Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Síða 107
105
— og eru það að sumu leyli. Við vitum, að sumt fólk er hreinlegt
og þrifið að eðli, annað sóðar og' subbur. Uppeldi og tíðarandi geta
miklu brej'tt. En í þessu efni er ekki létt að breyta til, enda illt um
að ræða, því að málið er viðkvæmt. Altítt er að skella skuldinni á
gamalmenni á heimilum, en reynslan er stundum sú, að sama gamal-
menni vill guðsfegið lúsalaust vera, en húsfreyjan hefur ekki dáð i
sér. Ef hingað kæmi sótt, sem lús ber, þá er hér töluvert til af þeirri
gráu. T. d. eru það ekki meira en 2 ár af 20, sem lús hefur ekki sézt
á mínu heimili, og ekki meira en 3, sem hún hefur ekki komið á mig.
En ég hef þá líka staðgóða reynslu á því, að auðvelt er að útrýma
henni fljótt og þarf engin undralyf til, yfir höfuð aldrei lyf nema í
haus á telpum.
Vopnajj. Lítil breyting á húsakosti héraðsins. A 1 bæ í sveitinni
var byggt upp af nýju, timburstofa með torfveggjum á 3 hliðar.
Viðhald mun og hafa verið allt í tæpasta lagi ba'ði í ibúðum og gripa-
húsum.
Seyðisfj. Húsakynni hafa ekkert breytzt og engin ný íbúðarliús
byggð. Aftur á móti hafa ýmsar kytrur, sem lagðar voru niður sem
mannabústaðir, verið teknar upp aftur til íbúðar vegna húsnæðis-
vandræða, sem stafa af dvöl setuliðsins, er hefur lagt margar íbúðir
undir sig og virðist ekki ætla að skila aftur. Sama er að segja um
þrifnaðinn. Honum hefur farið aftur af áður greindum ástæðum,
hermannaskálum og öllum þeim óþverra, sem þeim fylgir.
Fáskrúðsfj. Húsakynni í sveitum héraðsins virðast sæmileg, að und-
anteknu prestssetrinu. Hefur mikil umbót orðið við flutning og end-
urbyggingu gamla spítalans franska að Hafnarnesi, en þar voru húsa-
kynni lélegri en orð fái lýst. Lokið var við byggingu hússins á árinu
og fluttu í það 5 fjölmennar fjölskyldur. í Búðakauptúni eru nokkur
hús, sem varla geta talizt íbúðarhæf, þótt í þeim sé biiið. Lítið hefur
verið um nýbyggingar, en viðgerðir og endurbætur eldri liúsa nokkrar.
Þrifnaður innan búss víðast sæmilegur. Vatnssalerni mildu færri
en vera skyldi, og vcldur þar mestu um, að engin er vatnsveitan.
Vatnsbólin í kauptúninu yfirleitt slæm. Vatnið leill úr lækjum, sem
renna um þorpið, þrýtur í frostum á vetruin og í þurrlcum á sumrum.
Sorpræstingu er einnig mjög ábóta vant. Ösku og öðrum úrgangi víða
kastað í lækina.
Berufj. Ekkert byggt á árinu, og sjálfsagt hefur húsum verið lítið
haldið við vegna skorts á efnivið. Bæði í sveitunum og' kauptúninu
vantar salerni við flest hús, og virðist engin framför vera í því efni.
Utanhússþrifnaði er sums staðar ábóta vant.
Síðu. Húsakynni yfirleitt viðunandi, en þó eru hér íbúðarhús enn
l>á, sem verða að teljast óhæfir mannabústaðir. Lolcið var smíði á
einu húsi og byrjað á öðru. Þrifnaður fer batnandi, þótt í mörgu
sé ábóta vant. Þeim heimilum fækkar, sem ala lúsina, þó að finna
niegi hana enn þá á ólíklegum stöðum. Væri mikil þörf á, að heilar
sveitir gerðu samtök með sér um að útrýma lúsinni.
Vestmannaeyja. Húsakynni fara batnandi. Á árinu hefur verið
lokið við smíði á 2 íbúðarhúsum með samtals 7 íbiiðum. Sömuleiðis
lokið við srniði á bifreiðarstöð. Á árinu hafin smíði á 16 húsum.
14