Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2009, Síða 19
Viðtöl mín og heimsóknir okkar stjórnarmanna
Alnæmisbarna til CLF á síðastliðnu ári leiddi í ljós að CLF
væri að vinna í samræmi við þau markmið og væntingar
sem Alnæmisbörn höfðu haft til starfseminnar. CLF var svo
sannarlega að styðja við ungar, bágstaddar stúlkur vegna
alnæmisfaraldursins og reyna að hjálpa þeim til betra lífs.
Það var ánægjulegt að upplifa hvað dvölin á CLF reyndist
þeim jákvæð og gefandi og voru væntingar stúlknanna til
lífsins og framtíðarinnar ögrandi áskorun fyrir Alnæmisbörn
að reyna að standa sig sem best í framtíðarfjárveitingum
til CLF. Ég komst að því að styrkir Alnæmisbarna skipta
sköpun í lífi þessara stúlkna, þeir gáfu þeim styrkari stoðir
til að standa á, aukna þekkingu, menntun og þjálfun sem
getur veitt þeim lífsnauðsynlegt fjárhaglegt sjálfstæði og
sjálfræði í lífinu.
Ég held að dvöl mín í Úganda hafi bylt heimssýn minni
og geri mér ómögulegt að líta heiminn sömu augum aftur.
Á stuttri ferð minni um landið var margt sem kom mér
verulega á óvart og hafði djúpstæð áhrif á mig. Það var til
dæmis sérkennilegt að horfa á þetta fallega, frjósama land
hvert sem augað eygði, þessa Perlu Afríku, og bera það
saman við grannvaxið fólkið allt um kring og fátæklegar
vistarverur sem langoftast voru hjallar og strákofar.
Vegna veikingar íslensku krónunnar á þessu ári hafa Alnæmisbörn átt erfiðara með að standa við allar þær
skuldbindingar sem félagið hefur sett sér með fjárframlögum til CLF og óvíst hvað gerist þegar stofnfé félagsins,
sem varð til við dauðsfall Erlu, verður uppurið í lok ársins 2010, ef fram heldur sem horfir.
Þeir sem vilja og geta lagt hönd á plóg til að hjálpa CLF að halda áfram starfsemi sinni eru hvattir til að
gerast félagsmenn Alnæmisbarna. Árgjaldið er 3.000 kr., en einnig er hægt að gerast styrktarmeðlimur og greiða
ákveðna upphæð, 1.000 eða 2.000 kr. á mánuði til að styðja einhverja ákveðna stúlku eða stúlkurnar almennt til
mennta í almennu grunnnámi. Hægt er að senda ósk um þátttöku inn á heimasíðu Alnæmisbarna, http://www.
hiv-born.is, undir hafa samband. Fólk þarf alls ekki að óttast að styrkjum til CLF sé illa varið, þess í stað geta
þeir gjörbylt lífi bágstaddra stúlkna í fjarlægri heimsálfu, Afríku. Það leiddi ferð okkar í ljós.
Þú skiptir máli!
Við getum öll gert kraftaverk!
Gætum við hugsað okkur að lifa við þau lífskjör og
aðstæður sem Úgandamönnum er boðið upp á? Nei, ég
held ekki. Ég er því ófeimin að viðurkenna að á meðan ég
dvaldi í Úganda fann ég oft innra með mér til mikillar reiði
gagnvart stjórnvöldum, já og Vesturlöndum líka, fyrir að
hafa ekki sýnt íbúum Úganda meiri virðingu og kærleik í
verki en raun bar vitni. Ég var reið yfir því að enginn gripi
inn í til að stoppa þessa kúgun og þjakandi aðstæður sem
hinn almenni borgari virtist þurfa að lifa við.
Sigurlaug Hauksdóttir
félagsráðgjafi hiv-jákvæðra á Landspítalanum og
yfirfélagsráðgjafi hjá Landlæknisembættinu