Heimilispósturinn - 16.08.1951, Blaðsíða 26

Heimilispósturinn - 16.08.1951, Blaðsíða 26
Þegar ég rankaSi við mér, lá ég á strádýnu á þilfarinu á stórum bát, en japönsk stúlka þvoði' mér um aug- un úr volgu vatni og japanskur sjó- maður hellti whiskýi ofan í kverk- ar mér úr stútmjóum tekatli. Fleira fólk stóð þarna í kringum okkur og talaði saman I ákafa á máli, sem ég skildi aðeins fá orð í. Manninum með ketilinn hafði auð- sjáanlega tekizt að hella nægilega miklu whiskýi ofan i mig til að vekja mig úr öngvitinu. Mér tókst, með hinum fátæklega orðaforða mínum að spyrja á japönsku: „Talið þið ensku?“ ,,Nei,“ svaraði hann stirðlega. „Við bátur X------, Ensenada, Mexíkó. Hr. Watanabe, hann tala spánsk. Kann- ske þér tala spánsk?" Um leið kall- aði hann á hr. Watanabe, sem ruddi sér leið gegnum þröngina á þilfarinu og kom til okkar. Hr. Watanabe tal- aði spænsku vel. Ég talaði þá tungu, og varð feginn að hitta mann, sem gæti túlkað þarfir mínar fyrir skip- stjórnara. Skömmu síðar hjálpuðu tveir skip- verjar mér undir þiljur. Þeir lögðu mig i rúm, þöktu mig ábreiðum og gáfu mér heita, nærandi drykki. Önn- ur japönsk kona kom með hitapoka og hálfflösku af whiskýi, sem hún setti í skáp við höfðalagið á rúminu, og glas hjá. Ég fékk mér góðan sopa af víninu, og líf fór brátt að færast í dofna limi mína. Brátt fór mér að hitna, ég hallaði mér út af og féll í væran svefn. Ég hlýt að háfa sofið i nokkrar klukkustundir; þá vakti mig japönsk kona, er var að þreifa á höndum mínum og enni, — líklega til að vita, hvort ég hefði fengið hita. Hún virt- ist ánægð með heilsu mína og spurði mig á bjagaðri ensku, hvort mig langaði ekki í að borða eitthvað. Ég f ullvissaði hana um, að það vildi ég gjarna. Eftir nokkrar mínútur færði hún mér stóran disk af hrísgrjón- um, soðnar ertur og soðinn fisk, svo kom hún með te. Ég gerði matnum góð skil, drakk nokkra bolla af te og fannst ég nú vera á góðri leið að ná mér aftur. Skömmu eftir að ég hafði matazt, kom Watanabe inn til mín og spurði mig á spænsku, hvort ég væri nægi- lega styrkur til að tala við hr. Ya- maguchi, skipstjórann á togaranum. Ég kvað mér ánægju að tala við skipstjórann, ef hann vildi vera túlk- ur. Watanabe fór þá á burt og kom að vörmu spori með skipstjórann, sem kom inn, virðulegur I fasi eins og flotaforingi. Watanabe spurði á spænsku: „Skipstjórinn óskar að vita, hvernig á því stóðð, að við skyldum finna yður á sundi sextán sjómíl- ur vestur af Santa Catalínuey." Ég skýrði ástæðuna í stuttu máli á spænsku og Watanabe þýddi það á japönsku. Skipstjórinn hneigði höf- uðið til marks um, að hann skildi þetta fullkomlega. Skipstjóri sagði síðan — Watanabe túlkaði það jafnóðum: „Eftir því sem þér segið, höfum við bjargað yður frá drukknun. I stað þess óska ég, að þér gefið mér drengskaparloforð yðar um það, að koma ekki upp um okkur. Þetta skip er, að því er virðist, togari, sem á lögheimili í Ensenada, Mexíkó. En það græðir enginn á fiskveiðum, við notum það starf aðeins til að hlyja þann at- vinnuveg, sem við rekum -— nefni- lega áfengissmyglun. Við settum tvö þúsund og fjögur hundruð kassa af sterkum drykkjum á land nærri — — —■ i nótt sem leið, og vopnaðir flutningabílar fluttu það til Los Angeles. „Þegar við sáum yður í sjónum og héldum að þér væruð túnfiska- vaða, þá ætluðum við að veiða nokkra 24 HEIMILISPÓSTURINN

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.