Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Page 45
43
2. Eftir berklaveikisbókum (sjiikl. i árslok):
1932 1933 1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941
Tb. pulm. . . 611 869 917 1064 1028 998 967 851 867 854
Tb. al. loc. . . 401 684 714 764 674 526 511 236 239 259
Alls . 1012 1553 1631 1828 1702 1524 1478 1087 1106 1113
Tala dauðra lir berklaveiki er enn lítið eitt hærri en á síðast liðnu
ári, og má vera, að tekið sé að gæta hernaðarástandsins, þröngra húsa-
kynna og ills aðbúnaðar á aðalatvinnustöðvum og óhollra lifnaðar-
úátta á ýmsan veg, en hins er einnig að gæta, að árið var mikið kvilla-
ár, og kemur slíkt ekki sízt við lasburða berklasjúklinga. Það vekur
vonir um, að almenn smitunarhætta hafi ekki aukizt stórvægilega,
að heilaberkladauði er í lágmarki 6,7% alls berldadauðans, en var
8,7 % á fyrra ári og þá stórum lægri en nokkurn tíma áður, síðan farið
var að skrá banamein nákvæmlega (1911).
Skýrslur um berklapróf hafa borizt úr 33 héruðum, og' taka þau til
samtals 8997 manns. Skiptist sá hópur þannig eftir aldri og útkomu:
0— 7 ára: 1071 þar af jákv. 49 eða 4,6 %
7—14 —: 5469 ------------- 859 — 15,7--
14_20 —: 634 — — — 263 — 41,5 —
Yfir 20 —: 1823 — — — 1327 — 72,8 —
Skýrsla berklavfirlæknis 1941.
Arið 1941 voru framkvæmdar berklarannsóknir (röntgenrann-
sóknir) í 18 læknishéruðum. Voru alls rannsakaðir 17446 manns, á 6
úeilsuverndarstöðvum 11675, áðallega úr 7 læknishéruðum (Hafnar-
tjarðarhérað fylgir enn sem fyrr heilsuverndarstöðinni í Reykjavík),
en með ferðaröntgentækjum 5771 úr 12 læknishéruðum. í einuþessara
úéraða (Hafnarfjarðarhéraði) voru einnig framkvæmdar stöðvarrann-
sóknir. Fjöldi rannsóknanna er hins vegar langtum meiri, þar eð
margir komu oftar en einu sinni til rannsóknar. Námu þær á árinu
26579. Árangur rannsókna heilsuverndarstöðvanna verður greindur
síðar (sbr. bls. 95—96), en af 5771, er rannsakaðir voru með ferðarönt-
gentækjum, voru 66, eða 1,1%, taldir hafa virka berklaveiki. Eins og að
undanförnu voru rannsóknirnar úti um héruðin ávallt framkvæmdar
1 samráði við héraðslæknana. Heildarrannsóknir voru framkvæmdar
* 3 héruðum (i Hafnarfirði, Vík í Mýrdal og Húsavík). Er Hafnar-
tjarðarrannsóknin yfirgripsmesta heildarrannsókn, er framkvæmd
hefur verið til þessa. Voru alls rannsakaðir þar 3444 manns. Tilhögun
rannsóknanna var hin sama sem undanfarin ár. Á þessu ári var þó í
fyrsta sinn notað hreinsað túberkúlín (P. P. I).) til stunguprófsins
(intracutanprófsins). Reynist það mjög vel. Héraðslæknarnir unnu
eins og fyrr ötullega að rannsóknunum og undirbúningi þeirra.
Að öðru leyti láta læknar þessa getið:
Rvík. Þegar tekið er tillit til fólksfjölgunar, hefur berklasjúkling-
um heldur fækkað á árinú í héraðinu. Dánartalan bendir í sömu átl.
Hafnarff. Nokkrir nýir sjúklingar bættust við á árinu. Um vorið