafi skemmt sér jafn vel og allir aðrir sem voru í veislunni. Ég vil þakka þeim fyrir frábæra skemmtun.“ Það hefur mikið * breyst á Isafirði -Hvernig var að koma til Isafjarðar eftir tíu ára fjarveru? „Það var mjög gott að koma aftur til Isafjarðar og sérstak- lega að sjá fjölskyldu mína sem ég bjó hjá veturinn 1982- 1983. Ég kom reyndar árið 1985 í einn mánuð til að læra íslensku en hef verið í Banda- ríkjunum síðan. Mér finnst hafa liðið alltof langur tími á milli og ég vona að það líði ekki eins langur tími þar til ég kem aftur. Það hefur mikió breyst á Isafirði á þessum árum, stærsta breytingin var sú að skólafélagar mínir voru flestir giftir og komnir með börn en ég er ennþá ólofaður eins og flestir vinir mínir í Bandaríkjunum. Islendingar gifta sig mun fyrr en Banda- ríkjamenn og stofna heimili og eignast böm.“ -En hvaó með bæinn sjálf- an, finnst þér hann hafa breyst á þessum tíu árum? „Bærinn hefur breyst mikið til batnaðar, það er kominn golfvöllur, það er að koma nýtt íþróttahús og mikið hefur verið byggt á þessum árum. Þegar ég var hér 1982-1983 var t.d. ekki búið að malbika leiðina inn á Isafjarðarflug- völl svo dæmi sé tekið. Ég sé hlutina með allt öðrum augum nú en ég gerði fyrir tíu árum, en fjöllin eru á sínum stað og ennþá jafn falleg.” Verndaði regn- skóga í sex ár -Hvað hefur þú verið að gera síðan þú fórst frá Isa- firði? „Þegar ég fór héðan fór ég í Háskólann í Massachusetts á austurströnd Bandaríkjannaog var þar í fjögur ár. Þar lærði ég enskar bókmenntir og hvernig á að skrifa smásögur. Þá lærði ég um umhverfió o.fl. Eftir háskólanámið fór ég til Wash- ington DC að vinna hjá um- hverfisvemdarfélagi frá Alaska sem hafði það að markmiði að vernda regnskóga Alaska. Ég vann í Washington DC í eitt ár og fór síðan til Alaska þar sem ég var í sex ár. Fyrsta árið var ég við veiðar á laxi og lúðu á haf- svæðinu undan strönd Alaska. Síðustu fimm árin hef ég unnið að mestu leyti hjá um- hverfisverndarfélaginu og stundað veiðarnar yfir sumar- tímann. Aöalstarf okkar hjá umhverfisvemdarfélaginu var að hjálpa íbúum Alaska að lifa lífinu í sínu landi án utan- aðkomandi áhrifa. Éghef lítið á móti hvalveiðum eða öðrum veiðum en öll veiði verður að vera í hófi. Ég vil að fólk geti lifað á sínu landi, sátt við náttúruna og menn.“ / Island var eitt af óskalöndunum -En hvernig stóð á því að þú valdir Islands til að stunda nám sem skiptinemi og af hverju Isafjörð? „Ég kom frá suður Kali- forníu og þar sem ég gat ekki valið um staö skrifaði ég niður óskalönd. Það voru Sviss, Svíþjóð, Noregur, Grænland og Island. Ég vildi fara til þessara landa vegna þess að þau voru svo ólík því sem ég hafói lifað við. Eg sé það núna að koma mín til Isa- fjarðar var það besta sem fyrir mig gat komió. Hérna tókst mér að læra nokkuð í íslensku og þakka ég það hversu bærinn er lítill, allir þekkja alla og líka það að ég var eini skiptineminn í skól- anum og því varð ég að tala íslensku til að skilja skóla- félaga mína. Þá var fjölskylda mín, þau Hafsteinn og Halla mér mjög hjálpleg. Þau reynd- Afmœlisbarnið Chris Finch við blómagjafímar að skemmtun lokinni. Chris í góðum félagsskap vina sinna þeirra Rúnars Jónatanssonar, Hrefnu Sif Heiðardóttur og Mörtu Magnadóttur. Halla „mamma” og Þórður Einarsson stjoma hér einum af mörgum leikjum kvöldsins. ust mér frábærlega vel og þeim á ég mikið að þakka.“ / A leið kringum hnöttinn Blaðamaóur getur staðfest það að Chris hefur lært ís- lenskuna vel á ekki lengri tíma og fór viðtalið allt fram á íslensku enda blaðamaður kannski ekki sá besti á enskri tungu. En hvað ætlar Chris að dvelja hér lengi að sinni? „Ég verð í eina viku í við- bót. Þá fer ég með Höllu og Hafsteini til Þingvalla og þaðan til Reykjavíkur að heimsækja fjölskyldu þeirra og vini mína sem fluttir eru frá Isafirði til Reykjavíkur. 3. ágúst fer ég síðan til London og þaðan til Togo í vestur Afríku þar sem ég ætla vera í einn eða tvo mánuði í heim- sókn hjá systur minni. Band- arískir vinir mínir koma síðan til Afríku og þaðan ætlum við annað hvort yfir Sahara eyði- mörkina eða í regnskógana í Zaire og þaðan til Evrópu. Ég vonast til að við komust í framhaldi af því í kringum hnöttinn og ég reikna með að það ferðalag taki 5-12 mán- uði. Síðan förum við heim.“ -Hvenær á Chris von á því að koma næst til Islands? „Vonandi kem ég sem fyrst. Það verða ekki tíu ár þangað til ég kem aftur. Ég vona líka að Hafsteinn, Halla og Dag- björt láti sjá sig í Banda- ríkjunum en þau hafa hótað mér því að koma ekki fyrr en ég hef kvænst og því er völin hjá mér“” sagði þessi geðþekki Bandaríkjamaður í samtali við BB. Blaðið óskar honum góðrar ferðar umhverfis hnött- inn og við vonum að hann verói búinn afinna sér ekta- maka áður en íslensku „for- eldrarnir'* verða komnir á elli- heimili, þótt á besta aldri séu í dag. -í.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.