Heimilispósturinn - 16.08.1951, Síða 10
r
ur, uppi á 4. öld, og telja flestir
hann fyrstan einsetumann. Af
honum er saga í íslenzkri skinn-
bók.
20. janúar. Brœöramessa.
Hún er haldin í minningu
Fabíanusar og Sebastíanusar,
rómverskra manna. Þeir voru
ekki bræður og áttu ekkert skylt
saman annað en það, að þeir
liðu báðir píslarvætti þennan
dag, Fabíanus árið 250, en
Sebastíanus árið 302. Fabíanus
var biskup í Róm, en Sebastí-
anus hershöfðingi. Um hann er
saga í íslenzkri skinnbók.
21. janúar. Agnesarmessa.
Agnes var rómversk og stung-
in til bana þennan dag árið
306 af því, að hún vildi ekki eiga
heiðinn mann. Um hana og písl-
arvætti hennar er kvæði á ís-
lenzku, Agnesar diktur. Saga
hennar var þýdd á íslenzku, og
eru enn varðveitt brot af sög-
unni. Á messudag Agnesar voru
tvö hvít lömb færð frá Agnesar-
klaustri til Péturskirkju í Róm.
Voru unnin bönd af ull þeirra,
og voru þau kölluð pallía (fleir-
tala) og lögð yfir biskupa, þeg-
ar þeir voru vígðir. Er víða
minnzt á pallíum 1 íslenzkum
heimilum.
25. janúar. Pálsmessa. Hún
er haldin í minningu þess, að
Páll postuli snerist til trúar á
Krist, sbr. Postulasöguna, 9.
kap. — Pálsmessa var mikill
merkisdagur hér á landi. Af
henni mátti margt ráða um
veðurfar:
Ef heiðbjart er og himinn klár
á helga Pálusmessu,
mun þá verða mjög gott ár,
mark skal taka á þessu.
En ef þoka Óðins kvon
á þeim degi byrgir,
fjármissi og fellisvon
forsjáll bóndinn syrgir.
Falli snjór, en drjúpi dögg,
dult skal ei hvað þýðir:
Hefur þjóðin haldið glögg
harðdrægar ársins tíðir.
En ef sterkleg stormahríð
styrjöld gerir bjóða,
halda menn það merki stríð
meðal heimsins þjóða.
■S
HEIMILISPÓSTURINN