Bæjarins besta - 20.10.2016, Síða 8
8 FIMMTudagur 20. OKTÓBER 2016
G. Valdimar Valdemarsson
framkvæmdastjóri
1. sæti
Norðvestur
xAK J Ó S T U
B J A R T A
F R A M T Í Ð
Viltu hætta að borga húsnæðislánið
þitt margfalt til baka?
M E I R I B J A R T A F R A M T Í Ð
M I N N I O K U R V E X T I
Ég heiti G. Valdimar Valde-
marsson og skipa 1. sætið á lista
Bjartrar framtíðar í Norðvestur
kjördæmi.
Ég er giftur Sigurlínu H.
Steinarsdóttur úr Borgarnesi og
við eigum saman eina dóttur en
fyrir átti hún tvær.
Ég er fæddur og uppalinn á
Skagaströnd, lærði forritun strax
eftir grunnskóla en fór síðan í
Samvinnuskólann á Bifröst og
síðar í framhaldsnám í kerfis-
fræði og hagfræði til Noregs. Ég
hef unnið mest allan starfsaldur
við hugbúnaðargerð og frá 1991
í eigin fyrirtæki.
Byggðamál
Ég hef alltaf verið áhugasamur
um byggðamál og hagsmuni
landsbyggðarinnar og tel að það
sé mikið verk að vinna við að
bæta stjórnsýsluna og tryggja
sjónarmið dreifðra byggða í
ákvörðunartöku. Það er stund-
um sagt að við séum ekki með
byggðastefnu á Íslandi og það
er mikið til í því. Stjórnmálin
hafa forðast að skilgreina grunn-
þjónustu og þjónustustig og það
vantar alla mælikvarða eins og
vegalengdir til þjónustunnar,
lágmarks ásættanleg þjónusta
og réttur íbúa til að fá þjónustu
á sambærilegum kjörum. Þessu
vil ég breyta, ég vil taka þátt í að
skilgreina þjónustustig og gera
áætlun um hvernig við byggj-
um upp ásættanlega þjónustu
í heilbrigðiskerfi, menntakerfi
og annarri opinberri þjónustu.
Þetta tel ég reyndar best gert með
því að stofnað verði ráðuneyti
byggðamála sem hefur á einni
hendi yfirsýn yfir byggðamálin
og tryggir að þau sjónarmið séu
alltaf með í allri ákvörðunartöku.
Opinber þjónusta
Ég tel mikilvægt til að tryggja
góða þjónustu og eins og ekki
síður til að skapa fjölbreyttari
störf að opinberar stofnanir veiti
þjónustu þar sem íbúarnir eru
og séu með starfssemi um allt
land. Við getum til dæmis tekið
Norðmenn okkur til fyrirmyndar
en þeir settu fyrir áratugum ráðn-
ingarbann á opinbera starfsmenn
í höfuðborginni og fólu forstöðu-
mönnum ríkisstofnananna að
byggja þær upp með þjónustu
fyrir allt landið að leiðarljósi. Þeir
ganga svo langt að þeir skerða
fjárframlög til stofnanna sem
ekki fylgja þessari stefnu. Þessa
leið tel ég að við ættum að fara
á Íslandi þar sem forstöðumenn
stofnananna eru miklu betur til
þess fallnir að skipuleggja starf-
semina en þingmenn. Verkefni
þingmanna er að setja markmið
og reglur og stofnananna að fara
eftir þeim.
Menntun og rannsóknir
Ég tel mikilvægt að Íslendingar
verji meira fjármagni í menntun
og rannsóknir og það mun skila
sér í betri ákvörðunartöku og
meiri sátt í samfélaginu. Það er
mikilvægt að byggja upp öflug
rannsóknarsetur háskóla í öllum
landshlutum og reynslan sýnir
að það skilar sér í fjölbreyttum
störfum og laðar fram sérstöðu
einstakra landshluta og styrk-
leika þeirra. Aukið fjármagn í
menntastofnanir, til rannsókna
og til þess að styðja við bakið á
námsmönnum mun gera íslenskt
skólakerfi samkeppnishæft en
það er staðreynd í dag að fram-
haldsnám er í harðri alþjóðlegri
samkeppni og það er nauðsyn að
við séum ekki eftirbátar annarra
þjóða. Þannig tryggjum við ungu
fólki tækifæri og aukum þekk-
ingu okkar á þeim möguleikum
sem við eigum í okkar stóra landi.
