Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.12.2009, Qupperneq 26
26
Brasilía
Stefna heilbrigðisyfirvalda í alnæmismálum hefur hlotið lof
Sonia er einstæð móðir í Brasilíu og smituð af hiv-veirunni.
Hún leggur á sig fjögurra klukkustunda ferð til að komast á
heilbrigðisstofnun á vegum ríkisins þar sem hún fær ókeypis
lyfjameðferð.
Ferðin er löng, segir hún, en lítið ómak til þess að fá lyfin sem
hafa haldið henni utan sjúkrahúsa í ellefu ár.
Sonia er ein fjölmargra Brasilíumanna sem njóta þess að í
landinu hefur verið unnið eftir nýstárlegri stefnu í málefnum
hiv-smits og alnæmis. Það kom heilbrigðisyfirvöldum annars
staðar á óvart þegar öllum sem höfðu hiv-smit eða alnæmi
var tryggð ókeypis lyfjameðferð árið 1996. Sonia þarf að taka
20 lyfjatöflur á dag og það hefur haldið hiv-smitinu í skefjum.
Aðferð Brasilíumanna, þar sem saman fara forvarnir á vegum
hins opinbera og áberandi upplýsinga- og fræðslustarf til
almennings, þykir mikil fyrirmynd fyrir þróunarþjóðir.
Forvarnaáróður þar sem er ekki skafið utan af hlutunum hefur
leitt til þess að þekking á útbreiðslu hiv-veirunnar er almenn:
Stattu þig í rúminu, notaðu smokk!
Nýleg rannsókn heilbrigðisráðuneytisins í Brasilíu sýnir að
þekking almennings á útbreiðslu hiv-smits og hvernig á að
forðast það er meiri en víðast hvar annars staðar. Það var í
Brasilíu sem menn gerðu sér fyrst grein fyrir því það er ekki
hægt að skilja á milli forvarna og meðferðar, segir prófessor
við háskóla í Rio de Janeiro. Hann hefur fengist við rannsóknir
á hiv og alnæmi frá 1989 og segir að annars staðar hafi tekið
um fimmtán ár að skilja þetta samhengi.
Skilningur almennings á málinu hefur lengt ævi tugþúsunda
Brasilíumanna og sparað ríkisvaldinu milljarða í útgjöldum.
Auk þess hafa milljarðar sparast vegna þess að Brasilíumenn
hafa framleitt eigin lyf og samið um lækkað verð á
lyfjum frá erlendum framleiðendum. Auk þess er talið að
sjúkrahúskostnaður hafi orðið 250 milljörðum króna minni en
ella á árunum 1996-2004.
Árangur Brasilíu í alnæmismálum hefur hlotið lof á
alþjóðavettvangi en hann hefur fært þjóðinni nýtt verkefni.
Þegar ókeypis lyfjagjöf hófst voru um tíu þúsund manns sem
nutu hennar og reiknað var með að það yrði um tiltölulega
skamman tíma hjá hverjum og einum. En sjúklingar lifa lengur
en áður, þökk sé betri lyfjum og lyfjasamsetningum, og þurfa
þá lyfjagjöf lengur.
Enn fremur hlýst það af því að hiv-smit hefur breyst úr
bráðum sjúkdómi í langvinnan að sjúklingar búa við hættu
á öðrum sjúkdómum. Einkum eru það hjartasjúkdómar sem
læknarnir sjá. Komið hefur verið á kerfi til að fást við hiv-smit
og alnæmi, en þá verða fyrirbyggjanlegir sjúkdómar eins og
hjartasjúkdómar sjúklingum að aldurtila.
Sameinuðu þjóðirnar samþykktu árið 2006 að stefnt yrði að því að veita öllum aðgang
að hiv-vörnum, hiv-meðferð og umönnun ekki síðar en árið 2010. Í 111 löndum hefur
verið ákveðið að leitast við að fylgja þessu. Lítum á hvernig hefur gengið.
90% vita að enn er engin lækning til við alnæmi.
45,7% Brasilíumanna nota smokk við skyndikynmök.
4,4 milljónir hiv-prófa voru tekin árið 2006.
38 milljarðar króna (á gengi 2009) voru notaðir til
kaupa á hiv- og alnæmislyfjum árið 2006.
Yfirvöld greiddu fyrir einn milljarð smokka árið 2007.
Tölur um hiv og alnæmi í Brasilíu:
Botsvana
Landið var meðal þeirra fyrstu í Afríku til að setja á fót
landsáætlun um hiv-varnir. Áætlunin var sett á laggirnar
árið 2002 og hefur þróast hratt síðan. Starfið nær til 93.000
einstaklinga eða um 85% þeirra 110.000 sem er talið að eigi að
hljóta meðferð.
Hondúras
Næst á eftir Afríku sunnan Sahara er útbreiðsla hiv-smits mest
í löndum við Karíbahafið. Landsáætlun um hiv-varnir var
samþykkt árið 2002 en það á eftir að koma í ljós hvort tekst að
framfylgja henni. Skömmin sem fylgir hiv-smiti og ójafnræði
kynjanna standa helst í vegi fyrir árangri. Konum sem smitast
af hiv heldur áfram að fjölga sem og þeim sem fá alnæmi.
Taíland
Meðferð vegna hiv-smits og alnæmis fellur undir
sjúkratryggingalög sem voru samþykkt árið 2006. Helsta
vandamál sem við er að etja er smit meðal þeirra sem starfa við
kynlífsþjónustu, karla og kvenna. Ríkissjóður stendur undir
um 80% af kostnaðinum en um 20% koma utanlands frá. Um
2,7% af útgjöldum til heilbrigðismála er varið til meðferðar
við hiv og alnæmi.
Kína
Aðgengi að læknismeðferð hefur batnað frá því hafist var
handa á vegum ríkisins árið 2003. Rúmlega 42.000 manns nutu
meðferðar í lok árs 2007. Alnæmi er enn mikið feimnismál og
erfitt að leita sér aðstoðar, sérstaklega fyrir þjóðfélagshópa í
erfiðri stöðu, svo sem þá sem hafa flust án leyfis og þá sem
sinna kynlífsþjónustu. Ríkisstjórnin hefur hafið áróður fyrir
opinni umræðu og upplýsingum.