Heimilispósturinn - 16.12.1950, Qupperneq 8

Heimilispósturinn - 16.12.1950, Qupperneq 8
Þórshafnar í sömu erindagerð- um og létti akkerum í fyrra- málið.“ „Það ætla ég líka að gera,“ segir hann, „og ég bíð þá með brúðkaupið þangað til þú kem- ur, svo að þú getir orðið svara- maður.“ „Ef ég verð ekki kominn á undan þér til Þórshafnar, þá máttu eiga skútuna," sagði ég. ^,Ég • vil ekki skifta um lík- kistur,“ sagði hann; „en segj- um heldur, að sá, sem fyrr nær landi, fái ekkjuna.“ „Segjum það,“ sagði ég. Og morguninn eftir skildust leiðir. Nú var „Flugan“ bezta gang- skip, og við þetta tækifæri var ekki dregið af seglum, því ekkj- an var á bezta aldri og til í tuskið, að því er kunnugir sögðu. Og jafnvel þótt ég hefði máske getað fengið eitthvað skárra, ef ég hefði leitað á fleiri höfnum, þá gat ég alls ekki ver- ið þekktur fyrir að láta Mikjál Fjarðarr grípa hana rétt við nefið á mér. Ég sigldi svoleiðis, að sjóirn- ir urðu brennandi heitir og við sjálft lá, að kviknaði í stefninu. Skál! Ég vissi, að enda þótt ég yrði kannske ekki eins fljótur yfir flóann, þá var ég miklu kunn- ugri þegar að eyjunum dró, því að sundin þekkti ég út og inn. Ég átti frænku á Sandey, sem var gift þar. Hana heimsótti ég oft á yngri árum. Ég og dreng- irnir hennar vorum oft að leika okkur þar í fjörunum, á stað, sem heitir Selufjördur með u, því þeir í Færeyjum segja u, þegar aðrir segja eitthvað ann- að. Altsvo Seluf jurdur. Þar voru rostungarnir vanir að sóla sig, og við fórum oft með brauðbita eða því um líkt og hændum þá að okkur. Þar voru tveir rost- ungskópar, sem hændust svo að okkur að lokum, að þeir komu og léku sér við okkur. Við gát- um sezt á bak þeim og riðið á þeim eina eða tvær mílur — auðvitað ekki danskar mílur — til hafs; og þegar við fórum að kitla þá, snéru þeir við og skil- uðu okkur á land, þar sem við höfðum lagt upp. Svona geta dýr orðið tamin, ef vel er farið að þeim. Þeir þekktu líka „Flug- una“, því þegar ég var þar á ferð, komu þeir og létu vinalega í kringum skútuna. Svo fengu þeir brauð og kjötbein. Skál! Við voru komnir svo nærri, að við sáum fjallatindana, þeg- ar óveðrið skall á. 1 sólarhring sáum við ekkert annað en regn- vatn, saltvatn, froðuskúm, hagl og þorsk. Sjómannslífið er breytilegt. Að lokum vissum við hvorki í þennan heim né annan; það var eins og við sigldum í loftinu með hafið yfir okkur og himininn undir. Þá er að treysta á faðirvorið. Það er alltaf síð- asta hálmstráið í lífsnauðsyn, þegar allt annað bregzt. En svo varð mér hugsað til Jótamik- jáls, hvort hann þyldi nú inn- fjarðarkaldann, hefði hleypt í skjól, eða væri kominn niður á þaravelli. Á þriðja degi rofaði til, og við gátum áttað okkur. Við vor- um rétt fyrir utan Skúey. O- jæja! Heldur vildi ég drukkna við Sandey en Skúey, því maður var eins og hagavanari þar. En hver slagar þá upp að síðunni á okkar annar en ,,Tréskórinn“ ? Stýri fyrirfannst ekki á hvor- 6 HEIMILISPÓSTUKINN

x

Heimilispósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.