Heimilispósturinn - 16.08.1951, Blaðsíða 30

Heimilispósturinn - 16.08.1951, Blaðsíða 30
„Hvernig nafn var það?“ hvæsir Haig. „Það var bara nafn,“ segir Mc- Ginty. „Ég held, að það hafi byrjað á P, eða kannski B. Það er allt í þoku.“ „Þú ert fæddur í þoku,“ segir Griggs. „Var það Zunds, Lepata, Haver- klip, Usutu, Dullstroom, Smitsdorp, Wittpoort, Blinkwater — ?“ spyr Haig. „Veit ekki,“ segir McGinty, „það er einhvers staðar í höfðinu á mér.“ „Við skulum kljúfa það og gá,“ segir Griggs. „Er það langt nafn? segir Haig. „Ekki mjög,“ segir McGinty. „Er það stutt?“ segir Griggs. „Ekki mjög,“ segir McGinty. „En ég er ekki alveg viss. Það er alveg á vörunum á mér.“ „Mundirðu kannast við það, ef þú heyrðir það?“ spyr Haig. „Kannski," segir McGinty. Þeir taka nú fram hrúgu áf landa- bréfum og byrja. Alla nóttina bauna þeir nöfnum á McGinty. Þeir fá ekk- ert út úr Mc Ginty annað en það, að hann haldi, að það sé eitthvað á borð við Higginsville, eða kannski Ballyshannon. Þeir hella öllu romminu sínu ofan í hann, og vona, að það losi um eitt- hvað í hausnum á honum, en þá fer hann að syfja. Þeir eru orðnir snar- vitlausastir allra manna, sem sögur fara af, hvítra, svartra og gulra, og McGinty er ekki heldur neitt kátur, þangað til hann deyr. Þegar hann vaknar um hádegi, get- ur hann ekki hreyft sig, því að hann er bundinn á höndum og fótum. Griggs og Haig sitja hjá honum og segja ekkert og eru skuggalegir á svip. „Hó,“ æpir McGinty. „Hvað er þetta? Hvað ætlið þið að gera?“ „Það er ekki nema eitt að gera við kvikindi eins og þig,“ segir Haig og er mjög súr og skozkur á svipinn. „Kasta þér í vatnið. Er það ekki satt, Griggs?" „Laukrétt," segir Griggs, kaldur og enskur. Svo að þeir taka McGinty, sem er enginn afturkreistingur, og bera hann niður að vatninu, en hann brýst um og beljar, og fleygja honum á tuttugu feta dýpi. Þeir eru fljótir að draga hann upp og hrista mestu af vatninu upp úr honum, og hann opnar augun, og þeir urra í eyrað á honum: „Fljótur! Hvað hét það?“ McGinty-deplar augunum og segir: „Þetta var alveg að koma. Ég sá öll atvik í lífi mínu, — gamla heimilið í Donegal, þegar ég stal brókunum biskupsins, þegar ég smyglaði ianda, allar stelpurnar sem ég kyssti (og það tók langan tíma), náungann sem ég sló með flösku i Híó, stelpuna, sem ég var nærri þvl giftur í Nome, og ég var að koma til Afríku, þeg- ar —“ Griggs lítur á Haig. Haig lítur 4 Griggs. Þeir taka McGinty upp og kasta honum aftur út í. Þeir halda honum lengur niðri en áður. En það kemur fyrir ekki. Hann var ekki kominn lengra en þar sem hann hafði prettað Hottentotta um hlass af fíla- beini. Svo að þeir kasta honum enn út í. 1 þetta skipti munaði ekki hárs- breidd, að hann væri steindauður, en þeir kreistu úr honum vatnið, og hann raknar við og hóstar upp úr sér nafninu á þorpinu. Þeir fara nú þangað daginn eftir, og viti menn, þeir finna þarna hauga af gulli, og þeir helga sér landið, og þetta er strax orðin stærsta og frægasta gullnáma i heimi. Nú er 28 heimilispósttjrinn:

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.