Vinnan


Vinnan - 01.06.1946, Blaðsíða 5

Vinnan - 01.06.1946, Blaðsíða 5
6. tölublað Júní 1946 4. árgangur Reykjavík VINNAN Ritnefnd: Björn Bjarnason Helgi Guðlaugsson ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUSAMBAND ÍSLANDS INGÓLFUR IÓNSSON frá Prestsbakka: ÍSLAND /------------------------------------------------------n EFNISYFIRLIT: Þorsteinn Jósepsson: Skip við bryggju, kápumynd Ingólfur Jónsson frá Prestsbakka: lsland, kvœði Af alþjóðavettvangi Sjálfstœðið og kosningarnar Til alþýðu allra landa Eiríkur Ágústsson: Raufarhöfn Tilraunir Noregskonunga að ná yfirráðum á Islandi Guðmundur Vigfússon: Frá verkalýðsfélög- um úti um land Juri Semjonoff: Auður jarðar Þorsteinn Jósepsson: Myndaopna Verndum hina stéttarlegu einingu Alyktanir, sambandstíðindi, kaupskýrslur o. fl. \_________________________________________________/ HvaS er von, hvað er þrá, hvað er allt sem ég á, mín ósk, mín harpa, mitt Ijóð, el ég hikandi stend, ef ég hugvana só míns heimalands fámennu þjóð, bera erlendan svip um íslenzka fold með ótta við byssur og stál, að falla svo djúpt, að lúta svo lágt er leiðigjarnt íslenzkri sál. I sögu vors lands, við kúgun og kröm í klafa hins erlenda valds — er sviði og sár, er tregi og tár — eru tötrar hins öreiga manns, sem um strendur og dal. um heiðar og háls gekk heimilisvana og fár, og — að síðustu féll úr hungri og hor og hundarnir sleiktu hans brár. En — er þessi minning sígin í sæ og sokkin í gleymskunnar djúp, feðranna strit, þeirra langþráðu laun að leysa þann framandi hjúp, er reyfði vort land, í einokun, auðn og allskonar þjáning og neyð, — nú um strendur vors lands, við annes og ey er alfaravegur og leið. —• Já, margt er nú unnið, en margt er það samt, sem má ekki íalla í dá, meðan Island er til, meðan ilmreyrinn grær, meðan öldurnar falla um sjá, vor tunga jafn hrein í sælu og sorg, í sumri hins starfandi manns, það er heiður vors lands, það er sjálfra vor sæmd. það er sigur hins islenzka manns. Sjá! Landið er broshýrt og íagurt sem fyrr með fossanna eilífa söng, og enn er hin milda og kynlega kyrrð um kveldin svo heiðblá og löng, sumarið vefur hið fíngerða flos úr íegurstu blómum um grund, sól skín á jökul, á íirði og fjöll, á flóa, víkur og sund. Eg vildi, mitt land, að þú ættir hér enn svo einhuga þjóðarsál, að öruggt starfi og óttalaust og elti ei glys nó prjál, gefi ei erlendum aðkomulýð sín óðul og helgustu vé, en ali sín ljóð, og sitt brennandi blóð og beygi aldrei sín kné. VINNAN 127

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.