Landbúnaður og sjávarútvegur
Víða um land eru landbúnað-
ur og sjávarútvegur undirstaða
atvinnu og mikilvægt að hlúð
sé að þessum greinum m.a með
nýjum framsæknum búvöru-
samningi sem eykur frelsi bænda
til að nýta þau tækifæri sem eru
í sveitum og á einstökum bú-
jörðum og til frekar fullvinnslu
og markaðssetningu afurða. Það
sama má segja um sjávarútveg,
stjórnvöldum ber að standa vörð
um öflugan sjávarútveg og gæta
þess að stjórnvaldsákvarðanir
verði ekki til að draga úr hag-
kvæmni hans eða stuðli beinlínis
að byggðaröskun.
Að lokum innviðirnir
Það er tímabært að gera átak
í að byggja upp innviði lands-
byggðarinnar til að tryggja
samkeppnishæfni atvinnufyrir-
tækja og auka lífsgæði fólks. Ég
vil beita mér fyrir uppbyggingu í
vegakerfi, dreifingu rafmagns og
fjarskiptum. Það verður best gert
með innlendri lántöku ríkissjóðs
sem færir fjármagn til í hagkerf-
inu í fjárfestingu í innviðum og
mun því ekki eitt sér auka þenslu
heldur skila traustari innviðum.
Innlend lántaka dregur fjármagn
frá heitum svæðum og mörkuð-
um þar sem þenslu er farið að
gæta og í arðbæra fjárfestingu í
innviðum.
Sími
568 6880
Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Sími 568 6880 | www.heyrnartaekni.is
Ísafjörður - 2. nóvember
Vantar þig heyrnartæki?
Heyrnarmælingar, ráðgjöf og heyrnartækjaþjónusta
Árni Hafstað heyrnarfræðingur verður á Ísafirði við heyrnarmælingar, ráðgjöf og sölu
heyrnartækja. Mikið úrval af hágæða heyrnartækum. Sérsmíðuð í eyra eða næstum
ósýnileg bak við eyra. Margir verðflokkar.
Bókaðu tíma í heyrnarmælingu og
fáðu heyrnartæki til prufu
Sími 568 6880
Í Árneshreppi á Ströndum
fóru nú á dögunum fram tökur
á ofurhetjumyndinni Justice
League og flykktust stórstjörn-
ur til þessa stórbrotna staðar í
norðri til að taka þátt í ævintýr-
inu. Tökur hófust í þar síðustu
viku og tíndust stjörnurnar
til landsins ein af annarri til
Djúpuvíkur. Þeir Willem Dafoe
sem leikur Nuidis Vulko og
Jason Momoa sem leikur Aqu-
aman komu í þar síðustu viku
og síðan bættust í hópinn Ben
Affleck sem leikur Batman og
leikkonurnar Amber Heard sem
leikur Meru og Gal Gadot sem
er í hlutverki Wonderwoman í
myndinni.
Það eru ófáir einstaklingar
sem vinna við myndina sem
er í leikstjórn Zack Snyder og
er talið að um 200 manns hafi
dvalist á svæðinu vegna fram-
leiðslunnar sem var hér á landi
í gegnum framleiðslufyrirtækið
True North. Ekki var heiglum
hent að fá samband við innan-
búðarfólk og voru Strandamenn
þöglir sem gröfin um það
sem fram fór í Árneshreppi
þessa daga. Eitthvað hefur
þó birst af myndum á netinu
og hefur þar farið fremstur í
flokki Jason Momoa sem hefur
deilt þónokkrum myndum með
fylgjendum sínum á Instagram.
Hann kemur upprunalega frá
Havaí og líkir umhverfinu á
Ströndum við heimahagana.
Ekki hefur áður komið kvik-
myndaverkefni til Vestfjarða af
viðlíka stærðargráðu og líklegt
verður að teljast að hróður og
einstök náttúrufegurð þessa
fámenna svæðis muni berast
víða er myndin fer í sýningar á
næsta ári. annska@bb.is
Stjörnufans
á Ströndum
Mynd af Instagram-síðu Jason Momoa þar sem hann sést
ásamt leikstjóranum Zack Snyder.