Heimilispósturinn - 16.08.1951, Page 12

Heimilispósturinn - 16.08.1951, Page 12
liann og brosti út undir eyru. „Komdu heim með mér. Ég skal segja þér það á leiðinni.“ Meðan hann var að segja mér frá leyndarmálinu, varð mér æ ljósara, að þetta var mesti lygalaupur. Það virtist svo sem gömlu veiðiklærnar gerðu ekki annað en að fleygja bambusstöngum, sex eða átta feta löngum, út í ána og láta þær berast upp eft- ir henni með aðfallinu. Við hverja stöng var fest svo sem tíu feta færisspotti með beitt- um öngli. Fyrr eða síðar mundi beituna reka yfir torfuna, og þá mundi silungurinn taka. Og þeg- ar fallið væri að, róa veiðimenn- irnir upp ána og hirða steng- umar og veiðina. „Það er meinið,“ sagði ég, „að ég hef engar tilfæringar til þess.“ „Settu það ekki fyrir þig, drengur minn,“ sagði gamli maðurinn. „Ég hef að minnsta kosti tólf stengur í bezta lagi.“ „En ég hef enga beitu.“ ,,Þú þarft ekki annað en að taka skóflu og fara í fjóshaug- inn. Þú getur líka fundið þar ílát.“ Þegar hann hafði ekið mér aftur að bílnum mínum, gaf hann mér þessi heilræði að skilnaði: „Kastaðu stöngunum frá bátabryggjunni, einni í einu á tveggja—þriggja mín- útna fresti, og _hafðu augun á þeim þangað til um háflóð. Þá skaltu taka bátinn, sem er bundinn þar rétt hjá, og vitja um þær. Og láttu mig vita, hvernig gekk, þegar þú skilar dótinu.“ Skömmu síðar stóð ég á hryggjunni og horfði á aðfallið. Ég leit nokkrum sinnum laumu- lega í kring um mig til þess að aðgæta, hvort nokkur horfði á, því að mér var innanbrjósts eins og prófasti, sem hefur ver- ið boðið upp í negradans. Ég einsetti mér að brjóta eitt boðorðið: ég ætlaði ekki að hafa öngul á stöngunum, heldur ætl- aði ég að binda maðkinn á fær- ið. Ef ég sæi stengurnar hoss- ast (og ég var lítið trúaður á það), ætlaði ég að læðast í færi og nota veiðistöngina. Ég var ekki heldur viss um, að þessi óvenjulega veiðiaðferð væri lög- um samkvæm, en þar sem ég hafði engan öngul á færunum, var í mesta lagi hægt að draga mig fyrir geðveikralækni. Eg fleygði þrem stöngum í ána, sem var þarna um 35 feta breið. Ég faldi hinar, sem ég notaði ekki, og gekk upp með ánni og hafði gát á stöngunum, sem flutu hægt upp eftir. Þeg- ar fremsta stöngin kom að krappri bugðu á ánni, fór hún að hossast ákaflega. „Líkast til áll að fikta við hana,“ sagði ég við sjálfan mig, því að ég var staðráðinn í því að gera mér ekki neinar gyll- ingar. En ég hafði stöngina til taks, því að alltaf lifir vonin. Ég læddist varlega að bugð- unni, faldi mig bak við stóran stein og kastaði. Ég lét öngul- inn renna nærri því til botns, — þá tók stór fiskur. Stöngin bognaði samstundis í keng, og færið skarst í gegn um vatnið eins og hnífur. Og upp frá þessu var þetta fremur eins og reipdráttur við hákarl heldur en viðureign við silung, því að þessi var sterkur og ákveðinn. En ég kom honum að lok- 10 HEIMILISPÓSTURINX

x

Heimilispósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.