Vinnan - 01.03.1949, Blaðsíða 33
r------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------'x
Ef þér ætlið að velja vini yðar eða sjálfum yður merka bók,
viljum vér benda yður á þessar Helgafellsbækur:
KVÖLD í REYKJAVÍK eftir Kristmann Guðmundsson.
Þetta er nýjasta skáldsaga Kristmanns, glæsilega skrifuð
og svo seyðmögnuð, að enginn sleppir henni fyrr en að
loknum lestri hennar.
BÚDDHAMYNDIN eftir Jón Björnsson.
Þessi nýja skáldsaga hefur vakið mikla athygli og staðfest
það álit, er Jón ávann sér með skáldsögu sinni um Jón
biskup Gerreksson sl. ár.
VIKIVAKI eftir Gunnar Gunnarson og
JÓN ARASON eftir sama höfund.
Báðar þessar skáldsögur Gunnars eru meðal þess stór-
brotnasta, sem skrifað hefur verið á Norðurlöndum á
vorri öld.
Á SNÆFELLSNESI eftir Þórberg Þórðarson.
Enginn, sem lesið hefur þrjú fyrri bindin af ævisögu séra
Árna prófasts Þórarinssonar, má draga stundinni lengur
að kaupa þessa bók. Upplag þessa stórvirkis í íslenzkri
ævisagnaritun er brátt á þrotum.
RITSAFN Jónasar Hallgrímssonar,
má að sjálfsögðu ekki vanta í neinn bókaskáp hér á landi.
Þetta eru allt Helgafellsbækur
Munið dvallt, að það sé Helgafellsbók
v______________________________________________________________________________________________________________________________________________________________^
VIN N A N