Vinnan - 01.03.1949, Síða 8
SÆMUNDUR ÓLAFSSON:
Viðfangsefni dagsins
Þótt verkalýðshreyfingin sé orðin voldug í öllum
frjálsum löndum og einnig á íslandi, þá eru mál
verkalýðsins og alþýðuhreyfingarinnar ávallt mjög
háð því hvernig stjórn ríkisins tekst á hverjum tíma.
Þess vegna verður að gera sér grein fyrir stjórnar-
háttum í þjóðfélaginu um leið og rædd eru mál
verkalýðshreyfingarinnar, ef fást eiga viðhlítandi
niðurstöður.
Það er álit flestra, sem fást við verkalýðsmál að
verkalýðnum sé nú meiri vandi á höndum heldur en
nokkru sinni áður á síðasta áratug. Þrátt fyrir að
auður þjóðarinnar hefur vaxið gífurlega, atvinnu-
tækin verið aukin stórkostlega til sjós og lands og
þróttmikil nýsköpun atvinnuveganna sé í fram-
kvæmd, er hagur alþýðunnar næsta bágborinn. Auð-
söfnun landsmanna hefur farið fyrir ofan garð og
neðan hjá alþýðunni við sjóinn. Kaupmáttur laun-
anna fer minnkandi. Bæjar- og sveitarfélög leggja
æ þyngri byrðar á verkamennina. Til þess að geta
greitt útsvörin og aðra skatta til ríkis og bæja verða
verkamenn að spara við sig mat og fatnað, og leggja
allan munað á hilluna. '
Þetta ástand getur el^ki hafa skapazt á mjög
skömmum tíma, heldur hlýtur það að eiga dýpri
rætur í þjóðfélaginu. Enda er það svo.
í ársbyrjun 1942 sat að völdum ríkisstjórn, skipuð
þröngsýnum mönnum, sem vildu varna því að al-
þýðan fengi sinn hlut af batnandi fjárhag þjóðar-
innar, þessi ríkisstjórn lögbannaði allar kjarabætur
verkalýðsins. Eins og vænta mátti braut alþýðuhreyf-
ingin af sér „þrælalögin“ og einstök verkalýðsfélög
hófu þegar baráttuna fyrir bættum kjörum.
Um hríð sat við völd umkomulaus utan þing
stjórn. Á hennar valdatímum fór flest illa úr hendi
eins og vænta mátti þar, sem alþingi studdi hana
ekki, en alþýðan í landinu skoðaði hana, sem sjúk-
leikamerki í opinberu lífi og hugir manna snerust
mest um það að koma á stofn þingræðisstjórn.
Að lokum var svo utanþingsstjórnin leyst af hólmi
af ríkisstjórn Ólafs Thors í okt. 1944, sú ríkisstjórn
sat að völdum þar til í febrúar 1947 eða 28 mánuði.
í þessari ríkisstjórn sátu kommúnistar, sem kunnugt
er og fór kommúnistinn Áki Jakobsson með atvinnu-
málin. Þegar ríkisstjórn Ólafs Thors tók við völdum,
hafði þjóðin fullar hendur fjár, og var það notað
að nokkru til að grundvalla nýsköpun atvinnuveg-
anna. En geysimiklu fé var varið í allskyns mistök
og fálm, svo ekki sé kveðið dýpra að orði. Á þess-
um árum mynduðust samtök á milli nokkurs hluta
atvinnurekendavaldsins í landinu og kommúnista,
sem þá réðu Alþýðusambandinu. Þessi mistök voru
grundvölluð á þeirri megin reglu, að verzlunin skyldi
ekki háð neinu opinberu eftirliti. Þannig að kaup-
mannavaldið hefði óbundnar hendur og að launum
verkalýðsins skyldi haldið niðri, þannig að kaup-
gjald yrði jafnan mjög lágt og vinnudagur verka-
manna héldi áfram að vera langur.
Vegna þessa samkomulags brugðu forvígismenn
verkamannafélagsins Dagsbrún, fæti fyrir allar kjara-
bætur til handa verkamönnum og var þá öðrum
félögum ókleyft að bæta sína samninga þegar stærsta
verkamannafélagið hafðist ekki að.
Á valdatímabili Ólafs Thors óx dýrtíðin hröðum
skrefum, gerðar voru ýmsar ráðstafanir til að stíga
í vænginn við vísitöluna þannig að hún hætti að
gefa rétta hugmynd um dýrtíðina. Stórkaupmönnum
fjölgaði gífurlega. Allskonar skran og óþarfi var
fluttur inn í landið, gjaldeyri var sóað gegndarlaust,
í ferðalög þörf og óþörf. Fjárflótti út úr landinu mun
hafa verið mikill á þessum árum. Þegar Danmörk
opnaðist eftir hernám nasista, var mikið af glingri
og óþarfa vörum sem keyptar höfðu verið fyrir doll-
ara, selt til Danmerkur og andvirðið lagt þar inn á
reikning íslenzkra manna og var það einn liður í
fjárflóttanum. Miklu af byggingarefnum, sem flutt
var inn var varið til bygginga á stóríbúðum, sem
leigðar eru með okurleigu.
Verðlagseftirlitið var mjög slælegt og verzlunar-
álagningin, sem leyfð var, var óhæfilega há. Þegar
stjórn Ólafs Thors fór frá völdum var búið að taka
upp niðurgreiðslur á landbúnaðarafurðum og á
miklum hluta af sjávarafurðum einnig.
Á meðan allt þetta gekk yfir þjóðina var verka-
lýðurinn hnepptur í f jötra af kommúnistum, sem lágu
36
VINNAN