Heimilispósturinn - 16.08.1951, Side 17
\
upp í mitti í köldu vatni í
klukkutíma. Þegar hundarnir
komu að fenjunum, fundu þeir
nýjan þef af drengjunum í lofti
handan að, fóru í kring um fen-
in og náðu þeim uppgefnum á
fimm mínútum.
Hundur getur stundum rakið
slóð manns, þótt hann sé í bif-
reið. Georg var einu sinni til
kvaddur að leita uppi mann, sem
hafði rænt í bensínstöð. Hann
lét hundana þefa af brotnum
peningakassanum. Hundarnir
röktu slóð fram hjá fimm
húsasamstæðum. Þá settust
þeir og gáfu til kynna, að mað-
urinn hefði gert eitthvað ó-
venjulegt, — það reyndist, að
hann hafði farið upp í bíl. Allt
í einu fór Kóngur, bezti hundur-
inn, sem Georg hefur átt, að
hnusa aftur. Hann hélt áfram
hálfa aðra húsasamstæðu, þang-
að sem maðurinn hafði farið út
úr bílnum og inn í hús sitt.
Kóngur kann að hafa fundið ný-
legan þef í lofti, en það var
hvasst, og Georg heldur, að
vindurinn hafi blásið lyktinni af
manninum út úr bílglugganum
og þefurinn hafi loðað við kjall-
araveggina.
Á mjúkri og rakri jörð getur
þefur haldizt í nærri því tvær
vikur. Á heitri og þurri jörð
hverfur hann eftir fáar stundir.
Svo virðist sem eitthvað af hon-
um hverfi í jörðina, því að á
kaldri slóð krafsa hundarnir í
moldina, hnusa og halda áfram.
Hundar snúa við blöðum til þess
að leita að lykt, sem kann að
loða þar við.
Georg telur, að merkilegasta
afrek hundanna sinna hafi verið
15»
HEIMILISPÖSTURINN