Heimilispósturinn - 16.08.1951, Blaðsíða 6

Heimilispósturinn - 16.08.1951, Blaðsíða 6
að senda mann eina þingmanna- leið og var það ein af röksemd- unum fyrir því, hve óbærilegur kostnaður þjóðinni væri að þessu tiltæki. Já, þegar þér minnist á pen- inga, þá man ég eitt um sím- ann, sem mig langar til þess að vita: Hvers vegna er marg- falt dýrara að nota stma hér en annars staðar í heiminum? Vegna dreifbýlis, fámennis og þess, hve kröfuharðir við er- um um að eignast á svipstundu allt það, sem tæknin hefur bezt að bjóða. Hér eru nú, þrátt fyrir dreif- býlið, hlutfallslega langtum fleiri sveitabýli, sem hafa síma en í nokkru nágrannalanda okk- ar. Kröfurnar um aukna síma eru sívaxandi, stofnunin ung og verður þó að standa á eigin fót- um, og þeir, sem síma hafa, verða því ekki einungis að greiða kostnaðinn við hann, heldur einnig að láta eitthvað af hendi rakna, svo að aðrir geti einnig orðið sömu hlunninda aðnjótandi. Er fjölgun símatœkja þá næsta viðfangsefnið ? Nei. Nú liggur okkur mest á að losna við símastaurana og leggja jarðsíma. Vísir til þess er Akureyrarlínan, sem nú er komin ofan í jörðina alla leið héðan norður í Húnavatns- sýslu. Höfum við ekki hlutfallslega fleiri radiotálstöðvar t skipum en aðrar þjóðir? Jú, og ekki einungis það, heldur einnig beinlínis tölulega 4 fleiri en t. d. siglingaþjóðin mikla, Norðmenn, að því er upp- lýst var á ráðstefnu, sem hald- in var árið 1947 í Atlantic City. Því getum við verið stoltir af. Hinsvegar erum við ekki enn nema 10. landið að ofan í röð- inni að því er varðar talsíma- fjölda á hverja 1000 íbúa. Þér eruð á förum til Finnlands. Mig minnir að ég hafi heyrt um sögulega heimkomu yðar það- an í stríðsbyrjun 19jO. Já, það var fremur óvenju- legt ferðalag. Ég var staddur í Noregi, þegar Þjóðverjar ruddust inn í landið, og eftir hér um bil þriggja mánaða flakk og tilraunir til þess að komast heim eftir einhverjum leiðum tókst mér loks að semja um það í Finnlandi að komast þaðan með 2300 tonna flutn- ingaskipi, sem Brita Torden heitir og fá loforð um, að mér yrði skotið hér á land, en skip þetta var á leið til Ameríku. Það ferðalag var ekki alltaf jafn þægilegt og það var spenn- andi, en heim komst ég þó að lokum. Segið mér nú eitt: Allar þœr framfarir, sem orðið hafa hér á landi og ég veit að þér hafið átt svo mikinn þátt í — hafa þær, að yðar áliti, gert fólk hamingjusamara en það var áð- ur? Þessu get ég hvorki svarað yður beinlínis játandi né neit- andi, en þó grunar mig að tæp- lega muni fólk nú vera ham- ingjusamara en fyrr. Ástæðan til þess er sú, að hamingjan er ekki fólgin í því einu saman að komast yfir tæknilegar nýjung- HEIMILISPÖSTURINN

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.