Heimilispósturinn - 16.12.1950, Page 27

Heimilispósturinn - 16.12.1950, Page 27
Á takmörkunum! Svo sem kúnnugir vita, er mjög slæm lending í Vík í Mýrdal, ef nokk- uð er að veðri. Eitt sinn var bátur úr Vestmannaeyjum að lenda þar í all- miklu brimi og fór þá ekki betur en svo, að bátnum hvolfdi í lendingunni. Allir þorpsbúar, sem vettlingi gátu valdið, hlupu niður í fjöru, til að bjarga áhöfn, farþegum og farmi bátsins, og tókst það greiðlega, nema hvað einn farþeginn, unglingsstúlka, var all-lengi á floti úti í brimgarðin- um, áður en hún náðist. Þegar verið var að draga hana upp úr fjöruborð- inu, veittu menn þvi eftirtekt, að einn heimamanna, vasklegur maður um tvítugt, stóð álengdar með hend- ur í vösum og hreyfði sig ekki til hjálpar. Var hann ávítaður mjög fyr- ir aðgerðarleysið, þegar um líf eða dauða var að tefla, og þoldi hann ávíturnar um hríð, en þegar honum þótti nóg komið, sagði hann með hægð, en þó nokkuð laundrýginda- lega, og glotti við tönn: „Hverjum var það að þakka, að Gunna flaut?“ * Einn af prófessorunum við laga- deild Háskóla Islands var einhverju sinni að skýra fyrir nemendum sín- um þýðingu eiðstafs fyrir dómstól- um. Fór hann mörgum orðum um þetta efni og hlýddu nemendur á með mikilli athygli, utan einn, sem starði sljóum augum út í bláinn, þungt hugsandi, og virtist utanveltu við hjalið. Þegar að því kom, að prófess- orinn útlistaði gildi eiðstafs í barns- faðernismálum, færðist skyndilega líf í hinn þungt þenkjandi nemanda, glampi kom í augun, og hann mælti upp úr eins manns hljóði — stundar- hátt: „Ég sver! Ég sver!“ * Einn prófessoranna við iækna- deild Háskóla Islands var einhverju sinni að ræða við nemendur sína um framkomu lækna gagnvart sjúkling- um, og var það einkum tvennt, sem hann lagði þeim sérstaklega á hjarta. Annað var það, sem hann kallaði „að yfirvinna viðbjóðinn". Læknir mætti aidrei hafa viðbjóð á sjúklingi sín- um, hver sem sjúkdómur hans væri. Hitt var: að efla athyglisgáfuna. Læknir mætti aldrei láta neitt sjúk- dómseinkenni fara fram hjá sér •—- með tilliti til sjúkdómsgreiningar. Að loknu máli sínu tók prófessorinn upp tilraunaglas með gulleitum vökva í og mælti: „Jæja, piltar mínir, í þessu glasi er þvag úr sykursjúkri konu. Þið sjá- ið, að ég sting fingrinum ofan í það og síðan upp í mig: Gerið nú það sama!“ Síðan rétti hann nemendum glas- ið og þorðu þeir ekki annað en fara að dæmi prófessorsins, hversu mjög, sem þá hryllti við. Þegar glasið kom aftur til prófessorsins, brosti hann góðlátlega og mælti: „Jæja, piltar mínir, þið stóðuð ykk- ur nú að sumu leyti prýðilega, en að sumu leyti illa. Það lætur sig svo sem ekki án vitnisburðar, að þið eruð búnir að yfirvinna viðbjóðinn. En at- hyglin var nú svona og svona. Þið tókuð, til dæmis, ekki eftir því, að það var sleikifingur, sem ég stakk ofan í glasið en langatöng, sem ég stakk upp í mig. * Reykvíkingur mætti manni austur í Ölfusi. Reykvíkingurinn var á mó- torhjóli, og þótti Ölfusingnum það furðulegt áhald. — Hvað heitir 'nú þetta, sem þú ert á ? spurði Ölfusingurinn. — Þeir kalla það nú djöflavél fyr- ir sunnan, svaraði Reykvíkingurinn. — Og er þá höfðinginn svo sem á heimleið ? spurði Ölfusingurinn. * Strákur ofan af Héraði var í kaup- staðarferð á Seyðisfirði. Hitti hann jafnaldra sinn á Seyðisfirði, sem spurði hann, hvaðan hann væri. Strákur nefndi bæ á Héraði. — Er það næsti bær við Helvíti? spyr Seyðfirðinurinn. — Óekki, gæzkan, svaraði strák- ur. — Seyðisfjörður er á milli. HEIMXLISPÖSTURINN 25

x

Heimilispósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.