Heimilispósturinn - 16.08.1951, Qupperneq 11

Heimilispósturinn - 16.08.1951, Qupperneq 11
GEORGE W. HEINOLD: Tálbeita. Veiðimannasaga. EG var á silungsveiðum. En allan morguninn hafði ég verið að vaða yfir glerhálar klappirnar, kastað flugu og ekki orðið var. Ég hallaði mér, þreyttur og fúll, fram á hand- riðið á fornfálegri brú. Ég hafði farið niður með ánni og var nú kominn þangað, sem gæta tók sjávarfalla. Það var talið von- laust að reyna neðar. Gamall og hávær bílskrjóður var þarna á ferð, og ekillinn, gráskeggjaður öldungur, stöðv- aði forngripinn. „Veitt nokkuð, lagsi?“ spurði hann. ,,Nei,“ svaraði ég. ,,Ekki orð- ið Var.“ Sveitamaðurinn leit á mig glettnum og bláum augum. ,,Ég skal segja þér, lagsmaður,“ sagði hann, „að nú orðið kann enginn að veiða í þessari sprænu. Biddu fyrir þér, hann er hér í torfum. Dolpungar, þetta tveggja—þriggja punda.“ „Nú ertu að gera gys að mér,“ sagði ég. „Ég held nú síður,“ hreytti hann út úr sér. „Það er gallinn á ykkur, græningjunum. Þið haldið, að allir séu að draga dár að ykkur. Ég hef sagt mörg- um þínum líkum, hvernig eigi að veiða silung hérna í ánni, en ég veit ekki til, að neinn hafi farið eftir því.“ „Segðu mér, hvernig maður fer að því,“ svaraði ég til þess að gera honum til geðs. „Sjálfsagt," sagði hann með ákefð. „Fyrst skaltu halda niður með ánni, svo sem mílu, þegar farið er að falla að —“ „Nei, bíddu nú við,“ greip ég fram í, „þar er saltur sjór. Þar er enginn silungur.“ „Einmitt það!“ sagði kallinn og rauk upp og pataði vísifingr- inum framan í mig. „Hlustaðu á mig, drengur minn. Þú verð- ur aldrei var þarna neðra, ef þú rásar fram og aftur, berjandi ána með flugu og maðki. Sil- ungarnir éta ekki nema með að- falli, og ætið flyzt til, eftir því sem hækkar í ánni. Og þá er ekki annað en að finna, hvar þeir eru í ætinu, og ná þeim án þess að styggja þá.“ „En hvernig geturðu fundið þá?“ spurði ég, því að ég var orðinn forvitinn. „Afi gamli sagði mér, hvernig á að fara að,“ sagði hann og hló við. „En ef ég segi þér nú frá því?“ spurði hann tortrygg- inn, „ætlarðu þá að hlæja, eins. og hinir, og segja: Það var og?“ „Nei,“ lofaði ég. „Eg skal ekki hlæja.“ „Jæja, viltu þá lofa mér að reyna það?“ Ég lofaði, og kallinn varð ungir menn að vera,“ sagði ákaflega feginn. „Svona eiga HEIMILISPÖSTURINN 9

x

Heimilispósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.