Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2009, Page 4
4
Að bera rauða borðann er táknmynd samúðar og stuðnings
við hiv-jákvæða og alnæmissjúka.
Rauði borðinn er ekki einungis stuðningsyfirlýsing, heldur
krafa um umræðu og forvarnir, ósk um framfarir í rannsóknum
og von um lækningu.
Rauði borðinn er einnig leið til þess að draga hiv-smit og
alnæmi fram í dagsljósið.
Upphaf rauða borðans má rekja til listamannahópsins Visual
AIDS í Bandaríkjunum, samtaka listamanna, listfræðinga og
forstöðumanna listasafna. Inntakið er: hiv og alnæmi kemur okkur
öllum við!
Alþjóðlegi alnæmisdagurinn 1. desember
Dagur rauða borðans
Alþjóðlegi alnæmisdagurinn - þriðjudaginn 1. desember næstkomandi.
Að Hverfisgötu 69 verður opið hús, boðið upp á kaffihlaðborð og miklar
hnallþórur milli kl. 16.00 og 19.00.
Listamenn koma í heimsókn, með söng og upplestur.
Ungliðahreyfing Samtakanna 78 verður með gjörning í tilefni dagsins.
Yfirskrift dagsins í ár er:
Jafnt aðgengi og jöfn mannréttindi um allan heim
Universal Access and Human Rights