Heimilispósturinn - 16.08.1951, Side 34
TJARNARBÍÓ:
HEIMILIS
PófuRINN
Kvíkmyndaopnan
Wild Harvest.
Aðalhlutverk: Alan Ladd, Dorothy Lamour.
Tjarnarhíó sýnir á næstunni kvikmyndina Wild Harvest,
með Ladd og Lamour í aðalhlutverkunum. Myndin fjallar
um hveitiuppskeru, eins og nafnið bendir til, og er ýmsum
þáttum marglegs iífs ofið inn í.
Myndin hefur hlotið geysimiklar vinsældir hvarvetna,
og er talin ein fremsta mynd Alans Ladds. — Hún er byggð
á sögunni „The big Haircut“ eftir Hauston Branch, um
fólkið sem annast hveitiuppskeruna í Texas, Kansas, Suður
Dakota og Nebraska. — Alan Ladd og Dorothy Lamour
hafa aldrei áður leikið saman aðlhlutverk í neinni mynd,
en gagnrýnendur telja að þeim hafi aldrei tekizt betur upp
en í „Wild Harvest".
Hinir mörgu aðdáendur þessara ágætu leikara munu
vafalaust hlakka til að sjá þau í þessari ágætu mynd,
Alan Ladd og Dorothy Lampur.
NÝJA BÍÖ:
Scott of the Antarctic.
Brezk mynd frá Ealing Studios.
Framleiðandi Michael Balcön. Leik-
stjóri Charles Frend. Aðalhlutverk:
John Mills. .
Þetta er stórfengleg mynd í eðlilegum
litum (Technicolor), um för Roberts
Scotts og félaga hans til suðurheims-
skautsins, afrek þeirra, hrakninga, raun-
ir og hörmuleg endalok.
Robert F. Scott var höfuðsmaður í
brezka sjóliðinu. Hann hafði verið foringi
leiðangurs til Isálfimnar 1901—1904; fórst
honum það vel úr hendi, og hlaut hann
mikla frægð af. Árið 1910 tók hann að
hugsa aftur til suðurferðar, keypti traust
skip og réð til sín valið lið. Ferðin var
hafin um mitt sumar og voru þeir komn-
ir suður i ársbyrjun 1911, en þá er há-
sumar á þeim slóðum.
Leiðangur þessi skyldi sinna ýmsum
vísindastörfum, en eitt helzta markmiðið
var að reyna að komast á heimskautið,
og skyldi Scott sjálfur stýra beim flokki,
sem til þeirrar farar vur vaPnn. Var þá
svo áliðið sumars, að þessi ferð varð að
bíða vors. Þarna hittu þeir Ronald Amund-
sen og félaga hans, sem ætluðu einnig að
freista að finna heimskautið um sama
leyti.
Þegar voraði, í október 1911, var haf-
inn undirbúningur undir suðurförina, en
3. nóvember var lagt upp í hana. Voru
þeir 9 saman, en á miðri leið sneru fjór-
ir við, eins og ráð hafði verið fyrir gert,
en fimm héldu áfram. Sóttist ferðin greið-
lega, og voru þeir komnir á heimskautið
16. janúar 1912. Þá komu fyrstu von-
brigðin: Þarna blakti norski fáninn,
Amundsen hafði lagt fyrr upp frá öðrum
stað og orðið rétt um mánuði á undan.
John Mills.
Þarna er sléttur jökull, um 10.000 fet yfir
sjó.
Ferðin hafði til þessa gengið að óskum,
en nú varð þeim allt þyngra. Veður hafði
verið sæmilegt, en tók nú að spillast,
allskonar kvillar og óhöpp steðjuðu að.
Þrek sumra leiðangursmanna tók að bila
eftir margra mánaða strit, færðin varð
sífellt þyngri. Loks kom að því, að einn
þeirra þraut, Evans að nafni, og andaðist
hann 17. febrúar. Enn var áfram haldið,
annar leiðangursmanna, Oates, varð svo
veikur, að hann gat ekki fylgzt með, og
að lokum óskaði hann að verða skilinn
eftir. Félagar hans þvertóku fyrir það, en
eina nóttina hvarf hann í foráttuveðri úr
tjaldinu og kom ekki aftur.
Nú voru aðeins þrír eftir. Enn hélzt
sama ótíðin, þeir urðu oft veðurtepptir,
vistir gengu til þurrðar og heilsu þeirra
hrakaði dag frá degi. 29. marz tjölduðu
þeir í sextugasta sinn frá því er þeir fóru
af heimskautinu; þá áttu þeir 18 km. leið
að einu forðabúrinu. Þar lágu þeir veður-
tepptir í nokkra daga, •— og þar urðu
þeir til.
Scott hafði lagt svo fyrir, að tveir menn
skyldu leggja af stað á ákveðnum degi
til móts við hann, og skildu þeir hittast
við forðabúr eitt, það hið sama, sem þeir
Scott áttu aðeins skamman spöl ófarinn
til. Sendimenn komust í áfangastað, biðu
þar i marga daga, en treysust ekki vegna
illviðra að, halda lengra suður. Þeir kom-
ust nauðulega og veikir aftur til félaga
sinna.
Leið svo veturinn, en þegar voraði, í
október 1912, fóru 11 menn að leita að
Scott og félögum hans. Þeir fundu tjald-
ið og lík þeirra þriggja, er þangað kom-
ust. Þar votu dagbækur Scotts, með ná-
kva^f??"' ri .vYög'n um ferðalagið og mörg
bréf til ástvina hans og annarra. Hann
hafði lifað lengst þeirra félaga.
Þannig lauk helför Scotts til heims-
skautsins.
§?
#