Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2009, Side 5
Að þessu sinni langar mig að fjalla um hlutverk
aðstandandans. Það er ekki auðvelt hlutverk, síst af öllu
þegar maður lendir fyrst í þessu hlutskipti. Það venst þó
með tímanum og mörgum eða flestum tekst vel til þegar á
líður. En fyrst getur þetta verið ansi flókið. Hvernig bregst
maður við þegar einhver manni nákominn deilir því með
manni að hann eða hún sé hiv-jákvæð(ur)?
Hiv-jákvæður einstaklingur á fullt í fangi með að eiga við
sína eigin fordóma gegn sjúkdómnum þegar hann kemst að
því að hann er smitaður. Flestir nýsmitaðir setja sig í flokk
með sprautufýklum og lauslætisliði. Nýsmitaðir upplifa sig
sem óhreina og skítuga smitbera sem fæstir vilji umgangast.
Þú getur því rétt ímyndað þér hversu erfitt það er að deila
því með einhverjum að maður sé hiv-jákvæður.
Einhverstaðar þar liggur munurinn á hiv og öðrum alvarlegum sjúkdómum. En
það er heldur ekkert auðvelt að bregðast rétt við þegar einhver manni nákominn
velur að deila því með manni að hann/hún sé hiv-jákvæð.
Öll erum við bara af holdi og blóði og erfitt að gera allt rétt í þessu lífi. Það er ansi
hætt við því, sem betur fer, að þeir sem lenda í ofangreindum aðstæðum geri
það ekki oft á ævinni og því erfitt að ætlast til að allir geri það af fullkomnun.
Þín vegna vona ég að þú komist fljótlega að því að vinur þinn, vinkona, mágur,
mágkona, frændi, frænka, systir, bróðir, móðir, faðir, sonur eða dóttir eru ennþá
þau sömu þrátt fyrir veikindi sín.
Gunnlaugur I. Grétarsson
Ljósm.:
Þorgerður Gunnarsdóttir
Þú gætir því átt von á því, að vilji einhver þér nákominn
deila því með þér að hann eða hún sé hiv-jákvæð(ur),
þá gerist það jafnvel ekki fyrr en eftir að hinn smitaði er
búinn að hafa vitneskju um það í einhvern tíma. Líklega
er viðkomandi búinn að hugsa lengi um að segja þér frá
þessu og jafnvel búinn að velta því fyrir sér hvernig þú
munt bregðast við. Þegar hann/hún svo loksins kemur
sér að því, getur verið að það verði allt öðruvísi en hann/
hún ætlaði. Hvernig segir maður annars einhverjum sér
nákomnum að maður sé hiv-jákvæð(ur)?
Það eru einhverjar líkur á því að þú svarir með spurningunni:
hvernig fékkstu það? og það jafnvel áður en þú spyrð þann
sem þér þykir vænt um: hvernig hefurðu það?.
Hugleiðingar formanns