Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2009, Page 9
Á forsíðu Rauða borðans í ár er mynd af armbandi
eftir Brynju Sverrisdóttur. Armbandið er hluti af
hönnunarlínu Brynju í skartgripum, þar sem hún
færir saman hin margbreytilegustu trúartákn og
skapar úr þeim eina heild.
Brynja færði HIV-Íslandi/Alnæmissamtökunum
rautt armband að gjöf og má því líta á þetta rauða
armband sem verndargrip samtakanna.
Í litlu kveri, er Brynja gaf út fyrir tveimur árum,
má lesa að grunnhugmynd verkanna sé sú að
gefa færi á sameiningu fremur en sundrun, á
táknrænan hátt.
Að baki býr löngunin til skilnings í stað
afneitunar. Vitneskjan um andstæður í menningu
og lífsmáta, sem þó á að vera unnt að umbera -
gagnkvæmt. Virðing í stað fordæmingar. Friður
gegn ófriði. Viðurkenning þess að ást okkar hvers
til annars felst í því hve ólík við erum.
Annars væri nú lítið gaman að lifa!
Í rauninni mætti nefna verk Brynju:
Alltumlykjandi ást!
Brynja virðist sækja margt til langafa síns, Erlings
Filippussonar, grasalæknis og græðara. Erlingur
fæddist 1873 og dó 1967. Hann var um margt
á undan sinni samtíð, en um leið hafði hann í
farteskinu kunnáttu þeirra er á undan höfðu
gengið. Skildi og skynjaði. Þekkti mátt grasanna
og vissi að betra er að hafa augun opin en loka
þeim fyrirfram fyrir möguleikunum, mátti
reyndar hljóta bágt fyrir.
Svipað má segja um Brynju og hönnun hennar.
Hún lokar ekki augunum fyrir möguleikum
sameiningar og kærleika. Henni hugnast það
betur en afmarka sig á einum bletti og telja hann
öðrum betri - eða jafnvel bestan, eins og mörgum
hættir til.
Eiginmaður Brynju, Brian Griffin ljósmyndari,
segir í bók sinni BRIANGRIFFINFLUENCES,
sem hann tileinkar Brynju og Erlingi langafa
hennar: Í náttúrunni er enginn valdapíramídi, allt er
samtvinnað og tengt.
Já, allt er samtvinnað og tengt, við mannfólkið,
í öllum okkar margbreytileika, hvað varðar
skoðanir og langanir, lífsviðhorf, trú eða trúleysi,
hvað þá útlit og athafnir. En eins og grös jarðar
ættum við kannski að gera okkur betur grein
fyrir því, hve líf okkar er samtvinnað og tengt.
Við erum hvert öðru háð og ættum því í auðmýkt
að skynja að ekkert okkar er öðru ofar.
Embracing Faith
Verndargripur Alnæmissamtakanna
Brynja Sverrisdóttir
Fyrir neðan: Embracing Faith-armbönd Brynju
Ljósmyndir: Brian Griffin
Texti: Birna Þórðardóttir