Bæjarins besta - 20.10.2016, Síða 5
FIMMTUdagUr 20. OKTÓBER 2016 5
AVS rannsóknasjóður hefur að markmiði að styrkja verkefni, sem stuðla að auknu verðmæti
ís lensks sjávarfangs og styrkja samkeppnishæfni ís lensks sjávarútvegs og fiskeldis. Sjóðurinn
aug lýsir nú eftir umsóknum í verkefni með þetta að mark miði. Skilafrestur umsókna er til kl.
20, 1. des ember 2016. Umsóknum ber að skila rafrænt á net fangið avs@byggdastofnun.is og
bréflega á póst fangið Byggðastofnun v/AVS rannsóknasjóður í sjávar útvegi, Ártorgi 1, 550
Sauðárkrókur. Vakin er at hygli á því að umsóknum þarf bæði að skila raf rænt og bréflega.
Styrkir sem sjóðurinn veitir
falla undir tvo flokka:
a. Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna
Styrkir til afmarkaðra rannsókna- og/eða þró unar-
verk efna, sem falla að markmiðum sjóðs ins. Veittur
er styrkur til eins árs í senn og skal í umsókn gera
grein fyrir verk þáttum og fjár mögnun. Hver styrkur
getur numið allt að átta milljónum króna. Hægt er að sækja um styrki til umfangsmeiri verk-
efna (fram haldsverkefna), sem unnin eru á lengri
tíma, eða allt að þremur árum, en sækja þarf um
styrk á hverju ári. Hafi verk efnið áður verið styrkt,
þarf að gera grein fyrir fram vindu þess áður en
styrk umsókn er afgreidd.
b. Smá- eða forverkefni
Hægt er að sækja um styrki til smærri verkefna eða
til að undir búa stærri verkefni á sviði rann sókna og/
eða þró unar. Styrkupphæð er allt að einni milljón
króna og skal verk efnið unnið innan tólf mánaða.
Um alla styrki gildir að framlag
sjóðsins má ekki fara fram
yfir 50% af heildarkostnaði og
sjóðurinn tekur ekki þátt í að
styrkja fjárfestingar
Nánari upplýsingar og
umsóknarblað er að finna á
heimasíðu sjóðsins www.avs.is
AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi ∙ Ártorgi 1 ∙ 550 Sauðárkrókur ∙ sími 455 5400 ∙ www.avs.is
AVS rannsóknasjóður í sjávar útvegi
starf ar á vegum Atvinnu vega- og
nýsköp unar ráðu neytis
AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi
auglýsir eftir umsóknum
Nú, þegar einungis er rúm
vika til kosninga, eru stjórnmál
í brennidepli í fjölmiðlum.
Stjórnmálaflokkarnir keppast
við að ná til sem flestra kjósenda
og fylla huga þeirra loforðum
sem staðið verður við eftir
kosningar – mögulega kannski,
ef ekki þá er alltaf hægt að bera
fyrir sig pólitískan ómöguleika.
Þetta virðist hafa verið viður-
kenndur leikvöllur stjórnmála-
manna hingað til. Núna viljum
við hins vegar breyta leikreglun-
um og, í framhaldinu, leikvell-
inum í heild sinni. Píratar eru
flokkur sem boðar nýja nálgun
á stjórnmál þar sem gagnsæi
og upplýst ákvörðunartaka eru
Við erum framtíðin
í fyrirrúmi. Við viljum efla borg-
araréttindi og færa valdið aftur
til fólksins. Því er mikilvægt
að fólkið kjósi sér fulltrúa inn
á þing sem munu hlusta á það
sem almenningur hefur að segja.
Þetta er sérstaklega mikilvægt á
landsbyggðinni, sem hefur oft á
tíðum vantað talsmenn. Lands-
byggðin er vissulega fámennari
heldur en höfuðborgarsvæðið en
hefur að geyma gríðarleg verð-
mæti fyrir land og þjóð. Það er
mjög mikilvægt að styðja vel við
byggðarlög á landsbyggðinni og
sporna við þeim gífurlega fólks-
flótta sem hefur orðið þaðan. Oft
á tíðum er ungt fólk tilneytt til
þess að leita til höfuðborgarinn-
ar ef það vill sækja sér sérhæfðar
menntunar en myndi gjarnan
vilja, að námi loknu, snúa aftur
til heimabyggðar og setjast þar
að til framtíðar með fjölskyldur
sínar. Hins vegar getur lélegt
aðgengi að grunnþjónustu og
störfum haft mikil áhrif á þá
ákvörðun.
Við sem skipum baráttusæti
Pírata í Norðvesturkjördæmi
erum þessu kunnug af eigin
raun.
