Vinnan - 01.01.1998, Blaðsíða 1
Heimsmeistarar
Þeir sem stefna hátt vita að
styrkurinn felst í samstöðunni og
kraftinum, það er fyrst og fremst
þetta tvennt sem þarf til. Það
skaðar heldur ekki að keppa ein-
beittur að settu markmiði. Þannig
má ná árangri á ótrúlegustu sviðum. Danskir
málmiðnaðarmenn sýndu rækilega fram á það
fyrir jól með því að hreppa heimsmeistaranafn-
bót. Og í hverju? -Jú, kvennahandbolta.
Metal, samband málmiðnaðarmanna í Dan-
mörku, er aðalstyrktaraðili danska kvennalands-
liðsins í handbolta en liðið hefur unnið öll þau
verðlaun sem keppt hefur verið um á undanförn-
um árum. Liðið í Metal-búningunum sannaði síð-
an fyrir fullt og allt styrk danskra málmiðnaðar-
manna með heimsmeistaratitli í lok sl. árs.
Ofur-
hetjur?
arlaráðstefna
MFA var fjölsótt
og fróðleg. Leitað var
að fyrirmyndarkarlin-
um og spáð í hvort
hann væri hetja eða
vinnudýr. Jafnt David
Crocket sem íslenskir
útlagar komu við sögu
S1111 (Mlill 1111
Menntamálin eru efst á baugi í þessari Vinnu.
Meðal annars fjallar Kristján Bragason, starfs-
maður VMSÍ, um það sem helst virðist koma í veg
fyrir að fólk afli sér aukinnar menntunar.
Skipulagsmál hreyfingarinnar eru Þrándur í
Götu menntamála, segir Garðar Vilhjálmsson, skrif-
stofustjóri Iðju.
Almenn hæfni verður stöðugt mikilvægari að
mati Ingibjargar Elsu Guðmundsdóttur, fræðslufull-
trúa MFA.
Sérþjálfaður og sérhæfður eru hugtök sem Guð-
mundur Þ Jónsson, formaður Landssambands iðn-
verkafólks, vill nota.
Menntun gegn atvinnuleysi er efni greinar Ingi-
bjargar Stefánsdóttur, framkvæmdastjóra Símennt-
ar.
Sjá bls. 4-7
Tökum til!
anska alþýðusambandið er 100 ára í ár og
Flans Jensen formaður þess vill nota tækifærið
og dusta rykið af verkalýðshreyfingunni, gera hana
ágengari og opnari. Viðtal við Hans Jensen er á...
Bls. 13
Mannréttindabrot
Verkalýðshreyfingin i Swazílandi í Afríku hefur
átt undir högg að sækja. Tilraunir hafa meira
að segja verið gerðar til að ráða forsvarsmenn
hennar af dögum. Viðtal við Jan Sithole frá
alþýðusambandi Swazílands er á...
Bls. 9
Öryggisskór
Ekki aðeins bráðnauðsynlegir heldur líka
hátískuvara hjá unga fólkinu.
Bls. 11
Bls. 12
Lífeyrissjóðafrum-
varpið afgreitt
Frumvarp til laga um
skyldutryggingu lífeyris-
réttinda og starfsemi Iffeyr-
issjóða var samþykkt á Al-
þingi skömmu fyrir jól. Eng-
ar verulegar breytingar
urðu á frumvarpinu frá því
það var afgreitt úr nefnd
þeirri sem falið var að end-
urskoða fyrirliggjandi drög
að frumvarpi sl. vor. Eins
og kunnugt er skilaði
nefndin sameiginlegum til-
lögum og sátt þykir því
ríkja um þessi mikilvægu
mál.
Alþýðusamband Islands og
Vinnuveitendasamband fs-
lands voru meðal þeirra sem
fulltrúa áttu í nefndinni. Sam-
böndin stóðu saman að tillögu-
gerð í málinu og voru bæði
samtökin sátt við frumvarpið
eins og það leit út eftir breyt-
ingar í nefndinni. Þau hafa í
kjölfar samþykktar þess lýst
yfir ánægju með þau mikil-
vægu tímamót sem þar með
hafa orðið hvað varðar málefni
lífeyrissjóða á almennum
vinnumarkaði.
