Vinnan - 01.12.1974, Blaðsíða 19

Vinnan - 01.12.1974, Blaðsíða 19
IÐJA 40 ARA löja 40 ára Hinn 17. október s.l. varð Iðja, félag verksmiðjufólks í Reykjavík, 40 ára. Fyrsti formaður Iðju var Runólfur Pét- ursson frá Geirastöðum í Hróarstungu. Hann lést árið 1963. Fljótlega eftir stofn- un Iðju hafði gengið í félagið verkafólk úr ýmsum greinum iðnaðarins, sem þá var reyudar að stíga sín fyrstu skref hér á landi. Iðja kom brátt fram sem heild- arsamtök iðnverkafólks í Reykjavik og fyrstu heildarsamningana gerir félagið 1935. Formenn Iðju hafa verið auk Runólfs Péturssonar þeir Björn Bjarnason. Pétur Lárusson, Guðjón Sv. Sigurðsson og Runólfur Péturs’son, sem er núverandi formaður. Auk hans sitja í stjórn þau Guðmundur Þ. Jónsson, Bjarni Jakobs- son, Gunnlaugur Einarsson, Klara Ge- orgsdóttir, María Vilhjálmsdóttir og Ragnheiður Sigurðardóttir. í tilefni afmælisins er hér birtur hluti greinar sem Björn Bjarnason hefur skrif- að í veglegt afmælisblað sem Iðja hefur gefið út. Greinina neínir Björn „40 ár". Honum farast svo orð: Njálsson Dagsbrún. 45 ? 46 Guðjón Baldvins- son. 47 Jón Jóhannesson ísaf. 48 Eiríkur Ein- arsson ísaf. 49 Ingimar Bjarnason Hnífsd. 50 Guðmundur Sigurgeirsson Drangsn. 51 Sigur- björn Oddson. 52 Arnþór Jóhannesson Sigluf. 53 ? 54 ? 55 Jóhann Fr. Guðmundsson. 56 ? 57 Pétur vélstj. Sigluf. 58 Sigurður Breiðfjörð. 59 Guðmundur Ó. Guðmundsson. 60 ? 61 ? Guðmundur Sigurgeirsson Drangsn. 51 Svein- Magnús (Hlíf). 65 ? 66 Þorsteinn Björnsson VINNAN „Þegar Iöja var stofnuð var verk- smiöjuiðnaðurinn ekki sá veigamikli þáttur í atvinnulífi okkar, sem hann nú er, enda iðnverkafólkið fátt og illa laun- að. Hópurinn var því ekki stór er að félagsstofnuninni stóð og kom þar hvort tveggja til, vanþroski iðnverkafólksins sjálfs og andstaða atvinnurekenda, sem sumir hverjir reyndu að halda sínum starfsmönnum utan samtakanna. En þrátt fyrir þetta almenna viðhorf at- vinnurekenda til samtaka verkafólksins, naut Iðja skilnings eigenda smjörlíkis- gerðanna þriggja, Smára, Ásgarðs og Ljóma, sem tafarlaust viðurkenndu fé- lagið og gerðu við það kjarasamninga. Þessi skjóti árangur varð til þess að auka trú meðlimanna á þessi ungu sam- tök sín og var forsenda þess að innan tíðar náðust samningar við heildarsam- tök iðnrekenda, FÍI. Jafnhliða skipulagningu iðnverka- Hlíf. 67 Jón Guðnason. 68 Emil Jónsson. 69 ? 70 Steinunn Þórarinsdóttir. 71 Sigríður Olafs- dóttir. 72 ? 73 Jóna Guðjónsdóttir Framsókn. 74 Þrúður Friðriksdóttir. 75 Vigdís Gissurar- dóttir. 76 ? 77 Sigrún frá lsafirði. 78 Sigurrós Sveinsdóttir. 79 Sigríður Erlendsdóttir. 80 ? 81 Guðjón Bjarnason Bolungarvík. 82 Hanni- bal Valdimarsson. 83 Kristján Dýrfjörð Sigluf. 84 Gunnar Friðriksson. 85 Hjörtur Cýrusson. Björn Bjarnctson. fólksins var unnið að því að ná fólki úr ýmsum þjónustugreinum inn í samtök- in, svo sem úr þvottahúsum, efnalaug- um, hjólhestaviðgerðum, netagerð og kjötvinnslu. Fyrir þetta fólk voru stofn- aðar deildir innan Iðju, sem síðar ýmist runnu inn í aðalfélagið eða urðu stofn- inn að sveinafélögum svo sem Félagi kjötiðnaðarmanna og Nót, félagi neta- vinnufólks. Ég hygg að með réttu megi halda því fram að erfitt sé að skapa öflugt verka- lýðsfélag úr þeim efnivið sem Iðja samanstendur af, að langmestu ungu fólki, sem er að koma út í atvinnulífið, og margt af því, sérstaklega kvenfólkið, gerir ekki ráð fyrir að vera nema stutt- an tíma við störf í iðnaðinum. Að vísu er alltaf nokkur hópur sem ílendist í fé- laginu og þannig skapast kjarni, sem verður bakfiskurinn í félaginu. Iðja hefur verið svo lánsöm að eign- ast í þessu fólki kjarna, sem ávallt var hægt að treysta og þess hefur hún þurft með, því stundum hefur gustað um hana þessi 40 ár. Þegar Iðja hóf göngu sína var inn- lendi iðnaðurinn í hernsku og naut ekki mikillar hylli ráðamanna þjóðfélagsins og má reyndar segja að svo hafi lengst af verið. Það er þá helst nú síðustu árin að hann sé að öðlast þá viðurkenningu, sem honum óneitanlega ber. Þessi af- Fromh. á bls. 21 19

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.