Heimilispósturinn - 16.08.1951, Side 18

Heimilispósturinn - 16.08.1951, Side 18
1 bænum Eitzen. Maður hafði horfið og skilið eftir miða og sagzt ætla að fyrirfara sér, og hópur manna hafði verið að leita hans hátt upp í viku. Þeir fundu bílinn hans mannlausan á þvervegi, og Georg setti Kóng á þessa ógreinilegu slóð. Kóng- ur fór með hópinn til Dorchest- er, inni í Iowa. Hundurinn hélt áfram eftir gangstéttinni, enda þótt fjöldi manns hlyti að hafa farið yfir slóðina sex daga gamla. Sá dauði sat þar að snæðingi í veitingahúsi. Erfiðasta hlutverk Georgs var í Thompsons-málinu. Thompson var bóndi í Minnesota, sem hafði lent í harki við nágranna sína, skotið fjóra og flúið til skógar. Veður var hvasst og þurrt, þeg- ar þetta gerðist. Það er erfitt að rekja slóð á þurri jörð, en hóp- urinn elti hundana í fjóra daga um þétta skóga. Sá frægi Kóng- ur fékk lungnablæðingu af því að anda að sér heitu og þurru rykinu. Hann hélt samt áfram. Á fimmta dégi voru hundarnir að fara um kornakur, og þá staðnæmdist Kóngur og gróf upp maískólf. Thompson hafði stanzað til að éta og grafið kólfinn. Næstu tíu daga svaf Georg á slóðinni. Á einum stað hafði flóttamaðurinn hlaupið fram af kletti. Hundarnir hlupu á sama stað og toguðu Georg á eftir sér, hangandi á taumunum. Thompson gerði úrslitatilraun að villa hundana með því að fara upp nálega ókleifa fjalls- hlíð, og var nærri því dag að því; svo fór hann niður aftur skammt frá. Á leiðinni niður fór að rigna. Þegar hundarnir nálg- uðust, þefuðu þeir nýju slóðina í röku loftinu. Þeir skeyttu ekki brekkunni, en fóru rakleitt á nýju slóðina. Flóttamaðurinn var yfirkominn af þreytu og gafst upp án nokkurs mótþróa. Næst því að elta uppi saka- menn fékkst- Georg mest við að leita að týndum börnum. Blóð- hundar eru tilvaldir til þessa, en margir foreldrar eru hræddir við að láta beita þeim, af því að þeir óttast að ástæðulausu, að hundarnir muni bíta börn. En blóðhundar eru í raun réttri ákaflega meinlausir. Þeir voru í upphafi ræktaðir sem veiði- hundar, og orðið ,,blóðhundur“ merkir einfaldlega hundur af hreinu og göfugu kyni, eins og líka er viðhaft um úrvalshesta. Margir hafa spurt Georg, hvers vegna hann hætti ekki starfi sínu í veitingastaðnum og hafi atvinnu af hundum sínum. „Ef ég geri það,“ segir Georg, „get ég ekki farið út með hund- ana, nema taka gjald fyrir það. Margsinnis fæ ég hjálparbeiðni frá fólki, sem getur ekki greitt, bóndakona hefur villzt í stór- hríð, sjómannsbörn týnzt. I skálanum hef ég ákveðið kaup, og ég get farið út með hundana, þegar mér sýnist. Og það hentar mér vel.“ •k Nokkrir strákar voru að tala um rakstur; sumir höfðu borið við að raka sig, en flestir ekki. „Ég hef rakað mig i tvö ár,“ sagði einn mannalega, — „og ég skar mig í bæði skiptin." Hann: „Vitringar búa til mál- tæki, og fíflin endurtaka þau.“ Hún: „Hvaða vitringur bjó nú til • þetta máltæki?“ 16 HEIMILISPÓSTURINN

x

Heimilispósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.