Heimilispósturinn - 16.08.1951, Side 29

Heimilispósturinn - 16.08.1951, Side 29
RICHARD CONNELL: Gott minni er gulli betra. OKUNNI maðurinn með ístruna og demantana, meira en lítið drukkinn, vildi endilega tala. Ég lét J>að eftir honum. Ekki svo að skilja, að ég hefði getað komið í veg fyrir Jiað. Við vorum að fara yfir Sundið, og mér leið ekki rétt vel. „Gott minni,“ sagði hann hátíð- lega, „er gulli betra. Annað hvort hefurðu það — eða ekki. Eins og vörtur." Ég gaf frá mér hljóð; það gat þýtt hvað sem var. „Það voru einu sinni þrír náung- ar,“ sagði hann, „Haig og Griggs og McGinty . . .“ Ég stundi lágt. Það var ekki á verra von, saga um Skota, Englend- ing og Ira. En ég var of aumur til J)ess að standa upp úr stólnum við hliðina á honum. „Þeir voru að leita að gulli,“ sagði hann. „1 Afríku. Höfðu ekki fundið upp í nös á ketti. Þeir lágu við hjá vatni, — hvern skollinn heitir það nú aftur. Þeir voru að éta bolaspað. „Hvar er saltið?" segir Griggs. Hann var enskur og rellinn. „Gleymdi því,“ segir McGinty; hann hafði far- ið suður eftir vistum. „Það var mikið, að þú skyldir ekki gleyma að koma aftur,“ segir Haig. „Ég hef fréttir," segir McGinty. „Stórtíðindi." „Einu tíðindin, sem mig langar til að heyra, eru þau, að þú vitir um gull. Sand af gulli," segir Haig. Þú veizt, hvernig Skotar eru. „Það var lóðið,“ segir McGinty. Þeir snarhættu að éta. „Svo er mál með vexti,“ segir Mc Ginty. „Munið þið ekki eftir Pétri Bloom? Nú, nú, hann dó í Jóhann- esarborg, meðan ég var þar. Ég sá hann leggja upp laupana. Fyrir langa-löngu bjargaði ég honum úr klónum á hópi af Zúlumönnum. Nú- nú, þegar Pési gamli er kominn í andlátið, segir hann mér, að hann sé nýkominn úr gulleit, og sýnir mér dálítið af málmgrýti, og þarna er gullið eins og rúsínur í graut. Og af því að ég var lagsmaður hans, segir hann mér, hvar hann hafi fund- ið það. Svo rymur í honum, og hann gefur upp goluna.“ „Ha,“ æpa Griggs og Haig ein- um rómi. „Hvar fann hann það?“ „1 litlum dal, hálfa mílu í háaust- ur frá einhverju þorpi." ,Hvaða þorpi?“ öskra Griggs og Haig. McGinty klórar sér í höfðinu. „Jæja, ég skal segja ykkur,“ segir hann. „það er skrýtið, en ég er bú- inn að gleyma því.“ „Ha!“ belja þeir. „Þetta datt alveg úr mér, þegar Pési gamli var að skilja við,“ segir McGinty. „Hugsaðu þig um, maður, hugsaðu þig um,“ öskra þeir. „Mig verkjar í hausnum af um- hugsun,“ segir McGinty. „Látum okk- ur sjá. Einhvers staðar i Afríku." „Einmitt það,“ segir Griggs háðs- lega, eins og Englendingum er lagið. „Allra notalegasta kot, Afríka. Þurf- um ekki annað en að litast um. Byrja suður á Kap og leita norður til Kaíró.“ HEIMILISPÖSTURINN 27

x

Heimilispósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.