Heimilispósturinn - 01.11.1949, Qupperneq 18

Heimilispósturinn - 01.11.1949, Qupperneq 18
fatnað, svona mikið í skemmt- anir o. s. frv. Hann sér vel um heimilið og aðstoðar mig ef með þarf. Já, hann hrósar jafnvel matnum, ef honum þykir hann sérstaklega góður. Hann er aldrei svo önnum kafinn, að hann gefi sér ekki tíma til að hlusta á mig og spjalla við mig um mín vanda- mál. Við erum auðvitað ekki alltaf sammála, en hann tekur tillit til skoðana minna, enda þótt þær séu aðrar en hans. I hjónabandi okkar ríkir sam- vinna í beztu merkingu þess orðs. Þess vegna er ég örugg og hamingjusöm, en af því leiðir að ég er jafnan skapgóð. Ég elska manninn minn, af því að honum þyldr svo vænt um bamið mitt. Styrjöldin með öllum sínum ógnum og þjáningum, gerði mig að ekkju og svipti Lillu föður sínum. Ég hélt að ég myndi aldrei líta glaðan dag framar. Ég var búin að glata allri lífs- þrá. Oft óskaði ég þess, að við Lilla værum báðar komnar und- ir græna torfu eins og faðir hennar. En þá kynntist ég honum, sem nú er maðurinn minn. Hann er ekki aðeins maðurinn minn og stjúpi Lillu — hann er líka innilegur og ástríkur faðir. Ég hef svo oft horft á þau, þegar þau eru að leika sér, eða þegar hann er að lesa upphátt fyrir hana. Og á hinn bóginn tek ég líka eftir því, hve innilega hún getur endurgoldið ástúð hans. Ég hélt, að við Lilla yrðum að brjótast einar áfram gegnum erfiðleika lífsins. En nú er lífiö aftur orðið þess vert, að því sé lifað, og þessvegna elska ég hann takmarkalaust. Það er ekki svo að skilja, að hann getr komið í staðin fyrir þann sem ég missti. En það hefur víst verið guðs vilji — stundum get- ur verið, að farið hafi bezt sem fór — og í því tilfelli verð ég þá að þakka guði fyrir það. Rita. Það eyðileggur hamingjima að verða að betla um heimilispen- inga. Ég er tvígift. I fyrra skiptið var ég ákaflega ástfangin, en samt fór hjónabandið út um þúfur. Ég gifti mig í annað sinn, af því að ég óttaðist einveruna. Það hjónaband hefur farið vel. Auðvitað geta orsakir verið margar. En ég veit þó um aðal- ástæðuna til þess, að fyrra hjónaband mitt misheppnaðist. Ég var vinnandi stúlka, þegar við giftum okkur, vön við að hafa peninga handa á milli og fór vel með þá. Hann vildi hafa þann hátt á, að ég varð að biðja hann um hvern eyri, daglega og oft á dag. Hann fann fullnæg- ingu í því að láta mig koma skríðandi til sín og biðja um peninga. En ég er of stolt og of sjálfstæð til þess að geta orð- ið hamingjusöm við slíka kúgun. — Hann eyðilagði blátt áfram ást mína með svíðingshætti í peningamálum. Hann vildi ekkl heldur leyfa mér að vinna mér inn peninga sjálf, því að þá. hefði hann misst tökin á mér, en þeim vildi hann fyrir hvern mun halda. Svo skildum við.

x

Heimilispósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.