Víðförli - 01.03.2004, Blaðsíða 1
VÍÐFÖRLI
FRÉTTABRÉF BISKUPSSTOFU - WWW.KIRKJAN.IS 23. ÁRG. 1. TBL. MARS 2004
Vel heppnað
Meðal efnis:
Kristinfræðikennsla í grunnskólum. 2
Vísitasía biskups.................. 3
Fjölgun í lútherskum kirkjum..... 4
Kristniboðsfélag Grafarvogskirkju
stofnað......................... 5
Trúboð á vefnum.................... 5
Barnahátíð kirknanna í Hafnarfirði.. 6
Tónleikar og tollheimtumenn á
fjölbreyttri Kirkjuviku á Akureyri. 7
Helgihald í Kolaportinu .......... 8
Djáknanemar....................... 8
Alþjóðleg bænavika: .............. 8
Gallup könnun .................... 9
Samfélag - í trú og gleði......... 9
Stefnumótun kirkjunnar: .......... 9
Erum við lúthersk
og hvað þýðir það?.............10
Porvoo fundir.....................10
Kirkjuskóli í Mælifellsprestakalli.11
Fyrstu kristniboðar á Islandi.
(981-1981) ....................12
Útgefandi: Skálholtsútgáfan, útgáfufélag
Þjóðkirkjunnar, Laugavegi 31, 101 Reykjavík
Ritstjóri og ábm.: Steinunn A. Björnsdóttir og
Ární Svanur Daníelsson, sími 535 1500
Netfang: frettir@biskup.is
Prentvinnsla: Gutenberg hf.
leiðtoganámskeið í Viðey
Laugardaginn 15. febrúar var haldið námskeið í Viðey fyrir starfsfólk og leið-
togaefni í kristilegu barna- og unglingastarfi. Um hundrað manns sóttu nám-
skeiðið að þessu sinni og komu þátttakendur víða að m.a. frá Norðfirði, Húsa-
vík, ísafirði og Hvammstanga. Þetta er í annað skipti sem námskeiðið er hald-
ið í Viðey, en námskeiðið er samstarfsverkefni fræðslusviðs Biskupsstofu,
KFUM og KFUK, Æskulýðssambands kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum
(ÆSKR) og æskulýðsnefndar Kjalarnessprófastsdæmis.
Leiðtogi sem getur talað við krakkanna, unnið með þeim og átt uppbyggi-
legar stundir með þeim tekurflestu öðru fram í starfi með börnum og ungling-
um. Gott starfsfólk í starfi með börnum og unglingum er því einn mikilvægasti
þáttur barna- og æskulýðsstarfs. Leiðtogi öðlast ekki hæfni nema hann leiti
sér þekkingar og leiti eftir samfélagi við aðra leiðtoga til að skiptast á skoðun-
um og hugmyndum um nýjar leiðir í starfi. Markviss þjálfun og samfélag leið-
toga er mikilvægur þáttur í uppbyggingu öflugs og góðs starfs með börnum
og unglingum innan kirkjunnar.
Fræðslan var þrískipt eftir aldri þátttakenda.
í fræðslu fyrir 20 ára og eldri var fjallað um ofbeldi gegn börnum, þ.e. um
tilkynningarskyldu starfsfólks sem starfar með börnum og unglingum, lög og
reglur, einkenni á börnum sem hafa orðið fyrir ofbeldi, gerendur í kynferðisaf-
brotamálum og fleira.
Á námskeiði fyrir 16-20 ára var fjallað um leiðtogann sem fyrirmynd, skyld-
ur leiðtogans, skipulag starfs með börnum og unglingum og miðlum á kristnu
gildismati.
Fræðsla fyrir leiðtogaefni er nýjung sem hefur gefist mjög vel og var vel sótt.
Þar var fjallað um kristna siðfræði og tilgang leikja í starfi með börnum og ung-
lingum.
Á námskeiðinu var kynnt heilræði fyrir starfsfólk í barna- og æskulýðsstarfi,
þ.e. hvað ber að varast og að hafa í huga í kristilegu barna- og unglingastarfi.
Einnig voru kynntar siðareglur fyrir starfsfólk í barna- og unglingastarfi sem
unnið er að.
Af fjölda þátttakenda á námskeiðinu og virkni þeirra í fræðslunni má sjá
hversumikið er af hæfu starfsfólki. Þó að munur hafi verið á aldri og reynsiu
þátttakenda, þá áttu allir það sameiginlegt að vilja stuðla að boðun fagnaðar-
erindis Krists og uppbyggjandi starfi með börnum og unglingum.
Stefán Már Gunnlaugsson
www.kirkjan.is
1/2004