Heimilispósturinn - 16.08.1951, Blaðsíða 19

Heimilispósturinn - 16.08.1951, Blaðsíða 19
JOHN EDWIN HOGG: Ég féll fyrir borð. Sönn saga. EFTIRMIÐDAG EINN í síðastliðn- um september, um það leyti sem eg var að ganga frá skrifborðinu mínu, hringdi siminn í skrifstofunni. ,,Er þetta hr. Hogg ?“ var spurt frá símstöðinni. Ég kvað já við því. „Gerið svo vel, Avalon óskar við- tals við yður." Það kom í ljós, að þetta var vin- ur minn dr. Wilbom, mikill stangar- veiðimaður á djúpsævi, sem bjó i Avalon á Santa Catalínaey við vest- urströnd Kalifomíu. Hann var að segja mér frá mikilli göngu ýmissa fisktegunda, sem veiddar eru á stöng af opnum bátum á þessum slóðum, tuna, albacore, bonita og marlin sverðfiska. Ég þakkaði honum fyrir hugulsemina og sagði honum, að eg mundi að öllum líkindum koma í bátnum mínum til Avalon undir næstu helgi. Þessar fréttir vöktu mjög athygli mina, þvi eg hafði um margra ára skeið haft áhuga á og stundað er tækifæri gáfust þessa tegund fisk- veiða og taldi þær hina ágætustu íþrótt. Ég hafði jafnvel sett met, sem enn stóð, í veiði stórra fiska á til- tölulega litla báta, með ágæta smá- bátnum mínum Igikik, og auk þess unnið mörg verðlaun i listfiski. Ég hafði áður farið einsamall í þessum bát yfir Santa Barbara-sundið milli meginlandsins og eyjarinnar og á- kvað að gera það aftur núna. Bát- ur þessi var sextán ensk fet á lengd og knúinn tveggja hesta utanborðs- vél. Ég hafði farið ýmsar svaðilfarir á honum og treysti honum hið bezta. Þegar eg hugsa um þessa ferð mina eftir á og hinar örlagariku af- leiðingar hennar, þá verð eg að segja, að ekkert hefði getað freistað mín til að fara hana, ef eg hefði vitað, að fyrir mér lægju slikar þrautir og lífshætta sem á daginn kom og eg ætla að segja hér frá. Aldrei skal eg fara aftur í veiðiferð á smábát, án þess að hafa annan mann með mér. Dr. Wilborn hafði freistað mín með því að skýra mér frá fiskigöngunni. Hið eina, sem gerði fyrirætlun mína dálítið óvissa, var hin ekki óþekkta ástæða, vöntun á skotsilfri. Næsta dag réðst þó fram úr þessu á þægi- legan hátt, því að vinur minn einn, er skuldaði mér hundrað dali, kom til mín í skrifstofuna og greiddi mér skuldina með tíu fallegum „grænbök- um“. Ég kvittaði' fyrir greiðslunni, þakkaði, og var hinn ánægðasti yfir að fjármál fjölskyldunnar voru, t bráðina, komin í allgott lag. Ég sím- aði svo dr. Wilborn og sagði hon- um, að eg myndi koma til Avalon næsta laugardag síðdegis. Litli báturinn minn, „Igikik" (sertr þýðir á mállýzku Siwash-rauðskinna „góð veiði") var í vörzlu „Siglinga- félags Kaliforniu" í Los Angeleshöfn. Undirbúningur minn undir ferðina tók skamma stund. Ég þurfti aðeins- að sjá um að koma konu minni í heimsókn til vinafólks okkar í Santa Monika og aðgæta og dytta að veiðar- HEIMILISPÓSTURINN 1T

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.