Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2009, Side 17
Allar nema tvær höfðu farið í hiv-próf og sumar oftar en
einu sinni. Einhverjar sögðu að Rauði krossinn hefði hvatt
þær til að fara þrisvar sinnum í próf með þriggja mánaða
millibili til að tryggja rétta greiningu. Flestar höfðu farið í
próf í tengslum við kærasta, til dæmis áður en þær byrjuðu
að stunda kynlíf með þeim, giftu sig, eignuðust barn eða
þegar þær töldu hann hafa haldið fram hjá. Aðrar höfðu
farið vegna langvarandi veikinda, ásakana um að vera
hiv-smitaðar, kynferðislegar misnotkunar eða af ótta við
að hafa fæðst smitaðar. Einhverjar höfðu farið í hiv-próf á
meðan þær voru á CLF, en tvær höfðu aldrei farið, önnur
vegna þess að hún óttaðist að láta stinga sig.
CLF og hiv-próf
Margar stúlknanna höfðu átt kærasta og langaði til að
eignast nýjan. Helmingur þeirra vildi setja kærustunum
skilyrði að fara í hiv-próf áður en þau hæfu kynlíf saman.
Þær sögðust ætla að slíta sambandinu ef þeir vildu það ekki
því þá væru þeir pottþétt smitaðir.
Nokkrar stúlknanna höfðu alls enga löngun til að ná sér
í mann. Þær höfðu slæma reynslu af þeim og gátu ekki
treyst þeim. Þetta voru stúlkur sem höfðu til dæmis átt
drykkfellda feður sem eignuðust börn utan hjónabands; átt
feður eða stjúpfeður sem vanræktu þær; kærasta sem gáfu
þeim gjafir en yfirgáfu þær þegar þær urðu barnshafandi
eða barnsfeður sem reyndust giftir. Sumum fannst einnig
að vinkonur í samböndum ættu oft í miklum erfiðleikum
með eiginmennina vegna framhjáhalds og vanrækslu á
börnunum. Oftast höfðu þær upplifað röð áfalla í tengslum
við karlmenn.
Stúlkurnar sögðust nota ýmsar aðferðir til þess að passa sig
á því að smitast ekki, halda sig til dæmis sem mest heima
og umgangast stráka sem minnst. Ein sagðist ganga með
hring og dygði það ekki segði hún að illa stæði á eða að hún
ætti kærasta. Ef þeir teldu hana ljúga léti hún sig hverfa hið
snarasta.
Þær sem minntust á barneignir ætluðu sér að eignast tvö til
fjögur börn, mun minna en meðaltalið í Úganda sem er sjö
börn. Mæðra- og ungbarnadauði í landinu er um 12 sinnum
hærri en á Vesturlöndum.
Kærastar og börn
Íbúar Úganda eru um 30 milljónir.
Árið 2005 bjó helmingur íbúa undir alþjóðlegum
fátækramörkum, með innan við 1,25 dollara á dag.
Af íbúum 15-49 ára eru 6,7% hiv-jákvæðir eða með alnæmi.
7,3% stúlkna og 2,5% drengja á aldrinum 15-24 ára
eru smituð af hiv,
þetta endurspeglar veika stöðu ungra stúlkna.
Um tvær milljónir barna undir 18 ára
aldri eru munaðarlaus.
Um þriðjungur ungmenna hefur ekki nægilega þekkingu
til að geta varist hiv-smiti.