Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Síða 65
undir tungu, og var maðurinn hætt kominn. Út gróf, mjúkur, grá-
hvítur steinn, 2 cm langur og 2 mm í þvermál, þar sem hann var
þykkastur.
28. Sycosis barbae.
Rvík. 1 sjúklingur skráður á mánaðarskrá í apríl.
29. Trombocytopenia.
Sauðúrkróks. Af sjaldgæfum sjúkdómum má nefna, að 1 maður,
57 ára gamall, fékk essentiel trombocytopeni. Byrjaði það með tann-
lioldsblæðingum. C-vítamínlyf og blóðgjafir reyndust gagnslausar. Fór
hann síðan á Landsspítalann til rannsóknar og aðgerðar, en ailar að-
gerðir urðu árangurslausar, og lézt hann nokkrum vikum siðar úr
sepsis.
30. Tumores benigni.
Hesteijrar. Atheroma á 2 fullorðnum karlmönnum.
31. Tumor cerebri.
Höfðahverfis. Miðaldra kona með tuinor cerebri.
32. Ulcus linguae.
Norðfj. 47 ára karl hafði ulcus dorsi linguae, sem revndist vera
infectio Plaut-Vincent.
33. Ulcus ventriculi.
Fáskrúðsfj. Ulcus ventriculi höfðu 2 miðaldra sjómenn, báðir
skornir í Reykjavík með góðuin árangri.
34. Urticaria.
Hesteyrar. 1 unglingur skráður. Ofnæmi fyrir þorski.
Ölafsfj. Árlega nokkur tilfelli, 4 skráð í ár.
Höfðahverfis. Kom fyrir með meira móti, en vfirleitt batnaði hún
vel og fljótt af kalklyfjum.
Fáskrúðsfj. Urticaria er hér algengur kvilli.
I). Kvillar skólabarna.
Tafla X.
Skýrslur um skólaskoðanir hafa borizt úr öllum læknishéruðum
uenia fi (Dala, Rejdihóla, Reykjarfj., Hróarstungu, Fljótsdals og
Hornafj.) og ná til 13432 barna.
Af þessum 13432 börnum voru 5 talin svo berklaveik við skoðun-
ina, að þeim var vísað frá kennslu, þ. e. 0,4%c. Önnur 55, þ. e. 4,í%c
'oru að vísu talin berklaveik, en leyfð skólavist.
Lús eða nit fannst i 1885 börnum, eða 14,0%, og kláði á 122 börnum
í 20 héruðum, þ. e. 9,í%c. Geitur fundust ekki i neinu barni, svo að
getið sé.
Við skoðunina ráku læknir utan Reykjvíkur sig á 169 af 9415
hörnum með ýmsa aðra næma kvilla, þ. e. 1,8%. Skiptust kvillar
heirra, sem hér segir: