Víðförli - 15.06.1990, Blaðsíða 3
Bibíu- og boðunar-
námskeið á Eyjólfsstöðum
Samtökin Ungt fólk með hlutverk
bjóða öðru sinni til biblíu-og boðun-
arnámskeiðs að skóla sinum á Eyj-
ólfsstöðum á Héraði.
Námskeiðið hefst 12. janúar og
lýkur25. maí 1991. Þareru þrírmán-
uðir bókleg kennsla, en 6 vikna
þjálfun í safnaðarstarfi og boðun.
Námið er skipulagt að alþjóðlegri
fyrirmynd og verða fyrirlesarar bæði
innlendir og erlendir. Aldurstak-
mark er 18 ár.
Nánari upplýsingar fást á Eyjólfs-
stöðum (701 Egilsstaðir) og á skrif-
stofu UMFH, Bergstaðastræti 10A,
101 Reykjavík.
Bæna- og kyrrðardagar
kvenna 7-9 september
Hugsað fyrir þær konur sem bera
hag íslensku kirkjunnar fyrir brjósti
og vilja gjarnan leggja sitt af mörk-
um til að efla hana m.a. með bæn og
fyrirbæn.
Kyrrðarstaður: Reykholt í Borgar-
firði (einstaklingsherbergi).
Umsjón og skráning:
Margrét Hróbjartsdóttir, Rauða-
læk 53, 105 Rvík, s: 91-34623
Rannveig Sigurbjörnsdóttir, Hlíðar-
vegi 6, 200 Kóp. s: 91-40187 vs. 40400
Sigríður Halldórsdóttir, Drápuhlíð
48, 105 Rvík, s: 91-11803, vs: 694975
Nýr starfsmaður til
Biblíufélagsins
Hið íslenska Biblíufélag hefur
ráðið sr. Sigurð Pálsson, núverandi
framkvæmdastj óra framleiðslusviðs
Námsgagnastofnunar, til starfa fyrir
félagið. Hann mun vinna að ýmsum
verkefnum félagsins vegna nýrrar
Biblíuþýðingar og öðru útgáfustarfi
og starfa við hlið Hermanns Þor-
steinsonar framkvæmdastjóra fyrsta
kastið.
Sr. Sigurður hefur vinnuaðstöðu í
Hallgrímskirkju.
Ólafur biskup
stjórnarformaður
Guðfræðistofnunarinnar í
Strasbourg
Á fundi stjórnar Lúterska heims-
sambandsins, var Ólafur biskup
Skúlason tilnefndur formaður
stjórnarnefndar þeirrar stofnunar
sambandsins í Strasbourg, sem fæst
við guðfræðilegar rannsóknir á sam-
kirkjulegum verkefnum.
Guðfræðistofnunin hefur starfað
síðan 1963 og eru þar fimm sérfræð-
ingar að starfi. Lögð er vaxandi
áhersla á að tengja starfsemi stofn-
unarinnar við aðildarkirkjurnar og
efla samvinnu við þær sem mest.
Forstöðumaður stofnunarinnar er
dr. Yakob Tesfay frá Eþíópíu.
Skráning
Skálholtsbókasafnsins
Kirkjuráð hefur samþykkt að
skráning bókasafnsins í Skálholti
verði forgangsverkefni.
Tveir bókasafnsfræðingar hafa
unnið álitsgerð um húsnæði, skrán-
ingu og fleira. Bókasafnið er í prýði-
legu ásigkomulagi en nýtist ekki
nógu vel við núverandi aðstæður.
Pantaðir hafa verið sérstakir skápar
frá Ofnasmiðjunni til að hýsa það
sem best.
Nýr ráðsmaður í Skálholti
Sveinbjörn Finnsson hefur látið af
störfum sem ráðsmaður í Skálholti,
eftir óeigingjarna og virka þjónustu
um áratugi.
í stað hans var Björn bóndi Er-
lendsson í Skálholti ráðinn til bráða-
birgða.
VÍÐFÖRLI — 3