Tónamál - 01.11.1981, Blaðsíða 28

Tónamál - 01.11.1981, Blaðsíða 28
með innlendum. Þá var einatt litið á Gunnar sem fyrirliða íslenzkra. Mér er hvað minnisstæðast, þegar hinn heimsfrægi tenórsaxó- fónleikari Ronnie Scott sótti okk- ur heim og lék hér á hljómleikum. Hápunkturinn var einvígi þeirra Gunnars. Þá var gaman að vera Islendingur, því viðureigninni lauk með stórmeistarajafntefli. Eg hef það fyrir satt, að það eina, sem Ronnie Scott man í dag frá íslandi 28 árum síðar, er nafnið Ormslev. Þrátt fyrir einangrun hlaut nafn Gunnars að berast víða og 1955 bauðst honum staða í hljómsveit sænska hljómsveitarstjórans Simon Brehm af orðsporinu einu saman og er hvað stórkostlegast fyrir það, að einungis stórstjörnur komust í þá hljómsveit, en Svíar eru ein mesta jazzþjóð í heimi. íslenzkir hljóðfæraleikarar samfögnuðu Gunnari með því, að halda honum „kveðjuhljómleika" og komust færri að en vildu, bæði í sal, sem á sviði. Kveðjuhljóm- leikar voru þeir kallaðir, þrátt fyr- ir að allir vildu Gunnar heim sem fyrst aftur. Og heim kom hann að loknu samningstímabili þrátt fyr- ir gylliboð ytra. Hann fann sig bezt á Islandi. A „Heimsmóti æskunnar" í Moskvu 1957 var Gunnari boðið ásamt sextett sínum, en þar kepptu 3 109 listflytjendur í hin- um ýmsu greinum og báru Gunn- ar og félagar sigurorð af öðrum 28 keppendum og þágu gullverðlaun fyrir. Hér er hvorki rúm né tími til að rekja listferil Gunnars nánar, en vonandi verða honum gerð betri skil, þó síðar verði. Gunnar fæddist í Kaupmanna- höfn 22. marz 1928, en foreldrar hans voru Jens G. Ormslev banka- fulltrúi og kona hans Áslaug Jóns- dóttir Ormslev úr Hafnarfirði. Gunnar fluttist alkominn til ís- lands 1946. Fljótlega hóf hann nám í tannsmíðum hjá frænda sín- um, Jóni K. Hafstein, tannlækni og lauk prófi í þeim fræðum, en sneri sér síðan einvörðungu að tón- listinni. Þáþótti sjálfsagt, aðverð- andi hljómlistarmenn lærðu ein- hverja iðngrein og var litið á það, sem einskonar „líftryggingu.“ Árið 1950 gekk hann að eiga eftirlifandi konu sína Margréti Petersen Ormslev, en börn þeirra hjóna eru Áslaug Gyða, flug- freyja, gift Ásgeiri Pálssyni, Mar- grét Guðrún, gift Leifi Franzsyni og synirnir Pétur Ulfar, knatt- spyrnumaður og Jens Gunnar, en þeir eru enn í foreldrahúsum. Góður drengur er genginn, sem skráð hefur nafn sitt gullnu letri í íslenzka tónlistarsögu. F. h. nemenda hans, samkenn- ara í Tónlistarskóla FÍH og hinna fjölmörgu vina og félaga í F.Í.H. votta ég fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð. Sverrir Garðarsson Þórarinn Guðmundsson Framhald af hls 25 Ijúfmennsku að ströngu lögmáli tóna í stað þess að slæva áhuga með lamandi ávítum. Hann sá í barni sérstæðan per- sónuleika, sem umgangast skyldi með vinsemd þess er vill því vel á tónanna torveldu brautum. Hvert grip, hvert bogastrok skyldi mið- ast við námsferil og þroskastig, en ekki við óraunhæfa óskmynd. Og þótt fyrstu nótur mínar, sem hann kenndi mér að rita, líktust fremur vansköpuðum rúsínubollum en sæmilegum tóntáknum, þá voru uppeldisfræðileg viðbrögð hans jákvæð, um leið og hann brosandi sagði: „Já, vinur minn, það er augljóst, að þér þykir vænt um hesta; svona teiknum við hrosshóf og eftir þessu hneggjar hesturinn; en nú skulum við skrifa þannig, að knapinn sjálfur syngi á hestbaki! Upþ frá þessu þótti mér alltaf vænt um Þórarin Guðmundsson sem mann og bar virðingu fynr honum sem kennara. Með Þórarni Guðmundssyni er á braut genginn einn af frumherj- um okkar tónmennta, sem inn- leiddi fiðluna í íslenskt samfélag. Hann sjálfur bærir ekki lengur strengi sína dauðlegum eyrum. En minning hans mun áfram hræra og hrífa hjartastrengi allra þeirra þakklátu íslendinga, sem skilja og meta óforgengilegt hlut- verk þessa fyrsta forgöngumanns í fiðlutónanna ríki. Dr. Hallgrímur Helgason tónamál

x

Tónamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tónamál
https://timarit.is/publication/1511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.