Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Síða 29
27
þetta var inflúenza eða kvefsótt. Nær að halda, að kvef-endemi mín
væri dóttir þessa faraldnrs og allt væri sama tóbakið í upphafi.
Seijðisfi. í byrjun febrúar gaus hér upp greinileg inflúenza, og
fylgdi henni hár sótthiti og catarrhalia. Veiktust nær allir í sumum
húsum, og tók veikin jafnt unga sem gamla. Bronchitis capillaris og
bronchopneumonia komu fyrir i 4 tilfellum. Otitis media ac. supp.
var nokkuð algengur fylgikvilli.
Nor&ff. Kom hingað í marz og breiddist ört út. Var fremur væg sótt,
þótt nokkur lungnabólga fylgdi.
Fáskrúðsfl. Barst í héraðið uin miðjan febrúar, og gekk fram i
apríl með háum hita og miklum höfuðverk. Fylgikvilla gætti nokkuð,
einkum bar á otitis, auk þess fengu 2 sjúklingar lungnabólgu.
Mijrdcds. Gekk í júní og júlí og mun líka hafa verið í maí, en var
þá talin kvefsótt í mánaðarskýrslu. 4 inflúenzusjúklingar fengu
pneumonia, en batnaði vel við dagenan.
Vestmannaeyja. Kom hingað í febrúarmánuði og' breiddist fljótt út.
Barst hingað úr Reykjavík.
Eyrarbakka. Faraldurinn mátti teljast fremur vægur og fylgi-
kvillar ekki teljandi.
G'rimsnes. Barst í janúarmánuði austur frá Reykjavík. Náði há-
marki í febrúar. A nokkrum heimilum veiktust allir heimilismenn,
svo að skepnum varð ekki gegnt, nema með hjálp frá öðrum bæjum.
Lungnabólgu varð vart upp úr inflúenzunni.
Keflavilair. í febrúar og marz inflúenzufaraldur. Margir veiktust,
en flestir vægt. Engir alvarlegir fylgikvillar, og enginn dó.
10. Mislingar (morbilli).
Töflur II, III og IV, 10.
Sjúklingafíöldi 1932—1941:
1032 1933 1934 1935 1930 1937
Sjúkl........ 132 „ „ 16 8245 163
Dánir ....... „ „ „ „ 55 5
Gerðu ekki vart við sig' á árinu.
11. Hettusótt (parotitis epidemica).
Töflur II, III og IV, 11.
S júklingafíöldi 1932—1941:
1932 1933 1934 1935 1930 1937 1938 1939 1940 1941
Sjúkl........ 4 3 2 „16 1 1 „ 1 197
Stakk sér niður í Rvík um vorið, en faraldur hófst þar og i ná-
grannahéruðum fyrra hluta vetrar.
Læknar láta þessa getið:
Rvik. Tók að stinga sér niður með vorinu, einslök dreifð tilfelli fram
í nóvembermánuð, og í desember náði hún töluverðri útbreiðslu. All-
þung í sumum, og nokkuð bar á fylgikvillum.
1938 1939 1940 1941
1 1 14
»> »» >» »»