Bæjarins besta


Bæjarins besta - 20.10.2016, Síða 9

Bæjarins besta - 20.10.2016, Síða 9
FIMMTUdagUr 20. OKTÓBER 2016 9 Ráðning orkubússtjóra Orku- bús Vestfjarða uppfyllir tæplega kröfur um faglega og góða stjórnarhætti og mörgu ábóta- vant við ráðningarferlið. Þetta kemur fram í skýrslu Ríkis- endurskoðunar um starfshætti stjórnar Orkubúsins. Óeining var innan stjórnar um ráðninguna og sagði Árni Brynjólfsson sig úr stjórn Orkubúsins eftir að stjórnin ákvað að ráða Elías Jónatansson. Hann gagnrýndi ráðningarferlið harkalega í frétt bb.is í vor. Í öllum megindráttum tekur Ríkisendurskoðun undir gagnrýni Árna. 25 umsækjendur voru um starf orkubússtjóra. Ráðningar- skrifstofan Hagvangur var stjórn Orkubúsins innan handar við ráðninguna. Ráðgjafar ráðningarskrifstof- unnar og fulltrúar stjórnarinnar völdu í sameiningu fimm um- sækjendur sem taldir voru upp- fylla best þær hæfniskröfur sem gerðar voru til starfsins. Þessir fimm umsækjendur fóru í viðtöl hjá Hagvangi en Viðar Helgason, stjórnarformaður Orkubúsins, og Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, varaformaður stjórnar, tóku einnig þátt í viðtölunum. Veikleiki á matsferli Hagvangs Í sérstöku minnisblaði, dag- settu 10. mars 2016, gerðu fulltrúar ráðningarskrifstofunnar grein fyrir mati sínu á hæfni tveggja hæfustu umsækjendanna með hliðsjón af menntunar- og hæfniskröfum. Í þessu minnis- blaði er ekki leitast við að bera umsækjendurna tvo sérstaklega saman eða gera upp á milli þeirra með tilliti til menntunar þeirra, starfs- og stjórnunarreynslu og rekstrarþekkingar, samskipta- og leiðtogahæfni, sóknarhugar eða sýnar á framtíð Orkubúsins. Lokaniðurstaðan var einfaldlega sú að „báðir þessir aðilar væru hæfir til að gegna starfi Orku- bússtjóra Vestfjarða“. Um þá þrjá umsækjendur sem heltust úr lestinni er ekki heldur fjallað í minnisblaðinu og engin rök færð fyrir því að þeir þóttu lakari kostur en þeir tveir sem hlutu áframhaldandi brautar- gengi. Ríkisendurskoðun segir að þetta hljóti að teljast nokkur veikleiki á matsferlinu. Var ekki ljóst að það ætti að ganga frá ráðningu í síma Hinn 9. mars 2016, þ.e. daginn áður en minnisblað Hagvangs var dagsett, sendi formaður stjórn- ar Orkubús Vestfjarða öðrum stjórnarmönnum tölvubréf og boðaði til fundar daginn eftir. Lagt var til að um símafund yrði að ræða þar sem tveir stjórnar- menn væru staddir erlendis. Í tölvubréfinu kom fram að viðtöl- um við umsækjendur væri lokið og væri ráðningarskrifstofan að vinna umsögn um niðurstöður þeirra. Tilgangur símafundarins væri „að ræða áherslur okkar og næstu skref“. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir að það hafi komið a.m.k. tveimur stjórnarmönnum nokkuð á óvart hvernig símafundurinn þróaðist og eins og kunnugt er sagði annar þeirra sig úr stjórninni eftir að atkvæðagreiðslu lauk. Í tölvubréfi til annarra stjórnar- manna frá 19. mars 2016, þ.e. rúmri viku eftir að símafundurinn var haldinn, komst hinn svo að orði: „Í upphafi fundar var mér það ekki ljóst að við værum að fara að ganga frá ráðningu í síma.“ Í sama tölvubréfi þessa stjórn- armanns kom einnig fram að hann hefði viljað fá meiri tíma og eiga meiri hlut í þessu stóra ráðningarmáli. Jafnframt hefði verið mikilvægt að fá ítarlegri útlistun á því hvað nákvæmlega olli því að aðrir umsækjendur en þeir tveir sem stóðu eftir í lokin heltust úr lestinni. Þá hefði álit ráðningarskrifstofunnar ekki sagt margt annað en að tveir um- sækjendur væru taldir hæfastir. Ýmislegt hefði því betur mátt fara. Þessi stjórnarmaður sam- þykkti engu að síður ráðningu nýs orkubússtjóra á fundinum eins og þrír aðrir stjórnarmenn. Stríðir gegn reglum Orkubús­ ins og hlutafélagalögum Ríkisendurskoðun segir það vekja athygli að umrætt minn- isblað Hagvangs frá 10. mars var ekki sent sem fundargagn stjórnarmönnum til upplýsingar og undirbúnings heldur var einungis gerð grein fyrir efni þess á símafundinum. Þetta stríðir gegn starfsreglum Orkubúsins um að fundargögn skuli að jafn- aði send stjórnarmönnum minnst tveimur dögum fyrir boðaðan fund. Ríkisendurskoðun vekur athygli á því að samkvæmt lögum um hlutafélög megi ekki taka mikilvæga ákvörðun án þess að allir stjórnarmenn hafi haft tök á því að fjalla um málið sé þess kostur. Ríkisendurskoðun finnur að því að