Heimilispósturinn - 16.08.1951, Blaðsíða 33

Heimilispósturinn - 16.08.1951, Blaðsíða 33
mátti. Hann fer inn í borðið á tromptíu og spilar tígli í 10. útspili. Nú þarf hann ekki annað en að hleypa tígultíu undir V, þá verður V annaðhvort að spila tígli aftur eða í lit, sem hvorki N né S eiga. En V er hrekkjóttur: hann á nú eftir H G og T K, 4 og lætur tígulfjarka í tíuna. S ályktar, að A eigi nú eftir bæði kóng og gosa í tígli; hann get- ur því fengið alla slagina, en í para- keppni getur munað mjög mikið urn einn slag. S spilar því síðasta tromp- inu undir ásinn, sem er síðasta tromp í borði, og spilar tígli. En A vissi líka sinu viti; hann grunar, að V eigi kónginn í tígli, annars hefði S lagt spilin upp, og skilur, til hvers hann ætlast. A lætur þvi tigulgosa, en S þykist nú öruggur um, að hann eigi kónginn eftir, og lætur drottn- ingu. V fær slaginn, og síðasta slag- inn á hjartagosa. 3. Eftir þessa brögðóttu varnarspil- ara er rétt að sýna slunginn sagn- hafa: Norður: 4 10, 9, 8, 7, 6 V D,8,4 4 Á, D, 5 4» 10,2 Vestur: Austur: ♦ 3 4 K,G,4 y Á, K, 10, 6, 3 ý 9, 7, 5, 2 4 K, 7 4 8, 3 Jft Á, K, D, 7, 3 Jf, G, 8, 6, 4 4 Á, D, 5, 2 ¥ G 4 G, 10, 9, 6, 4, 2 4 9,5 V spilar 4 hjörtu. N spilar út spaða- tíu. Hvernig á V að spila? Spilið vinnst, ef ekki þarf að gefa 2 slagi á tígul, en það er nokkurn veginn víst að S spilar tígli, þegar hann kemst inn. V á því að láta spaðafjarka úr borði, og þá myndu flestir með spil Suðurs hleypa tíunni. N heldur þá sennilega áfram með spaðann, hann á ekki á betra völ, V trompar, tekur 2 hæstu trompin, spilar því næst laufi, þangað til N trompar með drottningunni. Suður kemst aldrei inn, og V gefur annan tígulinn í borði í fimmta laufið. Þetta spil var spilað í meistara- keppni í Bandaríkjunum, í para- keppni kvenna. Flestar konurnar, er spiluðu í V, létu spaðagosa úr borði í útspilið og töpuðu spilinu. Ein kona lét fjarkann og vann spilið. Það var Helen Sobel, sem er talin einn snjall- asti bridgespilari, sem nú er uppi. Gissur biskup Einarsson. Ludvig Harboe Sjálands- biskup segir í riti sínu um sið- skiptin á íslandi svo frá mála- kunnáttu Gissurar Einarssonar, en hann hafði stundað nám í Hamborg og Wittenberg: Hann talaði svo vel þýzku, að þarlendir menn urðu oft að játa, að þeir myndu telja hann fædd- an í Þýzkalandi, ef þeir hefðu ekki vitað, hvaðan hann var. Til dæmis um þetta er einnig frá. því sagt, að þá er hann hafði verið valinn til biskups í Skál- holti og kom til Kaupmanna- hafnar árið 1539 til vígslu, lagði Kristján konungur þriðji fyrir hann að tala annaðhvort þýzku eða latínu, og hann valdi þýzku, en þá vildi drottningin ekki trúa því, að hann væri íslendingur. Varð þá að hafa uppi á íslenzk- um pilti, sem skyldi tala við hann íslenzku, og voru þeir einnig látnir lesa fræði Lúters hin minni á íslenzku. HEIMILISPÖSTURINN 31

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.