Heimilispósturinn - 16.08.1951, Page 22

Heimilispósturinn - 16.08.1951, Page 22
bátinn minn hverfa yfir næsta öldu- fald, um leið og ég seig niSur hina hliðina. fög tók sundtökin ósjálfrátt, um leið og ég kom í sjóinn, en fór snöggv- ast í kaf. Þegar ég barst upp á kambinn á næstu öldu, leit ég bát- inn minn á hraðri.ferð burt frá mér. Vélin var í fullum gangi og stefnið vissi beint til hafs — á Kína. Ég hugleiddi með sjálfum mér, hve langt hahn mundi komast áður en elds- neytið þryti. Mér varð ekki Ijóst fyrr en eftir talsverðan tíma, hve vonlaust var, að ég kæmist lífs af úr þessum háska. Ég varð dálítið vonbetri, er ég minntist þess, að ég hafði synt meira en tuttugu kílóm. á sex klukkustimd- um á sundmóti fyrir nokkrum mán- uðum.*) Ég bjóst við, að ég væri að líkindum ekki meira en fimmtán kíló- metra undan syðsta odda Santa Cata- línueyjar, og tók strax stefnu á eyna. En fimmtán kílómetrar er langt sund, þegar enginn bátur er með og maður verður að treysta eingöngu á sjálfan sig. Svo voru straumar og sjávarföll, sem ég vissi litið um. Hvað sem þessu leið, þá varð ég fyrst af öllu að afklæða mig. Ég tók af mér skóna og svo, smátt og smátt, losaði ég mig við vestið, skyrtuna, buxurnar og nærfötin. Þegar ég hafði afklæðzt, fannst mér ég fljóta létti- lega, og mér fannst lítill vafi, að ég hefði nægilegt þol til að synda í land. Um leið og ég lyftist upp á öldu- hrygg og barst niður brekkuna hinum megin, kom ég auga á vestið mitt, sem var að hverfa niður i blátt djúp- ið. Þá datt mér í hug, að mér hafði gleymzt, að í einum vasa þess voru enn níutíu dalir eftir af skotsilfri mínu. Enda þótt vel gæti verið að *) Það hefur að líkindum verið í meðstreymi. — Þýð. ég drukknaði og gæti þess vegna aldrei eytt þessu fé, þá fannst mér þó fjandi hart, að láta svona mikið fé í ágætum amerískum seðlum fara þannig forgörðum, — Skotaeðli mitt gerði uppreisn gegn slíku. Ég setti því upp endann eins og önd og synti niður á eftir vestinu. Til allrar ham- ingju voru peningarnir ennþá í vas- anum, og þeir mundu þorna og hafa sitt fulla gildi, þegar á land væri komið. Ég fór i flíkina, hneppti henni og fór að athuga ráð mitt. Langt í fjarska sá ég tindana á Santa Catalínuey, þegar ég lyftist upp á bylgjukambana. Eyjan sýnd- ist órafjarlæg. Ég notaði útsýnið af einum tíu, tólf ölduhryggjum til að skyggnast um og lita í kringum mig o,g gekk úr skugga um, að enginn bátur var í augsýn. Það voru helzt bátar fiskimanna, sem búast mátti við, að væru á þessum slóðum, og ég fór að óska þess, að allir túnfisk- ar í Kyrrahafinu syntu til mín — og hákarlarnir fjarlægðust mig. Ef ég gæti komizt í nálægð við fiskatorfu, taldi ég nokkumveginn víst, að veiði- mennirnir mundu elta hana, og þá var líklegt, að mér væri borgið. Á meðan ég velti þessu fyrir mér, synti ég rólega í áttina til eyjarinn- ar. Ég reyndi ekki að hraða mér, því að ég vissi, að það var óþörf eyðsla á kröftum. Ég synti bringusund, því að mér hefur reynzt það ágæt sund- aðferð, þegar úthaldið er aðalatriðið. Það var nokkur vestankaldi, sem ýfði öldurnar og gaf þeim lyftingu, sem var mér í hag, með stefnu minni á Kínaödda — þar var helzt von fiski- báta. Af því að ég vissi um sjávar- föllin á þessum slóðum, þá vissi ég, að aðfallið — austurfallið — mundi byrja um sexleytið um kvöldið. Ef ég gæti hagnýtt mér það, þá væni mikil líkindi til þess, að mér tækist. að ná landi. En ef vindstaða breytt- 20 HEIMILISPÓSTURINrt

x

Heimilispósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.