stjórnarformaður Orku- búsins gætti hvorki að starfsregl- um stjórnar Orkubús Vestfjarða né lögum um hlutafélög þegar hann hafnaði því að gera í fundar- gerð grein fyrir þeirri eindregnu ósk Árna Brynjólfssonar að það yrði sérstaklega bókað að hann styddi ekki fyrirhugaða ráðningu orkubússtjóra. Ríkisendurskoðun tók einnig til skoðunar námsleyfi og starfs- lok Kristjáns Haraldssonar, fyrr- verandi orkubússtjóra. Ekki er gerð athugasemd við námsleyfið en Ríkisendurskoðun telur eðli- legt að um slík leyfi verði settar fastmótaðar reglur, m.a. um lengd þeirra. smari@bb.is Mörgu ábótavant við ráðningu orkubússtjóra Dögun er afl breytinga sem vill koma á réttlátu samfélagi. Mikilvægt er að ákvarðanir séu teknar út frá heildarhagsmunum en ekki út frá þröngum sérhags- munum. Þess vegna þarf að hreinsa samfélagið af stjórnmála- mönnum; skattaskjóla, kúlulána og einkavinavæðingar. Dögun vill afnema verð- trygginguna en losa þarf um hnútinn í maga margra kjósenda sem svikamyllan verðtryggingin veldur. Það er ósanngjarnt að öll verðbólguáhætta leggist alfarið á lántakendur, en sanngjarnt er að skipta henni á milli fjármála- fyrirtækja og skuldara. Lækka þarf vexti en háir vextir þjaka fyrirtæki og heimilin. Dögun vill koma á samfélagsbanka sem veitir lán á sanngjörnum vöxtum og greiðir ekki bankabónusa. Ég mun beita mér fyrir frjáls- um krókaveiðum dagróðrabáta en það hleypir lífi í sjávarbyggð- irnar. Fiskur er staðbundinn, einkum á uppvaxtarskeiði og því mikilvægt að dreifa veiðum og nýta fiskimið á flóum og í fjörðum. Standa þarf vörð um heil- brigðisþjónustuna og ekki síður menntastofnanir. Eðlileg krafa hverrar fjölskyldu er að hún hafi greiðan aðgang að góðri heilbrigðisþjónustu og menntun fyrir þá sem landið erfa. Í umræðu um hvar og til hvaða verkefna skattfé er varið er rétt að halda á lofti þeirri staðreynd að flutningur er á skattfé til höfuð- borgarsvæðisins frá dreifbýlinu. Mikilvægt er að stjórnmála- menn styðji við athafnagleði og hugmyndir fyrirtækja og einstak- linga. Tækifærin eru fjölbreytt og stór í atvinnumálum á Vestfjörð- Dögun fyrir Vestfirðinga um. Nú er fyrirhuguð sókn í fisk- eldi og ferðaþjónustunni vítt og breitt um Vestfirði. Skynsamlegt er að beita sér fyrir uppbyggingu vinsælla ferðamannastaða á borð við Dynjandafoss, Látrabjargs og friðlandsins á Hornströndum. Komast verður frá þeirri bábilju að samgöngubætur séu kostnað- ur eða gjafir stjórnmálamanna til íbúa. Góðar samgöngur eru arðsamar. Borðleggjandi er að heimta strax nútímalegar sam- göngur á Vestfjörðum, til þess að tryggja framþróun atvinnulífsins. Dögun styður virkjun Hvalár sem tryggir rafmagnsöryggi og gefur kost á frekari uppbyggingu atvinnulífs. Skipuleg nýting og uppbygging á friðlöndum sem heimamenn hafa verulegan hag af, er ein áhrifaríkasta leiðin til náttúru- verndar. Í viðhorfum ferðaþjóna á Hornströndum sem vilja halda fiskeldiskvíum í hæfilegri fjar- lægð frá friðlandinu kristallast sú sýn. Gæta verður að því að upplifun ferðamanna truflist ekki í ævintýralöndum Jökulfjarða og Hornstranda. Á síðustu tveimur kjörtímabil- um hefur orðið mikil fækkun á ríkisstörfum á svæðinu. Í lok kjörtímabila kemur jafnan karamella fyrir kjósendur. Kara- mellan sem gefin er í lok kjör- tímabils er jafnan miklu minni, en það sem tekið var í burtu. Leita þarf nýrra leiða til að tryggja ríkisstörf. Búa þarf til hvata inn í opinbera stofnanaum- hverfinu til að flytja verkefni frá ríki til sveitarfélaga. Það mætti hvetja opinberar stofn- anir til að staðsetja starfsmenn utan höfuðborgarinnar sem gæti falist í auknum fjárveitingum til stofnana sem staðsetja störf á landsbyggðinni. Flytja ber menningarmál í meira mæli frá ríki til sveitarfé- laga. Sveitarfélögin fái þannig sjálf að nýta það skattfé sem nú rennur til menningarstarfs á höfuðborgarsvæðinu, í meira mæli heima í héraði og efla þannig menningarstarf og auka fjölbreytni starfa. Sama á við um að gefa íbúum kost á að ráðstafa hluta af afnota- gjaldi RÚV til fjölmiðla heima í héraði á borð við BB á Ísafirði Landsbyggðafólk standið með hagsmunum ykkar og at- vinnufrelsi – það er best gert með því að kjósa Dögun í komandi kosningum. Sigurjón Þórðarson 1. sæti á lista Dögunar Sigurjón Þórðarson.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.