Vinnan - 01.03.1949, Blaðsíða 21
alþýðunnar á því svæði, sem félagið nær yfir, aðallega með
því, að ákveða kaupgjald og vinnutíma“, svo og „að vinna
að framgangi allra þeirra mála, er verða mega til aukinna
réttinda, menningar og bættra kjara fyrir alþýðu landsins“.
I 3. gr. segir að inngöngu í félagið geti sótt „sér hver sjó-
maður, verkamaður og verkakona“ ef hann eða hún er fullra
16 ára að aldri og fær til allrar algengrar erfiðisvinnu. Þegar
virt eru þessi ákvæði samþykktanna annars vegar og hins
vegar atvinna stefnanda, sem að framan er greind, verður
ekki talið, að hún sé þess eðlis, eða hagir hans með þeim
hætti, að hann geti ekki talizt í hópi þess fólks, sem sam-
kvæmt framángreindum ákvæðum félagssamþykktanna á
heima í verkamannafélaginu Þór. Af þessu leiðir, að neitun
stefnda á því að veita honum inngöngu í verkamannafélagið
Þór, er brot á ákvæðum 1. mgr. 2. gr. laga nr. 80/1938. Er
stefnda samkvæmt þessu skylt að veita stefnanda full og ó-
skert félagsréttindi, en ekki þykja efni til að stefndi verði
dæmdur til greiðslu sektar.
Það er ekki á valdi dómsins að skera úr um það, í hvaða
röð átti að taka fyrir fundarefni á fundinum 15. september
s. 1. og ekki þykja ástæður vera fyrir hendi til þess að taka
þá kröfu stefnanda til greina, að honum verði dæmd félags-
réttindi í verkamannafélaginu frá og með 15. september s. 1.
Eftir þessum málsúrslitum er rétt, að stefndi greiði stefn-
anda málskostnað, er þykir hæfilega ákveðinn kr. 300.00
DÓMSORÐ:
Stefnda, verkamannafélaginu Þór á Selfossi, er skylt að
veita stefnanda, Guðmundi Helgasyni, full og óskert félags-
réttindi.
VINNAN
Stefndi greiði stefnanda kr. 300.00 í málskostnað innan
15 daga frá birtingu dóms þessa, að viðlagðri aðför að
lögum.
Á sömu forsendum og í framangreindum dómi segir, voru
einnig dæmdir inn í félagið eftirtaldir menn: Gunnar Sigur-
jónsson, Ólafur Friðriksson, Matthías Sveinsson, Ármann
Einarsson og Sigurður Grímsson.
SératkvæSi Ragnars Ólaíssonar:
Það er upplýst í málinu að stefnandi hefur verið fast-
ráðinn starfsmaður á bifreiðaverkstæði Kaupfélags Árnes-
inga, sem smiður síðast liðin 3—4 ár og er það enn. Stefndi
hefur aldrei samið um kaup og kjör smiða, enda ekki gert
ráð fyrir slíku í samþykktum hans. Stefnandi hefur því enga
fjárhagslega hagsmuni af því að vera félagsmaður í Verka-
mannafélaginu Þór, enda hefur hann viðurkennt það hér
fyrir dómnum.
Þar eð stefnandi vinnur að starfsgrein, sem er utan starfs-
sviðs stefnds ber stefnanda ekki skylda skv. 2. gr. laga um
stéttarfélög og vinnudeilur að veita honum félagsréttindi, og
ber því að sykna stefnda. Rétt þykir að stefnandi greiði
stefnda málskostnað kr. 300.00.
DÓMSORÐ:
Stefndi Verkamannafélagið Þór á Selfossi, skal vera sýkn
af öllum kröfum stefnanda, Guðmundar Helgasonar.
Stefnandi greiði stefnda í málskostnað kr. 300.00, innan
15 daga frá lögbirtingu dóms þessa að viðlagðri aðför að
lögum.
49