Grétar Þorsteinsson, forseti
Alþýðusambandsins, segir
þessa niðurstöðu tryggja sátt
um eðlilega og skynsamlega
uppbyggingu lífeyrissjóðanna á
íslandi. Mikilvægt sé að frum-
varpið nái til alls lífeyrissjóða-
kerfisins og í því sé tekið tillit
til hagsmuna allra þeirra aðila
sem að málinu koma. Hann
bendir á að verkalýðshreyfingin
hafi lengi kallað eftir löggjöf
um starfsemi lífeyrissjóða.
Frumvarpið var samþykkt
nær óbreytt frá nefndinni. Grét-
ar segir mikilvægast að sam-
tryggingarhlutverk lífeyrissjóð-
anna verður áfram við lýði og
tryggt er að allir eigi að taka
þátt í lífeyrissparnaði. Afram
verður byggt á hóptryggingum
í stað einstaklingstrygginga.
Aðild að lífeyrissjóði verður á-
fram hluti af umsömdum kjör-
um á vinnumarkaði. Lífeyris-
spamaðurinn getur verið sam-
settur úr samtryggingu og sér-
sparnaði en í núverandi leik-
reglum sé ekkert sem hindri
það. Akvörðun um að bjóða
upp á slíka samsetningu er á
valdi hvers lífeyrissjóðs.
Nýju lögin gera ráð fyrir að
hver einasti maður á vinnu-
markaði greiði að minnsta kosti
10% af tekjum sínum til lífeyr-
istrygginga. Til að tryggja það
er gert ráð fyrir að eftirlit með
því verði hluti af almennu
skattaeftirliti.
Lífeyrissjóðimir gegna mik-
ilvægu hlutverki við að tryggja
afkomu þeirra sem missa
starfsgetu vegna örorku eða
aldurs og fjárhagslegt sjálfstæði
þeirra á komandi áratugum.
Þannig eiga þeir þátt í að
tryggja hagsmuni skattgreið-
enda í framtíðinni þar sem þorri
aldraðra hefur öraggar tekjur ó-
háðar sveiflum í efnahag eða
afkomu ríkissjóðs. Bæði ASI
og VSI hafa bent á að aðeins
með þeirri víðtæku samstöðu
sem náðist í lífeyrismálunum á
síðari hluta sl. árs hafi verið
hægt að tryggja til frambúðar
hið fjölþætta og mikilvæga
hlutverk lífeyrissjóðanna.
Margt bendir til þess að flotinn haldi sig í höfn á næstunni. Vél-
stjórar stefna í verkfall þann 17. janúar og veriö er aö kjósa
um verkfallsboðun innan Sjómannasambandsins og Farmanna-
og fiskimannasambandsins. Veröi verkfallsboðun samþykkt mun
verkfall sjómanna skella á þann 2. febrúar, hafi kjarasamningar
ekki náöst fyrir þann tíma.
Sjómenn á Vestfjörðum hafa þegar samþykkt verkfall frá og
meö 2. febrúar, hafi samningar ekki náðst. Niðurstöður kosninga
um verkfallsboðun voru þær að hjá Sjómannafélagi ísafjarðar
reyndust 86% þeirra sem þátt tóku fylgjandi verkfallsboðun en
14% á móti. í Verkalýðs- og sjómannafélaginu Álftfirðingi á Súða-
vík voru rúm 83% með tillögunni en tæp 17% á móti og í Verka-
lýðsfélaginu á Hólmavík sögðu um 89% já en 11% nei.
Þín verslun er á eftirtöldum stöðum:
Arnarbakka, Reykjavík • Vesturbergi, Reykjavík • Hagamel, Reykjavík
Mjóddinni, Reykjavík • Seljabraut, Reykjavík • Suðurveri, Reykjavík
Grímsbæ, Reykjavík • Hringbraut, Keflavík • Miðbæ, Akranesi
Borgarbraut, Stykkishólmi • Vallholt, Ólafsvík • Ólafsbraut, Ólafsvík
Skeiði, ísafirði • Silfurgötu, ísafirði • ísafjarðarvegi, Hnífsdal
Vitastíg, Bolungarvík • Lækjargötu, Siglufirði • Aðalgötu, Ólafsfirði
Kaupangi, Akureyri • Hafnarbyggð, Vopnafirði • Álaugarvegi, Höfn
Breiðumörk, Hveragerði • Tryggvagötu, Selfossi.