Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Page 95
Hesteyrarhéraðs, Axel Dahlmann, lézt af slysförum (datt ofan stiga).
1. júlí var Skarphéðinn Þorkelsson settur héraðslæknir í Hesteyr-
arhéraði, og' hóf hann störf sín í héraðinu 1. ágúst.
3. Sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir.
A. Sjúkrahús. Töflur XVII og XVIII.
Sjúkrahús og sjúkrskýli teljast á þessu ári samkvæmt töflu XVII
50 alls, eða jafnmörg og á síðast liðnu ári, áður en Holdsveikraspí-
talinn í Laugarnesi var lagður niður. Á árinu telst sjúkraskýli á Dal-
vík hafa bætzt við (1 rúm), en ekki var það tekið til nota á árinu.
Rúmafjöldi hinna 50 sjúkrahúsa telst 1199, og koma þá 9,8 rúm á
hverja 1000 íbúa. Almennu sjúkrahúsin teljast 44 með samtals 728
rúmum, eða 5,9%« og' hefur fjölgað um 1 rúm. Á heilsuhælum eru
rúmin talin 257, eða 2,1%«
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Því var noklcuð lýst í skýrslu minni 1940, hvílíkt vand-
ræðaástand væri hér í bænum vegna vöntunar á sjúkrarúmum, þar
sem sjúklingar verða oft að bíða vikum og mánuðum saman við hin
verstu skilyrði eftir því að komast í sjúlcrahús, og ekki hefur ástandið
batnað. Verður ekki séð, að hægt sé að draga það öllu lengur, að bær-
inn komi sér upp sæmilegu sjúkrahúsi.
Borgarfj. Stjórnarnefnd læknisbústaðarins hér seldi ríkinu á þessu
ári hús og jörð á Kleppjárnsreykjum, en lét í staðinn byggja nýjan
læknisbústað, hentugt og allvandað steinhús. Húsið er ein hæð og
lágur kjallari undir nokkru af því. í sérstakri álmu er lækningastofa,
apótek, biðstofa, 2 sjúkrastofur með 3 rúmum og baðherbergi sjúk-
linga. Læknisbústaðnum fylgja 3 ba lands, mestallt ræktað, og
hveravatn til upphitunar. Húsið tekið til notkunar skömmu eftir
áramót.
Patreksff. Áðsókn að sjúkrahúsinu var með almesta móti. Ljós-
lækninga nutu 70 sjúklingar.
Flategrar. Sjúkraskýli rak ég með svipuðum hætti og áður. Sjúk-
lingar með fæsta móti, bæði vegna þess að útlendingar voru engir,
og vegna þess að ég hliðraði mér hjá að taka á móti sjúklingum
nema í brýnustu nauðsyn, vegna starfsfólksvandræða.
Ögur. Sjúkraskýli var starfrækt á árinu. Aðsókn með meira móti.
Eins og áður voru aðeins teknir inn sjúklingar, sem eigi þurftu
meira háttar aðgerða við.
Hesteijrar. Hér hefur verið sjúkraskýli að nafninu til, en lítið liefur
það verið notað.
Miðfí. Aðsókn að sjúkrahúsi nokkru meiri en síðast liðið ár.
Sauðárkróks. Engar breytingar gerðar á sjúkrahúsinu eða rekstri
þess. 12 sjúklingar voru röntgenmyndaðir og 43 skyggndir á árinu
auk þeirra, sem berklayfirlæknir skoðaði, og nokkurra, sem voru
undir stöðugu eftirliti.
Ólafsfí. Sjúkraskýlið rekið með sama fyrirkomulagi og áður. Ljós-
lækninga nutu aðeins 7 sjúklingar.