Heimilispósturinn - 16.08.1951, Blaðsíða 24

Heimilispósturinn - 16.08.1951, Blaðsíða 24
austur á við síðustu þrjá tímana. Ég fór að gerast uggandi um, að mér mundi takast að komast fyrir röstina við suðurenda eyjarinnar, áð- ur en vesturfallið byrjaði. Austan- ylgjan gerði nú sitt til að bera mig til hafs, úr landsýn, en ef ég legð- ist fastara á sundið, til að komast undir land áður en straumurinn breyttist, þá mundi ég þreyta mig meira en varlegt væri. Meðan ég synti áfram, vélrænum sundtökum, fór ég að þakka mínum sæla fyrir það með sjálfum mér, að lífsábyrgðarskírteinið mitt og slysa- tryggingin skyldu vera í lagi, og ég var að hugsa um, hve dýrt spaug þetta yrði fyrir félögin, sem áttu að greiða tryggingarnar. Ég myndi að líkindum finnast, þótt ég drukkn- aði, og tómur báturinn myndi vera þess talandi vitni, hvað um mig hefði orðið. 1 þessu sambandi hrósaði ég líka happi yfir því, að ég náði vest- inu. Nafn mitt og heimilisfang voru á fóðrinu, og sú staðreynd, að níutiu dalir voru í vasanum, gerði ágizk- anir um sjálfsmorð ósennilegar. Kon- an mín myndi verða falleg ekkja, hugsaði ég. Um sexleytið, þegar rnjög var tek- ið að halla að sólarlagi, fór þreyta að sækja á mig, eftir að hafa verið svona lengi á sundi. Mér fannst ég þyngri í sjónum og fingur mínir voru fárnir að dofna. Útlitið var farið að sýnast von- - lítið, þegar ég kom af öldufaldi auga á fiskibát með þrem eða fjórum mönnum innanborðs, er var á sveimi á grynningunum við Kínaodda. Fjar- lægðin var innan við fimm kílómetra, og ég fór að reyna að gera vart við mig. Ég gusaði sjónum, buslaði og hamaðist, eins og ég gat, fór aftur úr vestinu og veifaði því yfir höfði mér, þegar ég kom upp á öldukamb- ana. En ég hefði alveg eins getað sparað mér fyrirhöfnina; þetta bar engan árangur. Um sólarlagið, skömmu síðar, hélt báturinn af stað- i áttina til Avalon. Það dimmdi fljótt eftir sólarlagið; á þessum breiddarstigum er rökkrið mjög stutt. En það var j ekki lengi myrkt. Innan einnar stundar varð aftur albjart, þegar tunglið kom upp. Hafið varð nú að silfursjó í fölum geislum mánans, en skuggahliðina af hátindum Santa Catalínueyjar bar við himin í fjarska, þegar mig bar upp á bylgjufaldana. Um þetta leyti var mig farið að verkja í augun af sjávarseltunni. Mér virtist lítið miða áleiðis, og- þegar ég hætti að synda dálitla stund til að reyna < að fá vitneskju um strauminn, fékk ég staðfestingu á. versta grun mínum, að ég var kom- inn í röstina við suðurodda eyjarinn- ar, og hún bar mig beint til hafs. Mig virtist hafa borið vestur frá Kínaodda, og ég þóttist ekki fara. fjarri sanni, er ég taldi mig fjær landi nú en tveim stundum áður., Þetta var dapurleg uppgötvun. Kraft- ar mínir voru nú óðum að þverra, og ég vissi, að þótt ég gæti synt í tólf stundir í viðbót, þá hefði það ekki verið til neins, það var gersam- lega vonlaust að ná landi á mótl straumnum. Ég átti nú aðeins ein® úrkosta, að halda mér á floti eins. lengi og kraftarnir entust og vona, að örlögin væru mér svo hliðholl að láta fiskibát verða á leið minni, þeg- ar birti. Ég vonaði, að þótt fallið bæri mig til hafs með nóttunni, þá gæti ég aftur borizt að landi með morgninum. Enn þá lifði vonin í brjósti mér, þótt veik væri. Ég var eiginlega ekki að synda, heldur tróð ég marvaða til að halda mér uppi, þegar ég rak höndina 1 slímugan, ilangan hlut, er flaut í vatnsskorpunni. Ég vissi strax, hvað 22 HEIMILISPÓSTURINjSr

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.