Bæjarins besta - 20.10.2016, Qupperneq 4
4 FIMMTudagur 20. OKTÓBER 2016
Útgefandi: Athafnagleði ehf., kt. 690715-0740
Afgreiðsla og ritstjórn: Mánagötu 2, Ísafirði, sími 456 4560
Ritstjóri BB og bb.is: Bryndís Sigurðardóttir, 896 9838, bb@bb.is
Ábyrgðarmaður: Bryndís Sigurðardóttir.
Blaðamaður: Smári Karlsson, 866-7604, smari@bb.is
Auglýsingar: Sími 456 4560, auglysingar@bb.is
Prentvinnsla: Litróf ehf.
Upplag: 2.200 eintök
Dreifing: Íslandspóstur. Dreift án endurgjalds inn á öll
heimili á norðanverðum Vestfjörðum
Stafræn útgáfa: www.bb.is / facebook.com/pages/bbis
Önnur útgáfa: Á ferð um Vestfirði
ISSN 1670-021X
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið bb@bb.is.
Auglýsingar þurfa að berast fyrir kl. 17 á mánudögum
fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum.
Ritstjórnargrein
Stundin nálgast
Spurning vikunnar
Á hvaða málefni leggur þú áherslu í þessum kosningum?
Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur
látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér.
Alls svöruðu 352
Menntamál, sögðu 11 eða 3%
Samgöngur, sögðu 96 eða 27%
Umhverfismál, sögðu 16 eða 5%
Menningarmál, sögðu 8 eða 2%
Heilbrigðismál, sögðu 116 eða 33%
Utanrískismál, sögðu 5 eða 1%
Lýðræði, stjórnarskrá og spilling, sögðu 37 eða 11%
Atvinnumál, sögðu 42 eða 12%
Annað, sögðu 21 eða 6%
Þitt atkvæði skiptir máli er frasi sem þarf að endurtaka í sífellu því
með kosningum tökum við sameiginlega ákvörðun um hvað það er
sem skiptir máli í okkar samfélagi. Þó margir haldi því fram að þeir
séu ekki „pólitískir“ hafa allir skoðanir á samfélaginu okkar, með
einum eða öðrum hætti svo öðrum frasa sé slegið á loft. Hverjum
er slétt sama um aðgang að heilbrigðisþjónustu eða menntun, hver
hefur enga skoðun á samgöngum, mokstri og hvað það er dýrt að
fljúga suður, hvort við séum með eða móti fiskeldi og hvort ferða-
þjónustan sé málið. Að finna svo skoðunum sínum farveg í þeim
valkostum sem bjóðast er annað mál og hvort valkostirnir standa
svo við stóru orðin er líka annar handleggur. Það er hins vegar
ekkert vit í öðru en að reyna að finna framboð sem fellur best að
lífsýninni, er trúverðugt og býður til starfans gott og heiðarlegt fólk.
bb.is spurði á dögunum lesendur sína um fyrirhugaða kosninga-
þátttöku, hvort þeir ætluðu að kjósa sama og síðast, eitthvað allt
annað, sleppa því að kjósa eða ekki gert upp hug sinn. Fjórðungur
svarenda reyndist óákveðinn og rúmur þriðjungur ætlaði ekki að
kjósa það sama og síðast. Það er því ljóst að miklar breytingar eru
í aðsigi. Ef skoðuð eru svör vikunnar við spurningunni um áherslu-
atriði þá eru heilbrigðis- og samgöngumál það sem eru lesendum
bb.is ofarlega í huga. Það má því leiða að því líkum að þeir sem
kjósa annað núna en síðast geri það vegna vonar til nýs framboðs í
þessum efnum, eða vonbrigða með það sem síðast var kosið.
Næst á eftir samgöngumálum og heilbrigðismálum eru það at-
vinnumál, lýðræði, stjórnarskrá og spilling sem fólki liggur á hjarta
og vonandi að umsækjendur um starf á alþingi hafi það í huga í
þeim ráðningarsamtölum sem nú fara fram, milli þeirra og kjósenda.
Bæjarins besta og bb.is er ætið opið fyrir lýðræðislega umræðu
og reynir eftir megni að koma sem flestum sjónarmiðum á framfæri.
BS
Auglýsing um styrki vegna
námskostnaðar eða verkfæra-
og tækjakaupa fatlaðs fólks
Byggðasamlag Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks vekur athygli á rétti
fólks til að sækja um styrki skv. 27.grein laga nr. 59/1992 um málefni
fatlaðs fólks, með síðari breytingum.
Byggðasamlaginu er heimilt að veita styrk til greiðslu námskostnaðar
sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda telst
námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing. Einnig er heimilt að
veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk til verkfæra og tækjakaupa í
sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfssemi, enda teljist starf-
semin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að
því að auðvelda fötluðu fólki að skapa sér atvinnu.
Umsóknafrestur er til 13. nóvember 2016 og skulu umsóknir berast
til félagsþjónustu lögheimilissveitarfélags, umsóknaeyðublöð og reglur
um styrki vegna námskostnaðar eða verkfæra- og tækjakaupa eru að
finna hjá viðkomandi félagsþjónustu.
• Félagsþjónustan við Djúp, Aðalstræti 12, 415 Bolungarvík, sími
450-7000/ 450-5900 www.bolungarvik.is / www.sudavik.is
• Fjölskyldusvið Ísafjarðarbæjar, Hafnarstræti 1, 400 Ísafjörður, sími
450-8000 www.isafjordur.is
• Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps, Höfðagötu 3, 510
Hólmavík, sími 451-3510/ 434-7880 www.strandabyggd.is / www.reyk-
holar.is
• Félagsþjónusta Vestur- Barðastrandarsýslu, Aðalstræti 75, 450
Patreksfjörður, sími 450-2300/ 456-2539 www.vesturbyggd.is / www.
talknafjordur.is
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
VR óskar eftir
orlofshúsum
VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofsíbúðum á leigu
til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði á
landsbyggðinni fyrir næsta sumar. Áhugasamir sendi upplýsingar
á vr@vr.is fyrir 15. nóvember 2016.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði:
- Lýsing á eign og því sem henni fylgir
- Ástand íbúðar og staðsetning
- Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár
- Lýsing á möguleikum til útivistar og
afþreyingar í næsta nágrenni
Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir
og lýsing á umhverfi fylgi með.
Öllum tilboðum verður svarað.