Eva Pandora Baldursdóttir
skipar 1. sæti listans en hún er
fædd og uppalin í Skagafirði
og hefur búið þar stærstan
hluta ævi sinnar að frátöldu
einu ári erlendis og sex árum
í Reykjavík til þess að afla sér
háskólamenntunar. Að námi
loknu snéri hún aftur í heima-
byggð og hefur nú stofnað þar
fjölskyldu. Þó svo að yndislegt
sé að hafa snúið aftur heim er
ýmislegt sem mætti vera betra.
Heilbrigðiþjónustu er verulega
ábótavant þar sem heilsugæslur
hafa of lengi verið fjársveltar og
geta þar af leiðandi ekki sinnt
grunnþjónustu sem ætti að vera
til staðar í þéttbýli. Oft á tíðum
hafa þessar heilsugæslur góða
aðstöðu og jafnvel starfsfólk á
staðnum til þess að sinna þess-
um verkefnum sem vantar en
skortir einungis fjármagnið. Ef
ungt fólk þarf að sækja langt til
þess að verða sér úti um aðgang
að grunnheilbrigðisþjónustu á
borð við aðgang að fæðingar-
deild, ungbarnavernd o.fl. er
eðlilegt að hugsa sig tvisvar
um áður en festar eru rætur. Ef
ekki er hægt að stofna og ala
upp fjölskyldu í byggðarlagi án
þess að þurfa að fara í langar,
og oft hættulegar, ferðir yfir
fjöll og firnindi í öllum veðrum
hefur eitt af skilyrðum öruggrar
búsetu á landsbyggðinni brostið.
Gunnar Ingiberg Guðmunds-
son skipar 2. sæti listans en
hann er búsettur á Ísafirði ásamt
unnustu sinni en þau eiga von á
barni í vetur. Gunnar er mennt-
aður vél- og skipstjórnarmaður
og hefur hann starfað seinustu
þrjú ár í strandveiðikerfinu með
sína eigin útgerð. Hann þekkir
því af eigin raun hversu erfitt
er að stunda þessa atvinnu sér
til lífsviðurværis í núverandi
sjávarútvegskerfi. Hægt er að
líta á það sem ákveðinn erfðarétt
Íslendinga að geta stundað sjó
sér og sínum til lífsviðurværis
og með því að festa þennan rétt í
sessi breytum við vaxtarskilyrð-
um smærri þéttbýliskjarna við
strendur landsins. Þegar einstak-
lingum er aftur gert mögulegt að
nýta þennan erfðarétt sinn og
stunda sjó eflir það og glæðir
byggðarlagið og stuðlar að auk-
inni atvinnuuppbyggingu og þar
af leiðandi verður fýsilegra fyrir
ungt fólk að snúa aftur heim.
Við erum ungt fólk af lands-
byggðinni sem stefnum á Al-
þingi til þess að breyta stjórn-
kerfinu til hins betra og stuðla
að uppbyggingu landsbyggðar-
innar. Við þurfum ekki að spyrja
okkur hvað unga fólkið myndi
mögulega vilja til þess að snúa
aftur heim. Við erum unga fólk-
ið. Við erum framtíðin.
Höfundar eru Eva Pandora
Baldursdóttir og Gunnar Ingi-
berg Guðmundsson.
Gunnar Ingiberg
Guðmundsson.
Eva Pandora Baldursdóttir.
Hópur hagsmunaaðila hefur
stofnað málssóknarfélag og
ætla að krefjast þess fyrir dómi
að starfsleyfi fiskeldisfyrirtæk-
isins Arnarlax á Bíldudal verði
ógildað. Á vef RÚV er greint
frá að Jón Steinar Gunnlaugs-
son er lögmaður hópsins og í
málssókninni verður vísað til
að eldislax sem sleppur úr sjó-
kvíum geti spillt náttúrulegum
stofnum í veiðiám samkvæmt
norskum rannsóknum.
Aðild að málssóknarfélaginu
Málssókn gegn sjó-
kvíaeldi Arnarlax
Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardóm-
ari, er lögmaður hópsins. Mynd: Sigtryggur Ari / DV.
hafa meðal annars eigendur
Haffjarðarár á Snæfellsnesi,
veiðifélag Laxár á Ásum og
veiðiréttarhafar í Bakkadal og
Fífustaðadal.
„Það er sem sagt búið að
gefa út starfsleyfið. Dómkraf-
an verður um að ógilda það og
þar verða fyrir til varnar bæði
fyrirtækið sjálft og stofnanir
ríkisins sem gáfu út leyfið,“
segir Jón Steinar í samtali við
fréttastofu RÚV.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi
Guðmundur Hafsteinn
Kristjánsson
bílstjóri frá Bolungarvík
lést aðfararnótt föstudagsins 14. október
Fyrir hönd fjölskyldunnar
Jónína Þuríður Sveinbjörnsdóttir