Heimilispósturinn - 16.12.1950, Blaðsíða 9

Heimilispósturinn - 16.12.1950, Blaðsíða 9
ugri skútunni. Og nú komu tveir turnháir brimskaflar. Kors í Jössenavn! Þarna klesstust prammarnir saman og Jóta- mikjáll og ég sjálfur flugum 15 fet í loft upp og féllumst í faðma þar uppi. Og það verð ég að segja, piltar, að þó grunnt væru um þetta leyti á því góða með honum Jótamikjáli og mér, þá er þó ekki gott að maðurinn sé einsamall. O, nei! Maður er manns gaman; það segir hann Þorlákur og ég. Skál! Skál! Bittinú! Ekki gátum við ver- ið til eilífðar þarna uppi, svo við fórum að hugsa til niður- ferðar, og við hnigum mjúklega í hafsins milda skaut, eins og stendur einhvers staðar í kvæði, og þar þrýsti ég hönd vinar míns í kveðjuskyni. Það var ekki um annað að ræða. Dauði í hafi er líka hetjudauði, og vindarnir stynja þungan, þegar þeir þjóta yfir grafir sjómann- anna. Æijæja! Það er eins og þess- ar gömlu minningar láti mann ekki ósnortinn, óekkí! Skál! Ég held í hönd vinar míns, en vinstri hönd hafði ég lausa. Og þá finn ég allt í einu, að eitt- hvað kemur við hana. Mér verður litið niður, og hvað er það þá annað1 en rostungarnir mínir, sem hafa stöðugt verið að leita að mér? Ég var ekki lengi að átta mig. „Á bak, Mikjáll!“ hrópaði ég og settist sjálfur á bak. Svo þutum við gegnum öldurnar. Við urðum að halda okkur dauðahaldi um tennurnar á rostungunum, svo að við rynnum ekki aftur af. Svo stefndu þeir með okkur til Þórshafnar. Það er merkilegt, hvað svona skepnur geta verið gáfaðar. Stundum þutum við -gegnum þangskóga. Síldin óð í torfum umhverfis okkur. Allt í einu kom hvalur vaðandi og gleypti reiðskjóta Mikjáls. Ég var ekki seinn í snúningum í þá daga og greip Mikjál og setti hann á bak fyrir framan mig. Það hýrnaði heldur yfir mér, þegar ég sá til Þórshafnar. Eu þá datt mér í hug, að ekki væri sopið kálið, því Mikjáll sat fyrir framan mig og gæti því stigið fyr á land. Ég fór að velta þessu fyrir mér, en það var þá rost- ungurinn, sem vissi hvað til stóð. Hann sumsé snéri sér við og lensaði aftur á bak upp í fjöruna. Já; sjómannslífiðer ævintýra- legt, piltar mínir; það er nú svo með það. Þarna stóðum við tveir í fjörunni, eins og illa gerðir hlutir og blessuð skepnan stakk af, án þess að kveðja. Við fórum og fengum okkur þurr föt og drykkjarföng. En það, sem mér þótti raunalegast af öllu, var það, að enginn í þorpinu trúði sögunni, bara af því að Mikjáll Fjarðarr hafði verið með. Hvað? Nú, ekkjan? Ja; hún var orðin ekkja síðast þegar ég hafði verið í Þórshöfn. Maður- inn hennar hafði nefnilega fall- ið fyrir borð og drukknað úti fyrir Austfjörðum. En þeir hafa sennilega dorgað hann upp aftur, því að hann stóð bráðlif- andi og hinn gleiðasti í kránni, þegar við komum inn. Svo fór með sjóferð þá! Karl Isfeld íslenzkaði. HEIMILISPÖSTUBINN 7

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.