Heimilispósturinn - 16.12.1950, Qupperneq 4

Heimilispósturinn - 16.12.1950, Qupperneq 4
Svalt er á seltu. Viðtal við Sverri Þór sMpstjóra. Sverrir Þór er fœddur á Akureyri 191If, foreldrar Jón Þór málari og .7(5- ihanna JóKannesdóttir, bœöi af Eyfírzkum ættum. Sverrir réöist fyrst á skip 13 ára, eyddi fyrstu fjórum árum sjómanns- œvimnar á köldum sjó við norðurströnd íslands — á flóabátum. Hann langaði að komast á stœrri skip, Eimskip eða Rikisskip, — helzt varðskip, en allt án árangyrs. Komst þó að lokum á erlent verzlunarskip, sigldi þar l >/2 ár. Öðlaðist þar dýrmœta sjómannsreynzlu, sem siðar kom oft að góðum notum. Þar vaknaði fyrst áhugi hans á siglingafrœði. Það voru þó ekki heppilegir tímar til að hefja siglingafrœðinám, •— allt fullsetið hjá þeim skipafélögum sem til voru, eina vonin var, að nýjir aðilar hæfu skipa- útgerð. Fór samt á Stýrimannaskólann, og útskrifaMst 1935. Þessi von rœttist, nýjir aðilar keyptu gamalt skip, og eftir að hafa verið nokkra mánuði háseti þar, fékk hann stöðu 2. stýrimanns. Eftir fjögurra ára siglingu hér og þar um Evrópu batt stríðið enda á siglingu þessa skips, það lenti í herkví, en var síðan selt úr lcmdi. Sverrir byrjaði nú aftur sem háseti á fiskiflutningaskipum, þegar allar fleytur, hœfar og óhœfar, voru settar af stað, til að krœkja í sem mest af striðsgróðanum. Varð siðar stýri- maður, og skipstjóri síðustu árin. Sverrir réðist til Samb. ísl. samvinnufélaga þegar það hóf útgerð eigin skipa 19j6, fór til Italiu og fylgdist með bygg- ingu Hvassafells síðustu 3 mánuði byggingartímans. Var fyrst stýrimaðúr þar, en síðar skipstjóri. Fór aftur til Svíþjóðar þá er Arnarfell var í bygg- ingu, og hefur verið skipstjóri þar síðan það hóf siglingar. Mynd af Sverri er á kápu þessa tölublaðs og viðtal við hemn fer hér á eftir. Ritstjóri Heimilispóstsins brá sér um borð í Arnarfell, þegar það kom frá útlöndum síðast og ræddi við' skipstjórann um siglingar og farmennsku: — Ég þekki ekki tímarit þitt ,,Heimilispóstinn“, sagði Sverrir Þór; en ég óska því langra líf- daga. Samt er ég hræddur um að þessi verði ekki langt að bíða að það drepist úr hor, ef ekki er fóðrað kjarnbetra fóðri en við- tölum við mig og mína líka sem ekki hafa lent í neinum ævin- týrum og ekkert markvert kom- ið fyrir. Því snýrðu þér ekki til einhverra annarra, sem siglt hafa um öll heimsins höf í ára- tugi? Hvað viltu annars vita? — Hvers vegna gerðist þú s jómaður ? — Sumir hafa viljað halda því fram, að lífið sjálft sé til- viljun, ekki er ég á því, en hvað um það, sjómannsævi mín er til- viljun. Ganga 13 ára strákkettl- ings yfir fjallveg um kalda og hráslagalega vornótt í niðaþoku — með bakpoka sem sígur í og samvizkuna ekki í sem beztu lagi, því húsbændurnir á hinum góða bæ handan fjallsins voru ekki hafðir með í ráðum þegar vistinni lauk, — þessi einmana- lega fjallganga olli því að ég fór fyrst á skip. Og mannslát eftir stríðslokin olli því að ég yfirgaf ekki sjóinn fyrir fullt 2 HEIMILISPÖSTURINN

x

Heimilispósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.