Heimilispósturinn - 16.08.1951, Síða 2
Margt er skrýtið í Harmóníu.
Vísa Þormóðar í Gventlareyjum
um Oikl lögmann Sigurðsson.
Hálf er sigin hurð á gátt,
hittir loku kengur;
kjaftshögg hefur enginn átt
ári hjá mér lengur.
*
Vísa sama manns um Galdra-Loft,
er var fóstursonur hans:
Á hugann striðir ærið oft
óróleiki nægur
síðan ég missti hann litla Loft,
er löng mér stytti dægur.
*
Vísa Páls skálda til Geirs biskups
Vídalíns:
Guð það launi gott, er mér
gerðuð máttarlinum,
en ef hann bregzt, þá eigið þér
aðganginn að hinum.
*
Ég að öllum háska hlæ
á hafi sóns óþröngu,
mér er sama nú hvort næ
nokkru landi eða öngu.
Níels Skáldi.
Vísa Látra-Bjargar:
Brimið stranga óra er,
ymja drangar stórir hér
á fimbulvanga glórir gler,
glymja ranga-jórarner.
Einar Sæmundsson, faðir Látra-
Bjargar, skaut eitt sinn örn. Það
var talið ólánsmerki að bana erni.
Um þetta kvað Sveinn lögmaður
Sölvason:
Einar skaut, en assa hlaut
af þvi þrautir harðar,
vænginn braut, en blóðið flaut,
bolurinn laut til jarðar.
*
Fátt er of vandlega hugað.
Walter nokkur Evans í Nevada
sótti um skilnað við konu sína og
gaf henni að sök, að hún hefði hlaup-
izt frá honum fyrir 20 árum.
HEIMILISPÓSTURINN
4. hefti 1951.
JÚLl—ÁGÚST
Lestrarefni karla:
JYIynd á kápu: Guðmundur Hlíð-
dal, póst- og símamálastjóri.
Bls.
„Góð bók er gulli betri.“
Viðtal við Guðmund Hlíð-
dal, póst- og simamála-
stjóra ................. 1
Dagar og mánuðir I........ 6
Tálbeita. Veiðimannasaga.
Eftir George W. Heinold 8
Blóðhundar. Eftir Daniel P.
Mannix ................ 12
Æg féll fyrir borð. Sönn frá-
sögn eftir John Edwin
Hogg................... 17
Gott minni er gulli betra.
Smásaga eftir Richard
Connell ............ 27
Kvikmyndaopnan.......... 32
Ennfremur bridgeþáttur, reikn-
ingsþrautir, leikaramyndir,
skrýtlur o. fl.
Séra Þorlákur Þórarinsson kvað:
Ár mánuðir eru tólf að þýða,
ár er morgundagsbirtingin fríða,
ár er kölluð árferðisins blíða,
ár er vatna renniflóðið stríða,
ár er stafur einn í rúnum lýða,
ár er sólargeisla morið tíða,
ár er vængur ögurs hallar skíða,
ár er biængur hvergemlisins víða.
7. vo: ögur — vík, ögurs höll == sjór,
þess skíð = skip; vængur skips =
ár. 8.vo.: blængur = hrafn; hver-
gemlir = víti; hrafn vítis = ár.
HEIMILISPOSTURINN — FRÓÐLEIKS- OG SKEMMTIRIT
Ritstjóri Pétur Sigurðsson, magister, Aragötu 7. Afgreiðsla: Stein-
dórsprent h.f., Tjarnargötu 4, Reykjavík, sími 1174. Pósthólf 365.
ÚTGEFANDI STEINDÓRSPRENT H.F.