Vinnan - 01.12.1998, Qupperneq 3
Heimsókn á
Vestfirði
Undanfariö hafa forystumenn Alþýöusambands íslands heimsótt
verkalýösfélög og fyrirtæki á Vestfjöröum. Þeir hafa m.a. heimsótt
Verkalýösfélagiö Brynju á Þingeyri, Súganda á Súgandafirði auk félaga á
ísafiröi og m.a. rætt skipulagsmál hreyfingarinnar. I heimsókninni til
Þingeyrar var hin rómaöa Vélsmiðja Guömundar G. J. Sigurðssonar
heimsótt, en þar er að finna tæki og tól frá fyrri tíma, næstum öll í nothæfu
ástandi. Á síðunni má sjá svipmyndir frá þessum heimsóknum.
Valdís Bára Krístjánsdóttir virðirfyrir vinnuaðstöðunna í Vélsmiðju
Guðmundar G. J. Sigurðssonar.
Heimsókn í Pólstœkni á Isafirði.
Taliðfrá vinstrí: Ingólfur
Eggertsson,forfaðir rafeindatœkni á
Islandi, Orn Ingólfsson,
framkvœmdastjóri fyrirtœkisins,
Hervar Gunnarsson, Grétar
Þorsteinsson og Björn Grétar
Sveinsson
Guðmundur Friðgeir Magnússon var
formaður Brynju um þriggja áratuga
skeið
Starfsfræðsla og kjaramál fiskvinnslunnar rædd
Þátttakendur á ráðstefnunni heimsóttu fiskiðjuver Granda. A myndinni sést
Brynjólfur Bjarnason útskýra vinnslulínuna.
Helgina 6.-8. nóvember hélt
Verkamannasambandið ráð-
stefnu um málefni fiskvinnsl-
unnar á íslandi. Efst á baugi
ráðstefnunnar voru starfs-
fræðsla og kjaramál fisk-
vinnslunnar. Til ráðstefnunnar
mættu fulltrúar verkalýðsfé-
laga víðsvegar að af landinu,
tæplega 100 manns. Erindi á
ráðstefnunni fluttu Jón Kjart-
ansson, formaður Verkalýðsfé-
lags Vestmannaeyja, Elínbjörg
Magnúsdóttir, varaformaður
deildar fiskvinnslufólks innan
VMSÍ, Arnar Sigurmundsson,
formaður Samtaka fiskvinnslu-
stöðva og Kristján Bragason,
vinnumarkaðsfræðingur hjá
VMSÍ.
Jón Kjartansson sagði í erindi sínu
að mitt í öllu talinu um góðæri í
landinu, væri enginn hópur jafn illa
leikinn og fiskvinnslufólk, að und-
anskildum öryrkjum og ellilífeyris-
þegum. Það ætti bæði við, þegar
rætt væri um laun og atvinnuöryggi.
Hann rakti baráttu síðastliðinna 20
ára fyrir kauptryggingu handa fisk-
vinnslufólki. í lögum um greiðslur
Atvinnuieysistryggingasjóðs vegna
fiskvinnslufólks frá 1995, er at-
vinnurekendum gefið sjálfdæmi um
hvort talið er „ ... réttlætanlegt að
vinna afla af rekstrarlegum ástæð-
um, svo sem vegna ónógs magns
eða hráefnisverðs". Þeir dagar sem
sjóðurinn endurgreiðir fiskvinnsl-
unni geta orðið allt að 60 á ári á
hvern fiskvinnslumann með kaup-
tryggingarsamning, að viðbættum
launaskatti og lífeyrissjóðsframlagi
atvinnurekandans. Fiskvinnslufólk
þarf að bíða í fjóra mánuði eftir að
komast á slfkan samning. Miðað við
reynslu undangenginna ára, greiðir
Atvinnuleysistryggingasjóður milli
140 og 150 ársverk fiskvinnslu-
manna. Jón benti á, að þetta væri á
sama tíma og útlendingar væru flutt-
ir inn í hundraðavís til að vinna í
fiski.
f lok erindis síns fjallaði Jón um
menntun og menntunarmöguleika
fiskvinnslufólks og benti á að þró-
unin í greininni gerði æ meiri kröfur
til aukinnar þekkingar. — Forystu
fiskvinnslufólks bíður því stórt og
örðugt verkefni, bæta kjörin, tryggja
atvinnuöryggið og auka menntun
fiskvinnslufólks og gera þar með
kjörorð danskra verkamanna að
okkar: Útrýmum orðinu ófaglært
verkafólk!, sagði Jón að lokum.
Imynd fiskvinnslunnar
Elínbjörg Magnúsdóttir, varafor-
maður deildar ftskvinnslufólks innan
VMSÍ fjallaði um ímynd fiskvinnsl-
unnar, sem hún taldi eiga við að
stríða ímyndarvanda. Hún sagði það
þekkta staðreynd að fólk fer úr ftsk-
vinnslu í verr launuð störf og velti
fyrir sér ástæðum. Hún taldi, að lík-
lega væri um að ræða nokkra sam-
hangandi þætti, svo sem launin,
vinnuaðstöðu, möguleikar til að
„vinna sig upp“ væru takmarkaðir,
vinnan væri einhæf og fleira í þeim
dúr.
Elínbjörg sagði lykilatriði til að
komast úr þessum vanda, að fisk-
vinnslufólk efldi sjálfsmynd sína og
starfsins. Það þurfi að stórauka
starfsmenntun, ekki síst í sambandi
við tækni. Auka þurfi atvinnuöryggi
og bæta vinnuaðstöðu. Hér hefur
verkalýðshreyfingin hlutverki að
gegna. Auka þarf upplýsingaflæði
til starfsmanna og stuðning við trún-
aðarmenn á vinnustöðum og tryggja
þeim öfluga símenntun.
Næstum tíundi hven
starlsmaður útlendingur
Arnar Sigurmundsson, formaður
Samtaka fiskvinnslustöðva sagði um
6.300 störf unnin í greininni á þessu
ári. Hann vék að starfsmenntamál-
um og sagði um tíu þúsund manns
hafa lokið grunnnámskeiðum í fisk-
vinnslu. Hann taldi orðið tímabært
að þróa þessu vinnu áfram og bjóða
upp á framhaldsnám og nýjar náms-
brautir, enda hefði svokölluðum
lykilstörfum á gólfinu farið fjölg-
andi og þörf væri fyrir sérstakar
námsbrautir fyrir þá sem þeim
gegna.
Tilraunir með kaupaukakerfi
Kristján Bragason hjá Verkamanna-
sambandinu kynnti á fundinum til-
raunir með kaupaukakerfi sem reynt
hefur verið í nokkrum frystihúsum,
sem greiða starfsfólki í frystingu
laun eftir þessu kerfi. Um er að ræða
hvetjandi kerfi, sem ætlað er að
auka framleiðni í fiskvinnslunni.
Forsenda þess að hægt sé að greiða
eftir þessu kerfi er að hægt sé að
vigta fisk frá hverjum einstaklingi í
snyrtingunni. Kerfið byggir á per-
sónubónus sem miðast við afköst
hvers og eins, en einnig hópbónus.
Kerfið er enn á tilraunastigi, en þar
sem það hefði verið reynt, t.d. á Dal-
vík, hefði það reynst vel, þó á þvf
væru ákveðnir gallar sem þyrfti að
sníða af.
Potturinn þar sem
enn eru steyptar
línuskífur.
Vinnan
3